Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.04.1981, Page 63

Íþróttablaðið - 01.04.1981, Page 63
ÞVÍ FYRR - ÞVÍ BETRA Því yngri sem börn eru þegar þau læra að synda, því meira verður sjálfstraust þeirra, greind og vilji til náms þegar þau verða eldri. Þetta kemur fram í niðurstöðum rannsókna sem vísindamenn við Karl Diem stofnunina í Köln í Vestur-Þýskalandi hafa gert, en rannsóknir þessar stóðu í tíu ár og náðu til 165 bama. Stofnunin hefur nú gefið út 600 blaðsíðna skýrslu um rannsóknina, og í skýrslunni segir m.a. að það hafi verið sannað að fullu að ungböm sem lærðu sund þegar þau voru þriggja mánaða hafi við fjögurra og fimm ára aldur verið greindari, haft meira sjálfstraust og verið viljugri til náms svo og hagað sér skyn- samlegar en aðrir jafnaldrar þeirra. Bömin voru prófuð á ýms- um sviðum, m.a. greind þeirra, framkoma og hreyfi- tækni. í skýrslunni segir m.a. orð- rétt: „í nær öllum tilfellum höfðu böm sem lært höfðu að synda sem ungböm hærri greindarvísitölu en börn sem ekki lærðu sund fyrr en að þau voru orðin tveggja og hálfs árs, og böm sem ekki lærðu sund fyrr en þau hófu skóla- göngu. Rannsóknir leiddu í ljós að böm sem lært höfðu sund sem ungböm voru félagslyndari, áttu auðveldara með að að- lagast í hópi fólks, áttu auð- veldara með að taka von- brigðum, höfðu betra jafn- vægisskyn og voru betri við æfingar á trambolini. Einnig voru þau hæfari í leikjum þar sem krafist var að hitta af ná- kvæmni í mark. Rétt er þó að taka fram að ungbömum eru ekki kenndar hinar hefðbundnu sundað- ferðir, svo sem bringusund, skriðsund, baksund eða flug- sund. Þau læra nokkurskonar hundasund. Margir vilja halda því fram að bömin læri ekki að synda vegna þess að þau læra ekki þessar hefð- bundnu sundaðferðir. Allir geta þó verið sammála um að þorskurinn sé syndur, en hefur nokkur maður séð slík- an fisk synda baksund, skrið- sund eða bringusund?" Sund jók félagslyndi og framfarir barnanna 63

x

Íþróttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.