Dagblaðið Vísir - DV - 10.07.2020, Blaðsíða 46
46 SPORT 433 10. JÚLÍ 2020 DV
STEFNAN Í GARÐABÆ AÐ BÚA TIL
LIÐ SEM VERÐUR ÍSLANDSMEISTARI
Það kannast flestir knattspyrnuaðdáendur við Guðjón Pétur Lýðsson en hann hefur
lengi verið einn öflugasti leikmaður úrvalsdeildar karla og spilar í dag með Stjörnunni.
G uðjón hefur átt farsælan feril sem miðjumaður en hann hóf ferilinn
hjá Haukum í meistaraflokki
árið 2006 og var stuttu seinna
farinn í Stjörnuna. Guðjón
hefur komið víða við síðustu
14 ár og spilaði til að mynda í
atvinnumennsku með Helsing
borg í Svíþjóð árið 2011 á láni
frá Val.
Í dag er Guðjón leikmaður
Stjörnunnar en á lokadegi
félagaskiptagluggans skipti
hann yfir í Garðabæ eftir eitt
ár hjá Blikum þar sem hann
spilaði 25 leiki og skoraði tvö
mörk.
Fór frá Val
Það vakti töluverða athygli
þegar Guðjón sagði skilið við
Val en hann segir að Heimir
Guðjónsson, þjálfari liðsins,
hafi ekki haft not fyrir hann
á Hlíðarenda.
„Mér fannst ekki lengur ein
lægur vilji þjálfara míns að
hafa mig í félaginu sem ég var
í og ég fæ að fara mína leið.
Þetta kom mér mjög á óvart
en úr því sem komið var þá
sá hann mig ekki sem lykil
mann og ekki leikmann sem
væri að fara spila stóra rullu
og þá fannst mér best að sjá
hvað annað væri í boði. Mér
fannst Stjarnan mest spenn
andi af því.“
Við spurðum Guðjón í kjöl
farið hvort hann hefði trú á
því að verða fastamaður í ann
ars sterku liði Stjörnunnar.
Guðjón tekur ekki illa í það að
þurfa að vinna sér inn sæti í
Stjörnuliðinu og er ánægður
með að vera undir stjórn þjálf
arateymis sem vill hafa hann
í hópnum.
Ekki vandamál
að vera bekkjaður
„Ég hef trú á mínum hæfi
leikum. Það er alveg sama
hvar ég er, ég hef áður verið
bekkjaður og þurft að vinna
mig aftur inn í liðið og hef
gert það hjá Óla Kri á sínum
tíma, Adda Grétars og meira
að segja hjá Óla Jó þannig að
það hefur aldrei verið vanda
mál að setja mig á bekkinn.
Ég hef yfirleitt komið sterk
ari til baka og sannað mig. Í
þessu tilfelli þá var það mín
tilfinning að þjálfaranum leið
illa með að hafa mig í hópnum
þannig að þá er betra að fara.
Þótt að ég viti að hópurinn
sjálfur hafi verið ósáttur með
þetta. Ef þjálfaranum líður
betur þá eru meiri líkur á
árangri og ég sá fram á að ég
vildi vera þar sem þjálfarinn
vildi hafa mig.“
Allir í sóttkví
Stjarnan hefur ekki spilað
mótsleik í dágóðan tíma þar
sem leikmenn liðsins eru
í sóttkví. Stjarnan spilaði
sinn síðasta leik þann 24.
júní og viðurkennir Guðjón
að kringumstæðurnar séu
ekki þær bestu. „Þetta er
eiginlega hræðilegt en á móti
kemur að þá gefur þetta smá
tíma til þess að komast inn í
klúbbinn. Ég hef verið að æfa
og hitta fólk þó ég hitti ekki
beint leikmennina. Ég hef
minnstar áhyggjur af því, ég
þekki flesta leikmennina vel
og ég verð fljótur að komast
inn í hópinn. Ég veit að þetta
eru toppmenn í Stjörnunni og
þar eru fullt af flottum kar
akterum.“
Vinsæll í endurkomur
Guðjón hefur fjórum sinnum
á ferlinum endursamið við
fyrrum félög, Hauka, Breiða
blik, Val og nú Stjörnuna en
hann lék með Stjörnunni í eitt
tímabil 2007 til 2008.
„Það virðist vera að lið sem
ég hef verið í vilja fá mig
aftur. Ég er krefjandi fyrir
menn, kröfuharður og set
miklar kröfur á sjálfan mig og
alla í kringum mig. Vonandi
er ég með því að lyfta öllum
á hærra plan. Ég hef þá trú að
ég hafi gert þau lið sem ég var
í betri og menn kannski átta
sig á því að það er ekki bara
það sem maður gerir á vellin
um heldur líka utan vallar og
í félaginu sem skiptir máli og
ég held að ég sé sterkur þar.“
Árið 2018 var mikið talað
um samband Guðjóns og Ólafs
Jóhannessonar, þáverandi
þjálfara Vals.
Í fjölmiðlum var talað um
svokallað love/hate samband
þeirra tveggja en Guðjón
samdi við KA árið 2018 fór
svo strax í Breiðablik stuttu
seinna.
Guðjón hefur persónulega
ekkert á móti Óla og segir
ekkert nema gaman að vera
hluti af hans liði.
Inni og úti
„Ég ber gífurlega virðingu
fyrir Óla Jó og það er hrika
lega gott að vera leikmaður í
hans liði. Ég veit að strákarnir
tala mjög vel um Rúnar svo
ég veit að ég er að koma inn
í skemmtilegt umhverfi þar
sem eru kröfur en skemmti
legt að vera. Það er ótrúlega
mikilvægt á Íslandi því menn
eru að fá smá aur en alltof
lítið miðað við tímann sem
þeir eyða í þetta og þá verður
þetta að vera skemmtilegt.
Það hrikalega gaman með Óla
og mikil stemning í kringum
hann. Hann gefur mikið af
sér og það smitast út í hópinn.
Ég og Óli töluðum alltaf mjög
hreint út. Fyrsta árið mitt hjá
Val spilaði ég alla leiki en svo
koma smá tími sem ég var út
úr liðinu. Svo árið eftir spila
ég allar mínúturnar í leiknum
þegar við verðum Íslands
meistarar og svo árið eftir þá
er ég inn og út. Ég hef aldrei
verið fúll út í Óla sem pers
ónu en auðvitað geta ég og Óli
þjálfari verið ósammála.“
Stjarnan er með gríðarlega
sterkt lið og segir Guðjón að
liðið sé nógu sterkt til að enda
í efsta sæti.
„Ekki spurning. Stjarnan er
með lið sem getur farið alla
leið og það er klárlega stefnan
í Garðabæ að búa til lið sem
verður Íslandsmeistari.“ n
Victor Pálsson
433@dv.is
Guðjón segir Stjörnuna eiga góðan möguleika á Íslandsmeistaratitli. MYND/VALLI
Ég er krefjandi
fyrir menn, kröfu-
harður og set
miklar kröfur á
sjálfan mig og alla
í kringum mig.