Dagblaðið Vísir - DV - 10.07.2020, Side 35

Dagblaðið Vísir - DV - 10.07.2020, Side 35
FÓKUS 35DV 10. JÚLÍ 2020 Á ferð um landið HÚSAVÍK Áhugi fólks á Húsavík hefur lík- lega aldrei verið meiri en nú, þökk sé Eurovision-kvikmynd Wills Ferrell. Þessi litli og fall- egi hafnarbær á Norðurlandi er sannkölluð perla og nægir að nefna sjóböðin frægu og kjör- aðstæður til hvalaskoðunar. SJÓBÖÐ GeoSea sjóböðin eru ómissandi partur af heimsókn til Húsavíkur. Unaðslegt er að baða sig í heitum sjónum og njóta um leið útsýnisins yfir Skjálfandaflóa. Þá er ekki verra að steinefnaríkur sjórinn þykir einstak- lega góður fyrir húðina. Þá er afbragðsveitingahús á staðnum, þar sem meðal annars er boðið upp á súpu dagsins ásamt nýbökuðu brauði, salatbar og hvera- brauð með reyktum silungi, ásamt heitum og köldum drykkjum. GeoSea sjóböðin eru í útjaðri Húsavíkur og er opið alla daga frá 12-22. Ráðlagt er að bóka fyrir fram í sjóböðin. Miði í sjóböðin kostar 4.500 krónur og 2.000 fyrir 16 ára og yngri. HVALASKOÐUN Fáir staðir á landinu eru hentugri til hvalaskoðunar en Skjálfandaflói við Húsa- vík og ár hvert streymir fólk að til að fylgjast með þessum tignarlegu skepnum kíkja upp úr hafdjúpinu. Á Skjálfandaflóa má finna fjölda hvala af ýmsum tegundum, en mest þó af hrefnu, hnúfubak og höfrungum. Boðið er upp á hvalaskoðun frá mars og út nóvember, svo lengi sem veður leyfir, en fjögur hvalaskoðunarfyrirtæki bjóða upp á ferðir út á flóann: Norður- sigling, Húsavík Adventures, Sölkusiglingar og Gentle Giants. KÖNNUNARSÖGUSAFNIÐ Könnunarsögusafnið var opnað árið 2014, en þar má fræðast um sögu land- og geimkönnunar manna. Meðal sýningarmuna er geimfarabúningur frá NASA, steinn frá tunglinu og áhöld vík- inga og landkönnuða. Könnunar- sögusafnið er opið frá 11 til 16 alla virka daga í maí – september. HVALASKOÐUNARSAFNIÐ Hvalaskoðunarsafnið er skemmtilegur áfangastaður, ekki síst fyrir barna- fjölskyldur. Þar er hægt að fræðast um allt sem tengist hvölum og lífríki hafsins á lifandi og áhugaverðan hátt. Í 1.600 m2 sýningarrými er að finna beinagrindur af mörgum tegundum hvala og heillandi upplýsingar um þessi stærstu dýr jarðar. Aðgangseyrir á Hvalaskoðunarsafnið er 2 þúsund krónur en frítt er fyrir 16 ára og yngri. Í sumar er safnið opið alla daga frá 9-21. GOTT AÐ BORÐA Mikil gróska hefur verið í veitingahúsaflórunni á Húsavík undanfarin ár. Gamli Baukur er í hjarta bæjarins með útsýni yfir sjóinn og höfnina og á matseðlinum má finna rétti úr ýmsum áttum. Á Garðarsbrautinni er Naustið, staðsett í glaðlegu gulu húsi, og býður upp á ferska sjávarrétti. Í einu sögu- frægasta húsi bæjarins, þar sem áður var Kaupfélag Þingeyinga, er nú veit- ingastaðurinn Salka, sem býður upp á fjölbreyttan og spennandi matseðil. MYND/GVA MYND/AÐSEND MYND/NORTHICELAND.IS MYND/AÐSEND MYND/PJETUR BOTNSVATN Botnsvatn fyrir ofan Húsavík er verulega fallegt útivistarsvæði og tilvalinn staður að heimsækja á góðviðrisdögum. Þegar sólin skín má oftast sjá þar fjölda fólks, fjölskyldur í lautarferðum, börn á hornsílaveiðum og göngu- menn á röltinu. Hringurinn í kringum vatnið er auðveld gönguleið, rúmlega 5 kílómetrar og svo er hægt að grilla og veiða síli. YLTJÖRNIN OG SVARÐARMÝRARTJÖRN Skammt sunnan við bæinn, austan við þjóðveginn, má finna Yltjörn, en vinsælt er að stunda þar böð og gull- fiskaveiðar á góðviðrisdögum. Sjávarmegin við þjóð- veginn er síðan Svarðarmýrartjörn, en þar er talsvert af silungum og einnig sérlega ríkulegt fuglalíf. Þá eru ýmsar áhugaverðar gönguleiðir umhverfis tjarnirnar. MYND/NORTHICELAND.IS MYND/GETTY MYND/VILHELM

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.