Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.04.1981, Page 47

Íþróttablaðið - 01.04.1981, Page 47
áðan, þá væri fróðlegt að fá að heyra álit Eysteins á þessum hlutum og ef til vill hver staða sérgreinanna er hér á landi til dæmis í skólakerfinu. „Megingallinn er sá að ríkis- styrkurinn er alltof lágur. Ekkert sérsamband fær of mikið úr þeim sjóði að mínu mati, en allir of lítið. Fénu sem sérsamböndin fá er útdeilt af ÍSÍ eftir sérstökum reglum, og þar ræður iðkenda- fjöldi miklu um fjárhæðir. Aðrar tekjur hinna ýmsu íþróttagreina eru líka ójafnar. Boltaleikirnir, einkum knattspyrna og hand- bolti, fá stórtekjur af kappleikj- um; það fá önnur sambönd ekki. íþróttagreinum er mismunað í skólakerfinu hér. Fyrir sumar greinar láta skólarnir í té hús- næði, tæki, kennslu og keppni, en aðrar greinar eru þar algerlega afskiptar. Það vita líka allir að áhrifamiklir fjölmiðlar eins og dagblöðin en þó sérstaklega sjónvarpið hafa veitt boltaíþrótt- unum algeran forgang á sinum vettvangi. Allt hjálpast þetta að því að beina unglingunum í sömu átt. Meginfjárhagsvandinn verður ekki leystur nema með auknu opinberu fé til íþrótta- hreyfingarinnar. I þeim efnum erum við langt á eftir þeim þjóð- um sem við erum að keppa við. Það er bæði ósanngjarnt og mót- sagnakennt að ætlast til þess að íþróttafólk okkar geti staðið öðr- um á sporði sem hafa margfalt betri íþróttalega og félagslega aðstöðu vegna ríflegs stuðnings ríkisvalds sem lítur á íþróttir sem mikilvæga menningarstarfsemi.“ Er það þessara hluta vegna að judó er ekki útbreiddara en raun ber vitni eða spila þar aðrir þættir inn í? „Að sjálfsögðu spila þessir þættir sem við ræddum um áðan inn í en þó eru einkum tvær ástæður sem eru afgerandi og ber að nefna öðrum fremur. Önnur er skortur á þjálfurum og hin er mikill stofnkostnaður eins og ég gat um áðan. Judo er vandasöm íþrótt og góð kennsla afar mikilvæg. Við héldum fyrir nokkrum árum þjálfaranámskeið með góðum árangri og ætlum okkur að gera stórátak í þjálfarafræðslunni nú á þessu ári. Við höfum í samráði við fræðslustjóra Í.S.Í. lagt drög að tveimur þjálfaranámskeiðum í ár.“ Nú í sumar verður judó ífyrsta sinn með í stigakeppni á lands- móti og er þá ef til vill hægt að spyrja, í því sambandi, hvort um einhverskonar viðurkenningu á greininni sé að ræða og þá hvort judó sé almennt viðurkennd íþróttagrein hér á landi? „Judóíþróttin hefur yfirleitt mætt velvilja, bæði yfirvalda og almennings, en íþróttafrétta- menn hafa sýnt henni tómlæti. Boltaíþróttirnar hafa haft forgang 47

x

Íþróttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.