Morgunblaðið - 17.01.2020, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. JANÚAR 2020
TAUBLEIUBÚÐIN ÞÍN
Kíktu á netverslun okkar
bambus.is
Nýbýlavegi 8 – Portið, sími 847 1660, www.bambus.is, bambus@bambus.is
bambus.is bambus.is • Opið mánudaga og fimmtudaga frá kl. 10-14
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Það er mikil þörf fyrir slíkar samveru-
stundir. Fólk styður hvert annað og minnist
hörmunganna og einnig þess sem gott hefur
verið gert,“ segir Eiríkur Finnur Greipsson,
fyrrverandi oddviti á Flateyri. Önfirðinga-
félagið í Reykjavík stóð fyrir samverustund í
Lindakirkju í Kópavogi síðdegis í gær. Þá
var snjóflóðanna í Súðavík fyrir réttum 25
árum minnst við guðsþjónustu í Guðríðar-
kirkju í Grafarholti.
Mannskæð snjóflóð féllu á Súðavík 16. jan-
úar 1995 og á Flateyri 26. október sama ár.
„Undanfarin 23 ár höfum við Önfirðingar
átt sameiginlega kyrrðarstund 26. október ár
hvert. Við urðum vör við þörf hjá fólki til að
hittast eftir snjóflóðin í vikunni og Önfirð-
ingafélagið ákvað að standa fyrir þessari
samverustund,“ segir Eiríkur Finnur.
Gömul sár ýfast upp
Hann segir að gömul sár ýfist upp við at-
burði eins og urðu í vikunni. „Fólk finnur
vanmátt sinn. Það er tilfinning sem erfitt er
að bera með sér en fær útrás með því að fólk
hittist og sýni kærleik,“ segir Eiríkur Finn-
ur, sem sjálfur lenti í snjóflóðinu á Flateyri.
„Markmiðið er að minnast þeirra sem
fórust og þakka fyrir þau og svo að veita fólki
styrk,“ segir Karl V. Matthíasson, sóknar-
prestur í Guðríðarkirkju í Grafarholti. Þess
var minnst í gærkvöldi að 25 ár eru liðin frá
því að snjóflóðið féll á Súðavík með miklum
afleiðingum fyrir fólkið og byggðina.
Kemur oft upp í hugann
Karl var þá sóknarprestur á Tálknafirði en
fór með björgunarsveitarmönnum á skipi til
Ísafjarðar til að aðstoða við að þjóna fólkinu
sem átti um sárt að binda. Stundum hefur at-
burðanna verið minnst í Guðríðarkirkju en
atburðirnir á Flateyri urðu til þess að ákveð-
ið var að halda þessa minningarstund nú.
„Þessir atburðir koma upp í hugann á þess-
um degi á hverju ári og miklu oftar, eins og
gerist með svona mikla atburði,“ segir séra
Karl.
Prestar kirkjunnar, Karl og séra Leifur
Ragnar Jónsson, þjónuðu ásamt Agnesi M.
Sigurðardóttur, biskupi Íslands. Auk þess að
minnast atburðanna var beðið fyrir landi og
þjóð og komandi tíð.
„Ég tel að fyrir utan skemmdir á atvinnu-
tækjum sé það langerfiðast að snjóflóða-
varnargarðarnir eru ekki eins öruggir og fólk
hélt. Flóðið fór yfir garðana og inn í eitt hús.
Sem betur fer bjargaðist fólkið en öryggis-
tilfinningin brestur,“ segir Eiríkur Finnur.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Samvera Önfirðingafélagið stóð fyrir samverustund í Lindakirkju í Kópavogi í gær.
Morgunblaðið/Eggert
Minning Snjóflóðanna fyrir 25 árum vr minnst í Guðríðarkirkju í gærkvöldi.
