Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.04.1981, Page 76

Íþróttablaðið - 01.04.1981, Page 76
að hann hefur náð góðum árangri og einnig er hann mjög skemmtilegur, bæði þegar hann er að keppa og eins þegar hann er ekki að keppa. Ég veit ekkert um erlenda íþróttamenn.“ Jón Grímsson, flug- maður „Það er alveg örugglega Skúli Óskarsson lyftinga- maður. Hann er alveg stór- kostlega góður. Mér finnst alveg sérstaklega gaman að horfa á hann þegar hann er að rembast upp á líf og dauða. Erlendur íþróttamaður? Það er nú það. Látum okkur nú sjá. Ég þarf að hugsa málið. Það er auðvitað Ingemar Stenmark, sænski skíðakóngurinn. Sér- staklega eftir að hann fór í brunið um daginn.“ Gufl- mundur Þorvarflar- son, leigu- bflstjóri „Minn uppáhaldsíþrótta- maður er Hreinn Halldórsson. Ástæðan fyrir því er sú að mér finnst hann framúrskarandi duglegur íþróttamaður og þess verður. Ég hef alla tíð fylgst vel með Hreini í kúlunni. Ég get lítið sagt þér af erlendum íþróttamönnum ein- faldlega vegna þess að ég þekki enga slíka og fylgist þar af leiðandi lítið með erlendum íþróttaviðburðum.“ Var sótt Framhald af bls. 56. íþróttum og ég frekast get. Það er mitt aðaltakmark,“ sagði þessi efnilega og metnaðargjama frjálsíþróttakona að lokum. —SK Hermann Guðmundsson Framhald af bls. 12. Held áfram meðan heilsan leyfir Líða er nú tekið að lokum þess spjalls. Mörg verkefni biðu úr- lausnar hjá Hermanni og eflaust fá þau jafn farsæla lausn og hin ótalmörgu sem hann hefur leyst um dagana fyrir íþróttahreyfing- una í landinu. Að síðustu var Hermann spurður að því hvort hann hyggðist halda þessu starfi áfram: Og það stóð ekki á svar- inu: „Ég held ótrauður áfram í þessu starfi á meðan að heilsan leyfir og menn vilja hafa mig í því.“ —SK. Nýja stjarnan Framhald af bls. 62. æfingum á laugardögum og sunnudögum. — Þarft þú að fara á fætur kl. 05 eða 05.30 á morgnana til þess að fara á æfingar, eins og sund- fólk í Vestur-Evrópu? — Nei. Ég stunda nám við íþróttaskóla og sundæfingarnar eru hluti af náminu þar. — Færðu einhver forréttindi fram yfir aðra, vegna þess að þú hefur unnið til gullverðlauna á Olympíuleikum? — Nei, — og þó, — okkur verður boðið í skemmtisiglingu. — Munt þú halda áfram að æfa sund? — Að sjálfsögðu geri ég það í fjögur ár í viðbót, fram yfir næstu Olympíuleika. — Hvað er það sem gerir þig svo góða í baksundinu? — Sennilega á það einhvem þátt í því hversu há ég er. Mér er sagt að ég líkist sænska bak- sundsmanninum Bengt Baron sem vann gull í 100 metra bak- sundi í Moskvu. Ég hef einnig náð góðum tökum á sundtækn- inni í baksundi. Lyftir 18 tonnum Framhald af bls. 25. í lagi eins og útlit er fyrir sé ég ekkert því til fyrirstöðu. Þau kg sem ég á vonandi eftir að bæta mig um verða að líkind- um færri en hjá þeim yngri. Það ætti að gefa auga leið að ég er lengur að þjálfa upp minn fimmtuga skrokk en ungu mennimir sem eru í blóma lífsins og eiga framtíð- ina fyrir sér.“ Eitthvað að lokum? — Já ég vil nota tækifærið til að skora á alla jafnaldra mína að koma og byrja að æfa. Þeir þurfa ekki endilega að vera að þessu með keppni fyrir augum. Aðalatriðið er að vera með. Þeir sem það munu gera munu finna það fljótlega hversu heilsusamleg íþrótt þetta er. Því lofa ég og hef þá eigin reynslu til hliðsjónar, en hún lýgur ekki. Allavega ekki að mér, sagði Jóhann Hjálm- arsson. —SK. Hinrik Framhald af bls. 74. síðan að ég var smá polli. Ég man fyrst eftir honum þegar hann var að leika með hol- lenska liðinu Ajax og hef haft mikið dálæti á honum alla tíð síðan. Að mínum dómi er hann besti knattspyrnumaður sem uppi hefur verið.“ 76

x

Íþróttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.