Morgunblaðið - 17.01.2020, Qupperneq 14
14 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. JANÚAR 2020
Sími 552 2018
info@tasport.is
Sjá allar okkar ferðir
ogmeiri upplýsingar á
27. janúar-3. febrúar
tasport.is
Tenerife
Hotel Jardin Tropical er staðsett við ströndina í Adeje og þaðan er
fallegt útsýni yfir Atlantshafið og LaGomera. Hótelið státar af
saltvatnslaug semer höggvin í klettinn þar semnóg er af bekkjum
og stutt á er barinn, allt semþarf til að láta fara vel um sig.
Innifalið:
Flug, skattar og gjöld. 20 kg innrituð taska og 10 kg handfarangur.
Gisting á 4* hóteli meðmorgunmat í 7 nætur.
Frekari upplýsingar í síma 552 2018 eða info@tasport.is
149.900 kr. á mann í eina viku á Hotel Jardin Tropical
því þangað leitar fólk með gigt og
ýmsa húðsjúkdóma eftir því að fá bót
meina sinna.“
Það voru einmitt þessi sérstöku
skilyrði sem heilluðu Ómar Þór og
föður hans fyrir tæpum fjórum árum.
„Við komum á þennan stað og urð-
um strax heillaðir af þessu svæði.
Fegurðin ótrúleg og mjög þægilegt
að vera þarna. Við ákváðum því að
kaupa okkur íbúð til þess að geta
komið hingað, rétt eins og margir Ís-
lendingar hafa kosið að gera á síðustu
áratugum á Spáni. Í kjölfarið keypt-
um við tvær íbúðir í viðbót fyrir fjöl-
skyldu og vini og einnig til að leigja
út.“
Allir heillaðir af svæðinu
Viðbrögðin létu ekki á sér standa.
Vinir og kunningjar sýndu þessu
mikinn áhuga. Það kom þeim feðgum
hins vegar meira á óvart að fólk, alls
ókunnugt, tók að hafa samband og
sýndi áhuga á íbúðunum. Það var fólk
sem hafði áhuga á að dvelja um
skemmri tíma á svæðinu en einnig
hjón og fjölskyldur sem veltu fyrir
sér að fjárfesta í íbúð á svæðinu.
„Þetta sannfærði okkur um að það
væri eftirspurn eftir þessari þjón-
ustu. Við höfðum komist í samband
við stórt fjölskyldufyrirtæki þegar
við keyptum fyrstu íbúðirnar en það
er verktakafyrirtæki sem nefnist
Euro Marina. Þau kynntu fyrir okkur
ýmsa möguleika á svæðinu og á ein-
um tímapunkti fengum við kynningu
á átta íbúða húsi á besta stað. Eftir að
hafa skoðað teikningar og hönnun
hússins, ásamt öðrum möguleikum
sem það hafði upp á að bjóða gengum
við til samninga og keyptum heilt hús
með átta íbúðum,“ segir Ómar Þór.
Framkvæmdir tóku um eitt ár og í
september var húsið tekið í notkun.
„Þetta hús kemur mjög vel út.
Íbúðirnar eru um 100 fermetrar hver
og fólk getur valið milli þess að vera á
jarðhæð eða annarri hæð. Þeir sem
velja fyrri kostinn geta gengið beint
út í garð sem þykir oft kostur fyrir
fólk með lítil börn. Á efri hæðinni eru
svo íbúðir með góðum svölum.“
Í íbúðunum eru þrjú svefnherbergi
og eitt þeirra er sértakt hjóna-
herbergi með einkabaðherbergi. Þá
er önnur aðstaða þannig að fólk á gott
með að halda kostnaði við ferðalagið í
lágmarki ef vilji er til. Þá er á húsinu
þakgarður þar sem hægt er að hvíla
lúin bein og láta líða úr sér.
„Þarna er líka fullkomin eldhús-
aðstaða sem einfalt er að nýta sér.
Stofa með góðu sjónvarpi þar sem
jafnvel er hægt að stilla inn á RÚV ef
fólk fær heimþrá,“ segir Ómar Þór og
brosir í kampinn.
Gott samstarf við heimamenn
Spurður út í samstarfið við verk-
takann segir Ómar að það hafi allt
gengið snurðulaust.
„Það má segja að fjölskyldurnar
séu orðnar góðir vinir og þau hafa
m.a. heimsótt okkur hingað til Ís-
lands. Það er líka gaman að sjá
hversu vel er vandað til verka. Hér
heima er oft talað um að á Spáni séu
ekki mikil gæði í byggingariðn-
aðinum. Þessi hús eru hins vegar
byggð eftir ströngustu gæða- og ör-
yggiskröfum og það finnst okkur
skipta miklu máli.“
Hann bendir á að í fimm til sjö mín-
útna göngufæri eru stórmarkaðir á
borð við Lidl, Aldi og Consum sem
hægt er að nýta. Þá eru mörg góð
veitingahús á svæðinu sem bjóða mat
á góðu verði.
Gott aðgengi fyrir alla
Aðstaðan er nútímaleg að sögn
Ómars Þórs og þannig er lyfta í hús-
inu þótt það sé aðeins upp á tvær
hæðir.
