Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.05.1991, Page 10

Íþróttablaðið - 01.05.1991, Page 10
nefndarinnar er sú að ferðaþjónustan eigi að vera ferðaskrifstofa með öll- um þeim skyldum sem slíkum skrif- stofum fylgir en okkur fannst nauð- synlegt að hafa þetta óformlegra fyrsta árið til að kanna hug manna og í hvaða mæli slík aukin þjónusta íþróttahreyfingarinnar yrði nýtt. Ferðaþjónusta sem þessi ætti að leita tilboða fyrir umbjóðendur sína og leita samstarfs við ferðaþjónustuað- ila á hinum opna markaði." Guð- mundur leggur ríka áherslu á að ferðaþjónusta eins og sú, sem nefnd- in markaði hugmyndir um, ætti að hafa á einni hendi sérhæfðar upplýs- ingar sem henta iþróttahópum er hyggja á ferðalög innanlands og ut- an. Dæmi um slíkt eru upplýsingar um æfingaaðstöðu, sérfargjöld, skólagistingu o.fl. Það kemur fram í máli Guðmund- ar að hann telur að fargjaldasamn- ingurinn milli ÍSÍ og Flugleiða þjóni ekki lengur tilgangi sinum. En hvers vegna? „Þessi samningur hefur þjón- að okkur að vissu marki," segir hann, „en mér finnst að Flugleiðir hafi al- gerlega hafnað þessum samningi nú og félagið virðist ekki vilja vinna samkvæmt honum. Ég tel að Flug- leiðir kæri sig ekki um að veita íþróttahreyfingunni neina sérstaka þjónustu. Slíkt hlýtur að kalla á það að ÍSÍtaki til eigin ráða í krafti stærðar sinnar og styrks og stofni ferðaskrif- stofu." Hver voru viðbrögð framkvæmda- stjórnar ÍSÍ við tillögunni um stofnun sérhæfðrarferðaþjónustu til eins árs? „Við lögðum niðurstöður okkar fyrir framkvæmdastjórnina til kynn- ingar og ákvarðanatöku. Málið var rætt en síðan var því frestað og hefur ekki verið tekið til umræðu síðan, hvað þá að ákvörðun hafi veriðtekin. Það vantar augljóslega neistann í framkvæmdastjórnina til þess að framkvæma samþykkt ferðamála- nefndar. Það hefur ekkert gerst og það er mitt álit að framkvæmda- stjórnin hafi þannig sýnt áhuga- og kjarkleysi," segir Guðmundur alvar- legur íbragði. „Mérfinnst sannarlega að tími sé kominn fyrirframkvæmda- stjórnina að taka á málinu, að taka fram tillögur okkur og móta mjög ákveðna stefnu í ferðamálum sem miði að því að auka þjónustu ÍSÍ við hreyfinguna á raunhæfan hátt með því að stofna með formlegum hætti sérhæfða ferðaþjónustu íþróttahreyf- ingarinnar. Ég er sannfærður um að ef menn tækju málið föstum tökum nú myndi það fyrr en nokkurn grunar koma í Ijós að rétt skref væri stigið. Ég tel það vera eitt stærsta hagsmuna- mál hreyfingarinnar nú að samhæfa ferðamál hennar," segir Guðmundur að lokum. ,,FERÐASKRIFSTOFA ISÍ ER FRAMTÍÐARSÝN" Formaður Körfuknattleikssam- bands íslands, Kolbeinn Pálsson, átti sæti í báðum nefndunum sem skip- aðar voru til að kanna ferðamál íþróttasambands íslands. Hann er nú í ferðanefnd ISÍ sem semur við Flug- leiðir um flugfargjöld fyrir hreyfing- una. fþróttablaðið spurði Kolbein hvernig þeir samningar hefðu gengið undanfarið og einnig um stöðu mála varðandi sérhæfða ferðaþjónustu íþróttahreyfingarinnar. „Samningur okkar við Flugleiðir rann út um síðustu áramót og venjan hefur verið sú að gamli samningurinn hefurverið ígildi þartil nýrsamning- ur hefur verið gerður," segir Kol- beinn. „Flugleiðir riftu hins vegar einhliða samningnum nema að því leyti að afsláttur til hópa á innan- landsleiðum er í gildi en einstakling- ar, ef þeir ná ekki að mynda tíu manna hóp, hafa orðið að greiða venjuleg fargjöld. Sérsamböndin hafa verið með reglulega formanna- fundi þar sem rædd eru ýmis sameig- inleg hagsmunamál þeirra. Mikil óá- nægja hefur komið fram á þessum fundum um þá staðreynd að þegar komið var fram í aprílmánuð var samingum við Flugleiðir fyrir yfir- standandi ár enn ólokið. Þetta hefur leitt til mikils kostnaðarauka fyrir marga innan sérsambandanna og hefur jafnframt orðið til þess að ein- staklingar hafa hætt við að fljúga á áfangastaði innanlands og hafa ekið í þess stað. Slíkt leiðir að sjálfsögðu til tekjumissis fyrir Flugleiðir." „Fjórir sérsambandsformenn eiga sæti ísamningsnefnd ÍSÍ við Flugleið- ir. Nokkrir fundir hafa verið haldnir og í hnotskurn má segja að við hjá íþróttahreyfingunni séum mjög óá- nægð með tilboð Flugleiða til ÍSÍ. Okkur er hreinlega boðið upp á mun lakari samning en nokkru sinni fyrr! Að mfnu mati var samningurinn í fyrra vel viðunandi fyrirokkuren eins og málum er háttað nú er óhætt að segja að okkur sé ekki boðinn neinn samningur varðandi millilandaflug- ið. Það er einfaldlega verið að bjóða okkur að fljúga á fargjöldum Flug- leiða eins og þau liggja fyrir og um mjög lítinn eða næsta engan magnaf- slátt er að ræða. Okkur er boðinn viðunandi samningur varðandi inn- anlandsflugið en á það verður að benda að slíkt getur vart talist annað en eðlilegt vegna þess að hin innan- landsflugfélögin bjóða oft freistandi afslátt fyrir hópa og góða þjónustu, til dæmis að bíða eftir keppnishópum víða um land. Flugleiðir áttu ekki annarra kosta völ en að bjóða okkur „ÍSÍ á að taka til eigin ráða í krafti stærðar sinnar og styrks og stofna ferðaskrifstofu," segir Guðmundur. 10

x

Íþróttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.