Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 10.07.2020, Qupperneq 8

Dagblaðið Vísir - DV - 10.07.2020, Qupperneq 8
10. JÚLÍ 2020 DV8 FRÉTTIR samfélagið því það er hugsan- lega búið að loka á heimsóknir og vinasambönd. Öll umræða skilar sér. Við finnum það ef það er eitthvað sem rís hátt í umræðunni að fleiri leita til okkar.“ Sá sem býr við ofbeldið finn- ur fyrir samsvörun og áttar sig á því að það sé verið að lýsa kunnuglegum aðstæðum. Þú ert svo mikil tepra Brotaþolar átta sig oft síð- ast á því að verið sé að beita þær kynferðisofbeldi í nánu sambandi að sögn Jennýjar. Almennt sé auðveldara að samsvara sér við andlegt, líkamlegt og fjárhagslegt of- beldi því það sé meira í um- ræðunni en kynferðislegt of- beldi á heimilinu og það sé því oft síðasta vígið til að falla. Það sé oft verið að reyna að halda í nándina og að sú hlið sambandsins sé þó í lagi. „Það er gríðarlega mikið um kyn- ferðislegt ofbeldi í nánum samböndum. Þessi orðræða. Þú ert tepra, þú ert ekki með neitt hugmyndaflug, þú hefur aldrei neitt frumkvæði er ætluð til þess að þrýsta á að látið sé undan vilja þess sem beitir ofbeldinu. Mörkin eru alltaf færð lengra og lengra með klám og kynlífsvæðing- unni. Hvað telst eðlilegt er ekki lengur svo ljóst. Allt það sem þér líður vel með og ert róleg með er eðlilegt. Allt annað sem er verið að nuða, suða og pressa og hvetja þig til að gera umfram það sem þér líður vel með og ert róleg með, er kynferðislegt ofbeldi.“ Jenný segir þetta vera algengt sérstaklega hjá ungum konum og algengt er að ofbeldismað- urinn hóti að hætta með þeim því þær séu svo miklar tepr- ur. Þannig séu mörkin sífellt færð lengra. Veruleikinn sé sá að það er mjög alvarlegt að verða fyrir kynferðisofbeldi í nánum samböndum. Erfitt að sækja rétt sinn „Mín reynsla er sú að ef þú situr uppi með andlegt og fjárhagslegt ofbeldi, að það er ekki mikið af þeim málum að fara fyrir dóm. Það er erfitt að sækja rétt sinn þegar þú hefur ekki lögregluskýrslu og/ eða áverkavottorð sem styður framburð þinn. Það hefur þó ýmislegt breyst sem betur fer. Ekki fyrir svo löngu síðan var almenna reglan að brotaþoli þurfti að mæta í sáttarmeð- ferð til sýslumanns með of- beldismanninum. Það er ekki lengur svo,“ segir Jenný. Hún segir fjölda kvenna sitja eftir með engar eignir og jafnvel skuldum vafnar. Þeirra helsta hugsun sé oft að forða sér og börnum sínum úr þeim hörmulegu aðstæðum sem þau eru í. Í meistararannsókn Jennýar ræddi hún við tíu konur sem fóru úr ofbeldissamböndum. „Eitt mál fór í opinber skipti og það tók þrjú ár og tók nán- ast síðasta andardrátt kon- unnar því þetta reyndi svo Alvarlegt kynferðislegt ofbeldi á sér stað í nánum samböndum. MYND/GETTY ÞÚ AÐLAGAR ÞIG Í RAUN AÐ KVALARA ÞÍNUM Íslensk 32 ára kona segist ekki hafa áttað sig á hvað gaslýsing, narsissisti eða siðblinda væri fyrr en hún sleit ástarsambandi við mann fyrir nokkrum árum og upplifði í kjölfarið mikla óraun- veruleika tilfinningu. „Ég hafði vingast við hann á samfélagsmiðlum og hann minnti reglulega á sig með því að setja „like“ á myndirnar mínar. Mér fannst hann sætur og sjarmerandi. Svo einn daginn sendi hann mér skilaboð – hrósaði mér og úr varð samtal. Við fórum í kjölfarið á stefnumót og frá fyrsta stefnumóti byrjaði rússíbaninn. Hann var svo heillandi, vel að máli farinn – setti sig vel inn í öll mín mál strax og bara varð þarna strax eins og klettur. Við fórum strax í að vera í samskiptum allan daginn alla daga. Hann sagði mér fljótt að hann væri orð- inn ástfanginn – ég væri svo sérstök – hann hefði aldrei upplifað svona sterkar tilfinningar strax og ég kolféll. Ég hélt eftir þrjár