Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.04.1981, Blaðsíða 15

Íþróttablaðið - 01.04.1981, Blaðsíða 15
mótinu í frjálsum íþróttum sem fram fór í Osló. Þá munu eflaust margir kannast við Björn þegar minnst er á Olympíuleikanna en hann var aðalfarastjóri íslend- inganna sem tóku þátt í leikunum árin 1968 og 1972. Alltaf haft áhuga á íþróttum og allri líkamsrækt Það myndi eflaust margur íþróttamaðurinn sem lagt hefur skóna á hilluna gera sig ánægðan með slíka upptalningu sem þessa. En nóg um íþróttaferil Bjöms. Víkjum að nýja starfinu. I hverju er það aðallega fólgið Björn? „Mitt starf er aðallega fólgið í að stjóma þessari skrifstofu,“ segir Bjöm og ekki er laust við að smá glott myndist á andliti hans. „Einnig er það í mínum verka- hring að ráð hingað starfsfólk. Margt fleira má nefna svo sem eftirlit með byggingunni (íþróttamiðstöðinni) hér og eins á Laugarvatni. Einnig mætti nefna fjármál, aðstoð við sér- sambönd og héraðssambönd o.fl. Þetta er nú svona það helsta.“ Hvenær hófst þú störf fyrir íþróttahreyfinguna? „Ég held að ég hafi verið tví- tugur. Það byrjaði með þvi að ég var í stjómum hinna ýmsu deilda innan KR og eins í stjórn KR síðar meir. Ég var síðan kosinn í stjóm Frjálsíþróttasambandsins 1956 og var í henni í 10 ár, og gengdi störfum gjaldkera en ég var einnig varaformaður og loks formaður sambandsins. Ég hef allt tíð haft gaman af íþróttum og hef haft mikin áhuga á alls kyns líkamsrækt. Ég geri nokkuð að því að trimma sjálfur og reyni að komast í sund á hverjum degi.“ Almenningur þar að gera meira af því að trimma Nú vinnur þú að því í þínu starfi við að aðstoða trimmnefnd ISÍ. Hver eru helstu áherslumál henn- ar? „Hennar aðalmarkmið er að fá fólk, almenning í landinu, til að hreyfa sig og stunda útiveru. Heilsugæsla í þessu landi er mjög dýr og það er bjargföst trú okkar sem erum í þessari nefnd að ef almenningur fæst til að rækta líkama sinn með því að trimma muni vera hægt að lækka kostnað við heilsugæslu í landinu. Þetta er stórt atriði. Ég vann lengi hjá tryggingafélagi og hafði þá með brunatryggingar að gera. Við höfðum alltaf það sjónarmið að reyna að koma í veg fyrir óhöpp og segja má að trimmnefndin sé einnig að því.“ Aðstoðin við sérsambönd ÍSÍ er brýnt verkefni Eins og fram kom í upphafi þessa greinar er Björns svo til nýbyijaður í starfi skrifstofu- stjóra ÍSÍ. Hvað finnst honum að sé mest aðkallandi í starfi ÍSÍ á næstunni? „Það er nú margt sem týna mætti til. Innan íþróttasambands Islands eru 17 sérsambönd. Það er mikið nauðsynjamál að ÍSÍ styðji vel við b^kið á þessum samböndum. Þetta tel ég að sé eitt mest aðkallandi verkefni sem ÍSÍ hefur við að glíma. Vantar íþróttahús og sundlaugar Bjöm heldur áfram: „Þá er mjög brýnt að auka og glæða áhuga almennings á íþróttum og fá hinn almenna borgara til að trimma og hreyfa sig. Fólk verður að hafa í huga að með alls kyns hreyfingu og trimmi má komast hjá alls konar kvillum. Við verð- um að vinna að því í framtíðinni að þessi þáttur fari vaxandi og ég er bjartsýnn á að svo verði. Það sem hins vegar er alvar- legasti hluturinn í sambandi við almenningsíþróttir er húsnæðis- vandinn. Það er dapurleg stað- reynd að öll íþróttahús í Reykja- vík og víða úti á landi eru svo þétt setin að ekki er smuga á að kom- ast að í þeim. Sömu sögu er reyndar hægt að segja um sund- laugamar. Það er mjög stórt atriði, og verður að vera eitt af brýnustu verkefnum ÍSÍ að auka skilning yfirvalda á þeirri nauð- syn sem bygging fleiri íþrótta- mannvirkja í landinu er.“ Erum að jafna okkur eftir íþróttahátíðina 1980 Hvemig er það með trimm- nefndina svo við víkjum talinu aftur að henni. Hefur hún yfir nægilegu frjármagni að ráða? „Nei alls ekki. Upphæðin sem við fengum síðast er það lítilfjör- leg að varla er hægt að nefna hana. Við fengum 25 þúsund nýjar krónur. Annars er fjár- hagsástand nefndarinnar frekar slæmt því íþróttahátíðin 1980 var okkur dýr og við erum að jafna okkur eftir hana. Við von- umst hins vegar til þess að næsta ár verði nokkurs konar ár trimmsins en það er verið að vinna að þessum málum núna og þetta er allt á byrjunarstig. Gott starf hefur verið unnið en við viljum gera enn betur.“ ISÍ fékk 71% meira fé nú en í fyrra á fjárlögum Við segjum nú skilið við trimmnefndina. Hvað með ÍSÍ? Hvemig stendur íþróttasamband- ið fjárhagslega? „Það er vissulega gleðileg þró- un að við fengum á síðustu fjár- lögum 71% meira fé en árið þar á undan. Þrátt fyrir þessa miklu aukningu er langur vegur frá því að þetta sé nóg. Það vantar mikið upp á það. En hitt er staðreynd að fjárhagur ÍSÍ hefur oft verið mun verri en hann er í dag. Ég er þó ekki að segja að hann sé góð- ur. Alls ekki. Það liggur fyrir að kostnaður við að reka íþrótta- hreyfinguna í landinu á ári er um 15
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Íþróttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.