Dagblaðið Vísir - DV - 10.07.2020, Síða 8
10. JÚLÍ 2020 DV8 FRÉTTIR
samfélagið því það er hugsan-
lega búið að loka á heimsóknir
og vinasambönd. Öll umræða
skilar sér. Við finnum það ef
það er eitthvað sem rís hátt í
umræðunni að fleiri leita til
okkar.“
Sá sem býr við ofbeldið finn-
ur fyrir samsvörun og áttar
sig á því að það sé verið að
lýsa kunnuglegum aðstæðum.
Þú ert svo mikil tepra
Brotaþolar átta sig oft síð-
ast á því að verið sé að beita
þær kynferðisofbeldi í nánu
sambandi að sögn Jennýjar.
Almennt sé auðveldara að
samsvara sér við andlegt,
líkamlegt og fjárhagslegt of-
beldi því það sé meira í um-
ræðunni en kynferðislegt of-
beldi á heimilinu og það sé því
oft síðasta vígið til að falla.
Það sé oft verið að reyna að
halda í nándina og að sú hlið
sambandsins sé þó í lagi. „Það
er gríðarlega mikið um kyn-
ferðislegt ofbeldi í nánum
samböndum. Þessi orðræða.
Þú ert tepra, þú ert ekki með
neitt hugmyndaflug, þú hefur
aldrei neitt frumkvæði er
ætluð til þess að þrýsta á að
látið sé undan vilja þess sem
beitir ofbeldinu. Mörkin eru
alltaf færð lengra og lengra
með klám og kynlífsvæðing-
unni. Hvað telst eðlilegt er
ekki lengur svo ljóst. Allt það
sem þér líður vel með og ert
róleg með er eðlilegt. Allt
annað sem er verið að nuða,
suða og pressa og hvetja þig
til að gera umfram það sem
þér líður vel með og ert róleg
með, er kynferðislegt ofbeldi.“
Jenný segir þetta vera algengt
sérstaklega hjá ungum konum
og algengt er að ofbeldismað-
urinn hóti að hætta með þeim
því þær séu svo miklar tepr-
ur. Þannig séu mörkin sífellt
færð lengra. Veruleikinn sé
sá að það er mjög alvarlegt að
verða fyrir kynferðisofbeldi í
nánum samböndum.
Erfitt að sækja rétt sinn
„Mín reynsla er sú að ef þú
situr uppi með andlegt og
fjárhagslegt ofbeldi, að það
er ekki mikið af þeim málum
að fara fyrir dóm. Það er erfitt
að sækja rétt sinn þegar þú
hefur ekki lögregluskýrslu og/
eða áverkavottorð sem styður
framburð þinn. Það hefur þó
ýmislegt breyst sem betur fer.
Ekki fyrir svo löngu síðan var
almenna reglan að brotaþoli
þurfti að mæta í sáttarmeð-
ferð til sýslumanns með of-
beldismanninum. Það er ekki
lengur svo,“ segir Jenný.
Hún segir fjölda kvenna
sitja eftir með engar eignir
og jafnvel skuldum vafnar.
Þeirra helsta hugsun sé oft að
forða sér og börnum sínum úr
þeim hörmulegu aðstæðum
sem þau eru í.
Í meistararannsókn Jennýar
ræddi hún við tíu konur sem
fóru úr ofbeldissamböndum.
„Eitt mál fór í opinber skipti
og það tók þrjú ár og tók nán-
ast síðasta andardrátt kon-
unnar því þetta reyndi svo
Alvarlegt kynferðislegt ofbeldi á sér stað í nánum samböndum. MYND/GETTY
ÞÚ AÐLAGAR ÞIG Í RAUN AÐ KVALARA ÞÍNUM
Íslensk 32 ára kona segist ekki hafa áttað sig á
hvað gaslýsing, narsissisti eða siðblinda væri
fyrr en hún sleit ástarsambandi við mann fyrir
nokkrum árum og upplifði í kjölfarið mikla óraun-
veruleika tilfinningu.
„Ég hafði vingast við hann á samfélagsmiðlum
og hann minnti reglulega á sig með því að setja
„like“ á myndirnar mínar. Mér fannst hann sætur
og sjarmerandi. Svo einn daginn sendi hann mér
skilaboð – hrósaði mér og úr varð samtal.
Við fórum í kjölfarið á stefnumót og frá fyrsta
stefnumóti byrjaði rússíbaninn. Hann var svo
heillandi, vel að máli farinn – setti sig vel inn í öll
mín mál strax og bara varð þarna strax eins og
klettur.
