Íþróttablaðið - 01.04.1981, Page 36
afstaða og ekki bera vitni um
samkeppni sem á að ráða í
viðskiptum. Við skulum vona
að þetta breytist, og mér þætti
ekki óeðlilegt að olíufélögin
hreinlega bæðu okkur um
auglýsingar fyrir alþjóðlega
rallið í sumar. Annars finnst
mér athyglisvert hve lítið aug-
lýsendur gera til þess að fylgja
málum sínum eftir. Það eru
góðar auglýsingar á rallbílun-
um, en þær eru lítið eða ekki
notaðar eftir að rallmótunum
lýkur— sjaldan birtar myndir
af sigurbílunum eða þess
háttar þannig að auglýsing-
amar nýtast ekki eins og þær
gætu gert.
— Nú vantar klúbbin land
undir „rallí-kross“ braut —
getur klúbburinn keypt sér
einhvers staðar land?
— Við viljum falla undir
það sama og önnur íþróttafé-
lög, fá úthlutað landsvæði án
endurgjalds. Slíkt tel ég ekki
óeðlilegt þar sem við erum að
fara með kappakstur af götum
borgarinnar inn á lokaðar
brautir, þar sem fyllsta öryggis
er gætt. Það er staðreynd sem
ekki verður á móti mælt að
eftir að akstursíþróttirnar
hófust hefur hinn svokallaði
götukappakstur nær algjör-
lega horfið. Þeir sem þurfa að
fá útrás með því að „gefa í“
hafa fengið aðstöðu — loks-
ins. Kvartmílumenn vilja
reyndar þakka sér að svo hef-
ur til tekist, en ég vil leyfa mér
að fullyrða að þetta er báðum
klúbbunum að þakka. Við
höfðum sótt um landsvæði
upp í Almannadal, en svo er
víst aðalskipulagið farið að
gera ráð fyrir íbúðabyggð þar.
Við eigum eigum erfitt með að
skilja hvers vegna sóst er eftir
því að byggja þar íbúðar-
svæði, þar sem þama er mjög
snjóþungt, og ætla mætti að
. . Norðmaðurinn sem keppti hér í fyrra var stórhrifinn og hefur veitt
okkur góða auglýsingu með umtali sínu . . .
snjómoksturinn væri nægjan-
legur fyrir. Nú, við höfum
fengið vilyrði frá skátafélag-
inu í Þorlákshöfn um að það
aðstoði okkur við gerð braut-
ar, og yrði hún væntanlega í
Jósefsdal. Það er þó engan
veginn eins góður kostur. Við
vonum sannarlega að borgin
taki jákvætt undir óskir okkar
og láti okkur hafa athafna-
svæði í Almannadal, það er
mjög skemmtilegur staður og
stutt fyrir áhorfendur að fara.
— Hvernig er fjármálum
klúbbsins háttað?
— Reksturinn er allur
undir sama hatti — rall —
auglýsingar, húsaleiga og slíkt
er borgað úr sama sjóðnum,
en reikningum fyrir hvert og
eitt rall er þó haldið aðskild-
um. Ég á von á því að
„Auto-Rall“ ’81 gefi einhverj-
ar tekjur, sem þá fara í að
greiða skuldir. BIKR stendur
fyrir útgáfu á auglýsingabækl-
ingi þar sem rallbílar og fleira
verður kynnt. — Það eiga að
vera auglýsingar á annarri
hvori síðu í þessum bæklingi
og við vonumst eftir því að
hann muni gefa okkur tekjur,
enda erum við nú orðnir
skuldugir og þurfum að gera
okkar mál upp. En ef við lítum
fram á veginn þá er ég bjart-
sýnn og tel að innan nokkurra
ára verði unnt að reka klúbb-
inn með því fjármagni sem
alþjóðlega rallið mun gefa
okkur, í aðra hönd, og tel að sá
viðburður verði árlegur hjá
okkur og vinsældir hans fari
stöðugt vaxandi.
— Hvernig fer klúbburinn
að því að verkja athygli á rall-
mótunum?
— Við höfum sett fréttatil-
kynningar í blöðin og svo látið
útbúa veggspjöld sem hengd
eru upp í verslunum. Þetta
hefur skilað ágætum árangri.
Þess má geta að ,,rallíkross“
verður framvegis fyrsta
fimmtudag hvers mánaðar í
sumar. Við rákum okkur á það
í fyrra að það er erfitt að fá
36