Dagblaðið Vísir - DV - 10.07.2020, Blaðsíða 38

Dagblaðið Vísir - DV - 10.07.2020, Blaðsíða 38
Matseðill Evu Ruzu Morgunmatur Létt ab-mjólk í skál og múslí eða þeytingur. Millimál Hámark og banani ef ég tók æfingu. Hádegismatur Flatkökur með smjöri og eggi, skyrdós. Millimál Epli eða fjórar möndlur. Kvöldmatur Misjafnt, en alltaf hamborgari á föstudögum. Smoothie uppskrift 1/2 epli 1 banani Lúka af frosnu spínati 2 dl af frosnu mangói Sítrónubiti, sirka 2 msk. 250 ml kókosvatn eða mangó- og kókossafi Skyrsletta, ef vill – auka prótein Allt maukað saman í blandara. MYND/AÐSEND 38 MATUR 10. JÚLÍ 2020 DV É g elska að vera í eld-húsinu, skoða upp-skriftir og ímynda mér að ég geti eldað allt sem ég sé.“ Það segir Eva hins vegar vera óráðlegt því hún sé tæpur kokkur. Í vetur var Eva með þættina Mannlíf, þar sem hún reyndi ýmislegt fyrir sér í eldhúsinu áhorf- endum til mikillar gleði, en bragðlaukum aðstandenda til mismikillar gleði. Þeytingar séu hins vegar lítið mál. „Ég elska smothie og gæti í raun drukkið þá allan ársins hring.“ Eva byrjar flesta daga á æf- ingu í Bootcamp. Þar fær hún útrás og finnst ekkert betra en að byrja daginn á svita. Svo tekur við blómastúss, en Eva rekur blómabúðina Ísblóm með móður sinni. Eftir vinnu er brunað beint heim að sinna börnum og elda kvöldmat. Enga þolinmæði fyrir kúrum Eva fylgir engu ákveðnu mat- arræði og segist ekki hafa þol- inmæði fyrir því. Hún er hins vegar mjög meðvituð um hvað hún borðar og borðar yfirleitt mjög hollt. Eva lýsir mataræði sínu sem fjölbreyttu en með dassi af einhæfni. „Ég borða á Með þráhyggju fyrir flatkökum Skemmtikrafturinn Eva Ruza er algjör A-mann- eskja sem vaknar snemma alla morgna. Erfiðasta ákvörðun dagsins er hvað hún eigi að hafa í kvöld- mat. Eva er mikill grínari og fer ekki í felur með veikleika sína, enda rýkur velgengnin af henni. þriggja tíma fresti, ekkert endilega af því að ég er svöng, heldur vegna þess að ef ég geri það ekki þá er fjandinn laus.“ Uppáhald Evu eru þeyt- ingar og gæti hún drukkið þá allan daginn. Uppáhalds mál- tíð Evu er svo eldbökuð pítsa með djúsí osti, skinku og an- anas. Það er ekkert lögbann á það. Eva er með þráhyggju fyrir flatkökunum frá Ömmu- bakstri og hefur verið síðan hún var barn og borðar hún flatkökur í kílóa vís. n Eva Ruza elskar góðan mat og stefnir allt í að hún verði hinn besti kokkur. MYND/ERNIR Unnur Regína Gunnarsdóttir unnurg@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.