Dagblaðið Vísir - DV - 10.07.2020, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 10.07.2020, Blaðsíða 28
28 KYNNING 10. JÚLÍ 2020 DV Glæsilegar nýjar útsýnisíbúðir í sölu við Hafnarbraut 13-15 á Kársnesi Ný og glæsileg byggð rís nú við sjávarsíðuna yst á Kársnesi í Kópavogi í næsta ná- grenni við smábátahöfnina, fjölbreytta þjónustu, útivist af ýmsu tagi og ólgandi hafið. U ppbyggingin á svæðinu er vel á veg komin en alls er gert ráð fyrir um 700 nýjum íbúðum á vestanverðu Kársnesinu sem er í samræmi við núgildandi aðalskipu- lag. Þar er gert ráð fyrir að iðnaður muni að stórum hluta víkja fyrir nýjum íbúðum, verslun og þjónustu á næstu þremur til fjórum árum. Fyrirhuguð brú yfir Fossvoginn mun styrkja almenningssamgöngur og tengingar fyrir gangandi og hjólandi við háskólasvæðið og miðbæinn og eflaust hafa mikil áhrif á ferðavenjur Kársnesbúa „Það er hvort tveggja spennandi og gaman að taka þátt í þessari uppbyggingu og hefur sala íbúða verið góð á fyrstu fjölbýlis- húsunum,“ segir Einar Steindórsson, framkvæmdastjóri fjárfestinga hjá Íslenskri fjárfestingu ehf, sem fer með uppbyggingu á nokkrum lóðum á Kársnesinu. „Kársnesið er fallegt og gróið hverfi. Smábátahöfnin og hafið gefa svæðinu ómótstæðilegan blæ og sömuleiðis bjóða göngu-, hjóla- og hlaupastígarnir umhverfis Kársnes upp á skemmtileg tækifæri til úti- vistar. Tækifærin verða enn fleiri þegar ný brú yfir Fossvoginn rís,“ segir Einar. „Kópavogsbær og lóðarhafar leggja mikinn metnað í þetta svæði, bæði hvað varðar skipulag á lóðum sem við og aðrir erum að byggja upp, sem og að fjölga opnum svæðum og aðlaga götur og stíga að stækkun hverfisins. Heildarmyndin er að skýrast og verið er að skipuleggja síðustu lóðirnar á svæðinu. Stutt er í nýjan Kárs- nesskóla og fyrirhugað er að fjölga leikskólum. Þá er einnig ráðgert að opna nýtt baðlón, Sky Lagoon, næsta sumar á Kársnesinu sem verður frá- bær viðbót fyrir hverfið.“ Hafnarbraut 13-15 Meðal nýrra húsa á svæðinu er Hafn- arbraut 13-15, sem er fallegt 54 íbúða fjölbýlishús á frábærum stað í þessu spennandi hverfi, vestast við sjávar- síðuna á Kársnesi. Við húsið er skjól- ríkur og sólríkur garður. Einnig vísa svalir í suður og vestur og glæsilegt útsýni er í báðar áttir. Íbúðirnar í húsinu eru stúdíó til fjögurra/fimm herbergja, frá 59,3 fm til 172,4 fm að stærð. Verð er frá 33,9 m.kr. Vel var vandað til byggingar hússins og mikil áhersla lögð á að lágmarka við- haldsþörf þess í framtíðinni. Lokað bílageymsluhús er í kjallara og fylgir rafmagnstengill hverju stæði. Íbúð- irnar eru rúmgóðar, fjölskylduvænar Hafnarbraut 13-15 er glæsilegt og vandað fjölbýlishús með íbúðum í ýmsum stærðum. MYND/AÐSEND Kársnesið er spennandi fjárfestingarmöguleiki þar sem stutt er í þjónustu, skóla og fjölbreytta útivist. MYNDIR/AÐSENDAR og afar vel hannaðar. Nýting rýma er góð og fjöldi herbergja tryggir aukið notagildi. Innréttingar eru frá danska innréttingaframleiðandanum HTH og tæki eru frá Ormsson. Þá er innbyggður ísskápur og uppþvottavél í innréttingu. Flestar íbúðir eru svo með sér þvottahús. „Nú þegar er þriðjungur íbúða seldur og eru fyrstu íbúar nýfluttir inn í húsið. Þetta er annað húsið sem við setjum í sölu en allar íbúðir í Hafnarbraut 9 eru þegar seldar og því gaman að komið sé nýtt hús í sölu.“ n Hægt er að kynna sér betur íbúðir hjá Miklaborg fasteignasölu í síma 569-7000 og á netfanginu miklaborg@miklaborg.is. Frekari upplýsingar um hverfið og íbúðir til sölu má einnig finna inni á www.karsnes.is Einar Steindórsson framkvæmdastjóri fjárfestinga hjá Íslenskri fjárfestingu ehf.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.