Minnast atburðanna og sýna stuðning
Samverustund í Lindakirkju vegna snjóflóðanna á Flateyri og minningarstund í Guðríðarkirkju
Snjóflóðin á Vestfjörðum
Rósa Margrét Tryggvadóttir
rosa@mbl.is
„Auðvitað er sláandi að sjá þetta
tjón en um leið er svo mikil sam-
heldni í samfélaginu. Allir eru bara
að styðja hver annan og moka frá
húsum. Það var líka ótrúlega fal-
legt,“ segir Katrín Jakobsdóttir
forsætisráðherra, en hún fór í gær
ásamt Bjarna Benediktssyni fjár-
málaráðherra og Sigurði Inga Jó-
hannssyni samgönguráðherra með
þyrlu Landhelgisgæslunnar til
Flateyrar og Suðureyrar vegna
snjóflóðanna sem féllu þar á
þriðjudagskvöld. Segir Katrín slá-
andi að sjá bátana hálfsokkna í
höfninni á Flateyri og húsið sem
varð fyrir snjóflóðinu.
Hún segir að ummerki flóðsins á
Suðureyri hafi einnig verið mikil.
„Mér er sagt að það hafi ekki
komið annað eins flóð þar síðan
1951 og þar gekk flóðbylgja yfir í
kjölfarið,“ segir Katrín í samtali
við Morgunblaðið.
Eftir heimsóknina til Suðureyr-
ar flugu ráðherrarnir til Ísafjarð-
ar, þar sem þeir heimsóttu aðgerð-
arstjórnina sem er að störfum þar.
Katrín hitti auk þess móður stúlk-
unnar sem grófst undir flóðinu.
Spurð hvað ríkisstjórnin muni
gera í sambandi við snjóflóðavarn-
ir segir Katrín það ljóst að snjó-
flóðið á Flateyri hafi verið afar
mikið og líklegt að það hafi jafnvel
verið stærra en snjóflóðið sem féll
á bæinn 1995.
„Það þarf augljóslega að yfir-
fara hættumatið eftir svona við-
burð og það verður auðvitað gert,“
segir Katrín. „Hvað varðar ofan-
flóðasjóð almennt og snjóflóða-
varnir var það áætlunin að ljúka
þeirri uppbyggingu 2010. Það er
ljóst að það tókst ekki og mun ekki
takast að ljúka henni fyrir 2020
eins og var næsta mark. En við
munum núna fara yfir þau mál á
vettvangi ríkisstjórnarinnar og
skoða hvernig verður hægt að
flýta þeirri uppbyggingu.“
Ljósmynd/Lísa Kristjánsdóttir
Ráðherrar Sigurður Ingi Jóhannsson, Bjarni Benediktsson og Katrín Jakobsdóttir heimsóttu Vestfirði í gær.
Sláandi að sjá tjónið
Það þarf augljóslega að yfirfara hættumatið, segir Katrín
„Á þessari stundu er engin leið að
átta sig á því hvert fjárhagslega
tjónið er,“ segir Hulda Ragnheiður
Árnadóttir, framkvæmdastjóri
Náttúruhamfaratryggingar Ís-
lands. Í leiðangri forystufólks rík-
isstjórnarinnar á hamfarasvæðin á
Flateyri og Suðureyri í gær var
Hulda Ragnheiður með í för. „Mér
fannst nauðsynlegt að fara á stað-
inn til að átta mig á heildarmynd-
inni og upplýsa íbúana um stöðu
þeirra,“ segir hún.
Skv. lögum bætir Náttúruham-
faratrygging Íslands (NTÍ) tjón á
öllum fasteignum sem kann að
hafa orðið vegna snjóflóðanna,
sem og á brunatryggðu innbúi og
lausafé. Tjón á varanlegum
hafnarmannvirkjum verður bætt
að hálfu. Í hamförunum vestra
fyrr í vikunni féll snjóflóð á eitt
íbúðarhús á Flateyri og skemmdir
urðu við höfnina þar, svo og á
Suðureyri. Tjón á bátum bætir
húftrygging báta hjá almennu vá-
tryggingafélögunum. Fljótt á litið
virðist sem vátryggingavernd á
þeim eignum sem skemmst hafa sé
nokkuð góð að frátalinni flot-
bryggjunni, sem NTÍ bætir ekki.
„Þegar aðeins líður frá sendum við
matsmenn á næstunni til að taka
út og meta skemmdir. Myndin á
enn eftir að skýrast,“ segir Hulda.
sbs@mbl.is
Of snemmt að segja til um fjárhagslegt
tjón eftir snjóflóðin á Flateyri og Suðureyri