Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.04.1981, Síða 44

Íþróttablaðið - 01.04.1981, Síða 44
Vil ekki verða þar Eystein þorvaldsson Það var eitt hráslagalegt síðdegi þessa vetrar að við lögðum leið okkar upp í Drápuhlíð með það fyrir augum að hitta að máli Eystein Þorvaldsson. Eysteinn þarf sjálfsagt ekki neinnar kynningar við; hann er löngu þekktur fyrir störf sín í þágu íþrótta- og félagsmála og þekkir málefni íþrótta og ung- mennahreyfingarinnar flestum betur. Hann er for- maður Judósambands íslands og vann um árabil fyrir Ungmennafélag íslands og ritstýrði þá mál- gagni þess, Skinfaxa. Sjálfur hefir hann svo verið viðloðandi íþróttir frá unga aldri og víða liggja spor hans á þeim vettvangi og reyndar víðar sem sjá má af því að hann hefir nýverið sent frá sér rannsókn- arritgerð á sviði íslenskra bókmennta en áhugi á íslenskri tungu, mæltri og ritaðri, hefir búið með honum fra unga aldri. Við reyndum fyrst að grafast örlítið fyrir um uppruna og störf Eysteins og fyrstu kynni hans af íþróttum. „Ég er fæddur í Hafnarfirði, en ég er eiginlega Árnesingur bæði að ætt og uppeldi; foreldrar mínir fluttust austur fyrir fjall þegar ég var 13 ára. Ég var í Héraðsskólanum á Laugarvatni, en er stúdent frá MR og cand mag í bókmenntum frá Háskóla íslands og auk þess með BA-próf í þýsku. Ég er kennari við Menntaskólann við Hamrahlíð og hef auk þess verið stunda- kennari við Kennaraháskólann síðastliðin fimm ár. Ég hef haft áhuga á íþróttum og hef stundað þær alltaf síðan ég var krakki. Ég byrjaði að æfa handbolta með FH sem smá- strákur; síðan hefur FH alltaf verið mitt eftirlætisfélag í hand- boltanum. Á menntaskóla- árunum keppti maður í ýmsum greinum, þó að æfingarnar væru sjaldan samfelldar eða markviss- ar. Ég og margir félagar mínir vorum í þessu fyrst og fremst af leik og kappi, en tilsögn eða þjálfun höfðum við litla. Ég keppti í frjálsum íþróttum, íslenskri glímu, körfubolta og sundi. Þetta var algengt á þeim árum; við óðum úr einu í annað þegar skólinn eða ungmennafé- lagið eða íþróttafélagið kallaði menn saman til keppni.“ Þeir bræður Hafsteinn og Eysteinn hafa báðir starfað mikið fyrir Ungmennafélag íslands og var Hafsteinn formaður þess um langt árabil. Eysteinn kom þar einnig við sögu auk beinnar þátttöku í íþróttum og öðrum fé- lagsmálum innan hreyfingarinn- ar. „Já, ég gekk í ungmennafé- lagshreyfinguna sem unglingur, en hef ekki haft þar ábyrgðar- stöður. Hins vegar var ég tvö sumur starfsmaður UMFÍ og rit- stýrði Skinfaxa, tímariti UMFÍ í allmörg ár. Hafsteinn bróðir minn var formaður UMFÍ í tíu ár, og það var fyrir hans orð að ég tók að mér að koma blaðinu á réttan kjöl. Það hafði lognast út af 1964 eftir að hafa verið við lýði frá 1909. Eftir að sú viðreisn tókst, varð ég viðloðandi blaðið lengur en ég ætlaði í upphafi. Á þeim tíma fylgdist ég auðvitað vel með hreyfingunni og öllum hennar störfum. Eftir að ég settist að í Reykja- vík var ég lengi í stjórn Glímufé- lagsins Ármanns, mig minnir í 6 ár, en hætti þar um það leyti sem Judosambandið var stofnað.“ En áhugamál Eysteins eru ekki eingöngu bundin við íþróttir og félagsmál heldur beinist áhugi hans í ríkum mæli að menning- armálum þjóðarinnar og þá einkanlega bókmenntum. Rétt fyrir síðustu jól kom út bók hans, sem fjallar um þá hlið íslenskrar ljóðagerðar er snýr að atóm- skáldskap. Við spurðum hann hvaðan þessi bókmenntaáhugi stafaði. 44

x

Íþróttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.