Við fórum strax í að vera í samskiptum allan daginn
alla daga. Hann sagði mér fljótt að hann væri orð-
inn ástfanginn – ég væri svo sérstök – hann hefði
aldrei upplifað svona sterkar tilfinningar strax og
ég kolféll. Ég hélt eftir þrjár vikur að ég væri búinn
að hitta framtíðar manninn minn. Hann var algjör
draumaprins. Alltaf með réttu ráðin ef eitthvað
bjátaði, alltaf til staðar og vafði mig örmum og
hrósaði öllu í fari mínu.
Svo allt í einu – eins og hendi væri veifað – breytt-
ist allt. Ég, sem hélt að draumaprinsinn minn væri
þarna – varð óörugg, hrædd því allt í einu breyttist
hegðun hans.
Það er ótrúlega erfitt að lýsa svona ferli. Því fyrir
marga, sem ekki hafa lent í svona aðstæðum,
hljómar þetta bara eins og of tilfinningarík kona
– sem kannski hefði átt að átta sig á að ást verður
ekki til á einni nóttu.
Svo dró hann sig til baka – sagðist ekki vera viss –
smám saman fór ég að reyna að finna aftur mann-
inn sem var svo mikill prins. Hann var fljótur að
benda mér á að ég væri ýkt í tilfinningum. Ýkt og
yfirdrifin í viðbrögðum – þyrfti aðeins að hætta að
vera svona á útopnu alltaf. Ég fór því í að reyna að
laga mig – leita leiða til að vera ekki svona tilfinn-
ingarík. Skilja af hverju ég brást svona við.
Ef ég hefði verið betri – hagað mér betur – þá væri
hann enn þessi ást – þessi draumaprins. Ég reyndi
allt. Hann náði fljótt að telja mér trú um að ég væri
vandamálið. Hann gæti bara ekki treyst mér. Svo
kom hitinn og kuldinn í kjölfarið. Hann hrósaði mér
og sagðist sakna mín – en samt gæti hann ekki
verið með mér. Hann hætti að svara strax, lét mig
bíða og „haga mér“ – en sendi mér samt á end-
anum skilaboð.
Ég reyndi að hætta í þessum samskiptum – fara.
Þá steig hann sterkur inn. Ég var bara eins og
fiskur í neti. Stundum var mér sleppt í smá stund
– en var alltaf fönguð aftur um leið og ég sýndi
merki um frelsi. Það sem ég vissi samt ekki þá, er
að hann var með margar aðrar konur í sama neti.
Smám saman fór ég meira og meira inn í mig, ég
treysti ekki á eigin innsæi í samskiptum, fannst ég
ekki kunna að setja eðlileg mörk og bara vissi ekki
hvernig hægt var að vera svona ástfangin en svo
slökkva á tilfinningum á einni nóttu.
Það var svo þegar ég losnaði úr netinu að ég fór að
lesa mér til um gaslýsingu – að ég fór að skilja. Ég
gjörsamlega fraus þegar ég áttaði mig á að allt var
lygi. Þetta er í raun bara leikur. En jafnvel þannig
leikur að manneskjan sem á leikinn – áttar sig ekki
á því sjálf að hún sé svona.
Það varð svo þegar að ég fór að tala við aðrar kon-
ur, sem ég vissi að höfðu verið með honum, að við
áttuðum okkur á hvað við höfðum upplifað. Hann
notaði allar sömu setningar, sömu tæknina á okkur
með orðum. Varð ástfanginn eftir fyrsta stefnumót
– svo kom hitinn og kuldinn – ástin og fjandsemin.
Ég var föst með honum í nokkur ár. Eftir að ég
losnaði sögðu margar konur við mig – ég vildi að
við hefðum talað saman fyrr. Maður bara þorir því
ekki – því þá lítur maður út fyrir að vera þessi klikk-
aða fyrrverandi.
Í svona gaslýsingu trúir þú líka svo að þú sért
vandamálið – og áttar þig á þegar það er kominn
nýr fiskur í netið að þú varst einskis virði. Sem
margir segja „iss ekki láta þetta á þig fá“ – þetta
er bara flóknara en svo. Þú færð bara visst Stokk-
hólmsheilkenni, heldur að ef þú lagir þig – þá verði
allt allt í lagi – eins og það var í upphafi – þú í raun
aðlagar þig að kvalara þínum.
Það þarf sterk bein til að slíta sig lausa og sjá virði
sitt aftur – eftir mörg ár í samskiptum sem þessum.
Sjá að þetta er óeðlilegt og læra að svona darr-
aðardans og þessi óvenjusterka ást frá mínútu eitt
er í raun ekki sönn og kannski ekki til og að normið
liggur ekki í bíómyndinni og blossanum.
Ég gjörsamlega
fraus þegar ég
áttaði mig á að allt
var lygi. Þetta er í
raun bara leikur.
Framhald á síðu 10 ➤