Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.04.1981, Síða 56

Íþróttablaðið - 01.04.1981, Síða 56
Jóna Björk Grétarsdóttir er aðeins 15 ára en hefur þrátt fyrir ungan aldur getið sér gott orð í frjálsum íþróttum. Hennar aðal- grein er langstökk en hún er fjöl- hæf og hefur keppt í flest öllum ef ekki öllum greinum frjálsra íþrótta. „Minn besti árangur í lang- stökki er 5,54 m en ég hef stokkið lengra en þau stökk hafa verið ógild. Besti tími minn í 100 metra hlaupi er 12,64 sek, og 6,4 sek. í 50 metra hlaupi. 33,60 metrar í kringlukasti, 8,10 metrar í kúlu- varpi og 26,0 sek í 200 metra hlaupi en í þeirri grein tók ég síðast þátt í þegar ég var 13 ára,“ sagði Jóna og er greinilegt að hún er í meira lagi fjölhæf og á fram- tíðina fyrir sér. Hvernig stóð á því að þú byrj- aðir að æfa og keppa í frjálsum íþróttum? „Það atvikaðist nú þannig að ég var eitt sinn fyrir nokkuð löngu síðan, mig minnir að ég hafi verið 9 ára, að horfa á frjáls- íþróttamót. Ármannssveitin átti þá að fara að hlaupa boðhlaup en á síðustu stundu forfallaðist einn keppandinn. Systir mín kallaði þá á mig upp í áhorfendasvæði og hreinlega skipaði mér að hlaupa sem ég og gerði. Ég held að ég hafi bara staðið mig framar vonum og við sigruðum í boð- hlaupinu með nokkrum yfir- burðum. Fljótlega upp frá því hóf ég að æfa og hef gert það síðan. Ég hef aðallega sett mér tvö takmörk í nánustu framtíð“ sagði Jóna að stökkva yfir 6 metra í langstökki og hlaupa 100 metr- ana undir 12,3 sek. En ef við tök- um næstu árin inn í dæmið þá stefni ég að því að eignast eins mörg íslandsmet í frjálsum Framhald á bls. 76. „Ég æfði nokkuð vel og náði að því er ég held þokka- legum árangri. Mér tókst að setja nýtt íslenskt unglingamet 16 ára og yngri er ég stökk 6,89 metra á Laugardalsvellinum og ég er tiltölulega ánægður með það og metið stendur enn.“ Stefni að því að komast yfir 7 metrana í sumar Við spurðum Kristján hvert væri takmarkið í sumar. „Ég ætla bara að vona að mér takist að komaast yfir 7 metrana í sumar. Ég held að ég eigi að geta það. Ég hef verið að stökkva um og yfir 7 metra á æfingum að und- anfömu og það eykur sjálfs- traustið fyrir komandi keppnistímabil," sagði Krist- ján. Kristján er, eins og áður kom fram, frá Stykkishólmi en gekk síðan í Breiðablik. Hvemig stendur þá á því að hann æfir með Árminni? „Jú það er rétt, ég gekk yfir í UBK en æfi hér undir stjóm Stefáns. Hann er að reyna að breyta stílnum hjá mér og ég vona bara að honum takist það,“ sagði Kristján og vildi ekki ræða nánar um félaga- skiptin yfir í UBK. —SK. Var sótt uppí áhorf- enda- stæði íboð- hlaupið 56

x

Íþróttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.