vikur að ég væri búinn að hitta framtíðar manninn minn. Hann var algjör draumaprins. Alltaf með réttu ráðin ef eitthvað bjátaði, alltaf til staðar og vafði mig örmum og hrósaði öllu í fari mínu. Svo allt í einu – eins og hendi væri veifað – breytt- ist allt. Ég, sem hélt að draumaprinsinn minn væri þarna – varð óörugg, hrædd því allt í einu breyttist hegðun hans. Það er ótrúlega erfitt að lýsa svona ferli. Því fyrir marga, sem ekki hafa lent í svona aðstæðum, hljómar þetta bara eins og of tilfinningarík kona – sem kannski hefði átt að átta sig á að ást verður ekki til á einni nóttu. Svo dró hann sig til baka – sagðist ekki vera viss – smám saman fór ég að reyna að finna aftur mann- inn sem var svo mikill prins. Hann var fljótur að benda mér á að ég væri ýkt í tilfinningum. Ýkt og yfirdrifin í viðbrögðum – þyrfti aðeins að hætta að vera svona á útopnu alltaf. Ég fór því í að reyna að laga mig – leita leiða til að vera ekki svona tilfinn- ingarík. Skilja af hverju ég brást svona við. Ef ég hefði verið betri – hagað mér betur – þá væri hann enn þessi ást – þessi draumaprins. Ég reyndi allt. Hann náði fljótt að telja mér trú um að ég væri vandamálið. Hann gæti bara ekki treyst mér. Svo kom hitinn og kuldinn í kjölfarið. Hann hrósaði mér og sagðist sakna mín – en samt gæti hann ekki verið með mér. Hann hætti að svara strax, lét mig bíða og „haga mér“ – en sendi mér samt á end- anum skilaboð. Ég reyndi að hætta í þessum samskiptum – fara. Þá steig hann sterkur inn. Ég var bara eins og fiskur í neti. Stundum var mér sleppt í smá stund – en var alltaf fönguð aftur um leið og ég sýndi merki um frelsi. Það sem ég vissi samt ekki þá, er að hann var með margar aðrar konur í sama neti. Smám saman fór ég meira og meira inn í mig, ég treysti ekki á eigin innsæi í samskiptum, fannst ég ekki kunna að setja eðlileg mörk og bara vissi ekki hvernig hægt var að vera svona ástfangin en svo slökkva á tilfinningum á einni nóttu. Það var svo þegar ég losnaði úr netinu að ég fór að lesa mér til um gaslýsingu – að ég fór að skilja. Ég gjörsamlega fraus þegar ég áttaði mig á að allt var lygi. Þetta er í raun bara leikur. En jafnvel þannig leikur að manneskjan sem á leikinn – áttar sig ekki á því sjálf að hún sé svona. Það varð svo þegar að ég fór að tala við aðrar kon- ur, sem ég vissi að höfðu verið með honum, að við áttuðum okkur á hvað við höfðum upplifað. Hann notaði allar sömu setningar, sömu tæknina á okkur með orðum. Varð ástfanginn eftir fyrsta stefnumót – svo kom hitinn og kuldinn – ástin og fjandsemin. Ég var föst með honum í nokkur ár. Eftir að ég losnaði sögðu margar konur við mig – ég vildi að við hefðum talað saman fyrr. Maður bara þorir því ekki – því þá lítur maður út fyrir að vera þessi klikk- aða fyrrverandi. Í svona gaslýsingu trúir þú líka svo að þú sért vandamálið – og áttar þig á þegar það er kominn nýr fiskur í netið að þú varst einskis virði. Sem margir segja „iss ekki láta þetta á þig fá“ – þetta er bara flóknara en svo. Þú færð bara visst Stokk- hólmsheilkenni, heldur að ef þú lagir þig – þá verði allt allt í lagi – eins og það var í upphafi – þú í raun aðlagar þig að kvalara þínum. Það þarf sterk bein til að slíta sig lausa og sjá virði sitt aftur – eftir mörg ár í samskiptum sem þessum. Sjá að þetta er óeðlilegt og læra að svona darr- aðardans og þessi óvenjusterka ást frá mínútu eitt er í raun ekki sönn og kannski ekki til og að normið liggur ekki í bíómyndinni og blossanum. Ég gjörsamlega fraus þegar ég áttaði mig á að allt var lygi. Þetta er í raun bara leikur. Framhald á síðu 10 ➤

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.