Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.04.1981, Side 51

Íþróttablaðið - 01.04.1981, Side 51
í MIKLUM ÓLESTRI íþróttablaðið ræðir við Stefán Jóhannsson þjálfara sem ekki eru starfandi að ráði og þar get ég nefnt nöfn eins og Ólaf Unnsteinsson og Jóhannes Sæ- mundsson. Þessir menn gætu gert mjög mikið gagn, en gera það ekki vega þess hve hreyfingin er fjárvana. Það sem einnig á hlut að máli varðandi uppgang frjálsra hér á landi er að starfandi þjálfarar einbeita sér ekki að því að byggja upp sitt eigið afreksfólk. Þeir skipta sér of mikið af ungu efni- legu íþróttafólki sem þeir þjálfa ekki sjálfir. Við skulum taka lítið dæmi: Ungur íþróttamaður hef- ur lagt stund á hástökk þykir mjög efnilegur. Að mati þjálf- ara þarf hann að ná einu til- teknu atriði til þess að geta haldið áfram uppbyggingu tækninnar. Þá kemur einn af mörgum sem vit hafa á og tuðar á því vikum saman að hann þurfi að ná öðru atriði til þess að geta sett met í sínum aldursflokki. Þessi ungi maður gæti sett met aðeins með hæfni sinni en ef hann æfir ekki byrjunaratriðin rétt þá nær hann ekki langt í fullorðinsflokki. Það er því staðreynd að menn eru mjög oft að skipta sér af ýmsu hjá íþróttamönnum á samráðs við viðkomandi þjálfara. íslendingar eiga mörg gífurleg efni sem hafa hreinlega eyðilagst vegna of margra þjálfara og vitlausrar undir- og uppbyggingarþjálfun- ar. Þeir menn sem eru sífellt að skipta sér af þessu málum eru lítt menntaðir og hugsa um hlutinn á sem auðveldastan hátt.“ Frjálsar íþróttir eiga við sömu vandamál að etja og aðrar íþróttagreinar hérlendis. Pen- ingaleysi hefur verið algert, skortur á áhorfendum og áhugi forystumanna ríkisins og borgarinnar hefur ekki verið til Ein hinna efnilegu Ármanns- stúlkna, Jóna Björk í langstökki. staðar. Hvað hefur Stefán um þetta allt að segja: „Það er staðreynd að við eigum mjög frambærilegt landslið, bæði í kvenna- og karlaflokki. Lítið hefur hins vegar verið hægt að gera fyrir landsliðið, fyrst og fremst vegna þess hversu fjöl- mennt það er en fullskipað landslið telur um 50 manns. Það gefur auga leið að kostnaður við slíkt landslið er mun meiri en við 10 manna landslið til dæmis í körfuknattleik. Það er þess vegna ekki heiglum hent að keppa við aðrar þjóðir. Frjálsíþróttahreyfing í land- inu eru ákaflega fjárvana og eru ástæðurnar margar og margvís- legar. Fyrst og fremst eru áhorf- endur sárafáir sem stafar m.a. af því að mótin eru alltof löng og illa skipulögð. Skipulagsleysið stafar hins vegar af því að of fá- ir fást til starfa og of lítið er gert af því að reyna að virkja þá íþróttamenn til starfa sem hættirerukeppni.Tilþessaðhalda eitt meðalmót í frjálsum íþróttum þarf 40—50 manna starfslið en ekki bara einn dómara og tvo línuverði. Betlið, sem tröllríður íþrótta- hreyfingunni í dag, er einn stærsti ef ekki stærsti tekjustofn frjálsu- íþróttanna og styrkir frá ríkinu og borginni eru til háborinnar skammar.“ Undanfarin ár hefur stjórn Frjálsíþróttasambandsins verið gagnrýnd nokkuð og henni kennt um hvemig hefur farið. Hvað vilt þú segja um þetta atriði? „Yfirstjórn frjálsra íþrótta í landinu er í höndum góðra manna sem starfað hafa lengi fyrir sambandið. Þeir hafa viljað draga sig í hlé en því miður ekki fengist nýir menn í staðinn. Af- leiðingin hefur verið stöðnun. Þessir menn hafa stundað betli- starfssemi eins og aðrir og betlað 51

x

Íþróttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.