„Við leggjum áherslu á að allir geti
nýtt sér þessa aðstöðu, óháð aldri eða
líkamlegu atgervi. Sumar íbúðirnar
eru þannig útbúnar að fólk með sér-
þarfir getur auðveldlega dvalið þar
um lengri eða skemmri tíma.“
Helgafell er hluti af stærri einingu.
Fjögur hús af sama tagi mynda hring
um sundlaugaraðstöðu sem Ómar
Þór segir lykil að miklum þægindum
fyrir þá sem dvelja í Helgafelli.
„Það er gott að skella sér í laugina
og taka sundsprett eða kæla sig í hit-
anum þegar svo ber undir. Þarna er
einstaklega gott að vera með börn og
útsýni yfir allt svæðið. Ef maður vill
meiri kyrrð er þakgarðurinn hins
vegar mjög sniðugur.“
Hann segir að þótt Quesada sé ekki
nema 25 þúsund manna bæjarfélag sé
alls kyns afþreying í seilingarfjar-
lægð.
„Þarna er gott að komast í góðar
gönguferðir, hjólahópar geta farið í
góðar ferðir út frá bænum og svo er
ströndin hvíta alveg einstök. Það er
líka stutt í vatnsrennibrautagarð,
nokkra glæsilega golfvelli, einstakan
dýragarð og áhugafólk um keilu get-
ur meira að segja fundið góðan stað í
nágrenninu. Þá er mikið úrval af úti-
svæðum sem hægt er að nýta til
styttri og lengri göngutúra“
Þjónustan á íslensku
Ómar Þór segir að hugmyndin að
baki þjónustunni sé sú að þarna geti ís-
lenskar fjölskyldur fundið sér afdrep
til afslöppunar og góðrar afþreyingar.
Hluti af hugmyndinni er einnig sú að
fólk geti notið þjónustu á íslensku.
„Það finnst ekki öllum gott að þurfa
að tjá sig á ensku eða spænsku. Þá er
mikilvægt að þjónustan sé á íslensku.
Við erum með mjög góðan mann á
svæðinu sem hægt er að leita til ef eitt-
hvað er og við höfum fundið fyrir því
að sú þjónusta sé mjög vel þegin.“
Ómar Þór segir það sama eiga við
þegar fólk kynnir sér þjónustuna en
heimasíða fyrirtækisins, helgafell-
rental.is er á íslensku.
Verðlagningin á þjónustunni virðist
heldur ekki skemma fyrir. Yfir vetrar-
mánuðina kostar nóttin um 8 þúsund
krónur en hækkar í um 14 þúsund
krónur yfir sumartímann.
Flugframboðið nægt
Miklar sviptingar hafa verið á flug-
markaðnum síðustu misseri og tals-
vert dró úr flugframboði til Spánar í
kjölfar gjaldþrots WOW air. Ómar
Þór segir að þrátt fyrir það sé til-
tölulega auðvelt að komast í beinu
flugi til Alicante.
„Norwegian hefur haldið uppi
áætlunarflugi þangað allt árið um
kring og fleiri flugfélög hafa bæst við
þegar nær dregur sumri. Það á m.a.
við um Icelandair.“ Lengri útgáfu af
þessu viðtali geta innskráðir not-
endur nálgast á mbl.is.
Hótel Helgafell risið á Spáni
Hvíta Helgafell Húsið er glænýtt og reist eftir ströngustu öryggis- og gæðastöðlum að sögn Ómars Þórs.
Feðgar hafa byggt upp hótelíbúðir í Quesada, hálftíma leið frá flugvellinum á Alicante Segja mik-
inn áhuga meðal Íslendinga Einstakt veðurfar og sólskin 320 daga á ári Nóttin á 8 þúsund krónur
VIÐTAL
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Við setjumst niður yfir rjúkandi heit-
um kaffibolla sem Ómar Þór Ómars-
son hefur galdrað fram úr stórri
kaffivél af ítalskri gerð.
Á síðustu árum hefur Ómar Þór, í
samstarfi við föður sinn, Ómar Krist-
jánsson, unnið að uppbyggingu hót-
elíbúða á einstökum stað á Spáni.
Upphaf verkefnisins má rekja til
heimsóknar þeirra þangað.
Síðastliðið haust tóku þeir í gagnið
átta íbúða hús sem þeir reistu í bæn-
um Quesada á suðurhluta Spánar.
Húsið nefnist Helgafell
„Við ákváðum að nefna þetta verk-
efni Hótel Helgafell með vísan til
fjallsins helga á Snæfellsnesi. Okkur
feðgum þykir
mjög vænt um
það,“ segir Ómar
Þór.
Quesada er um
25 þúsund manna
bær á suðurhluta
Spánar, spölkorn
frá flugvellinum í
Alicante.
„Þessi bær er
um hálftíma leið
frá Alicante og
Torrevieja. Þetta er hins vegar að
mörgu leyti rólegra svæði en þessir
þekktu staðir og mannfjöldinn ekki
eins mikill,“ segir Ómar Þór.
Quesada er oft nefndur bærinn við
hvítu ströndina og það er réttnefni.
Eftir um tíu mínútna akstur frá
Helgafelli er komið að strönd með
hvítum sandi og þar finnst ferðalöng-
um en ekki síst Spánverjum gott að
venja komur sínar.
„Okkur finnst það einmitt með-
mæli með staðnum að Spánverjar
venja komur sínar til bæjarins. Þeir
leita ekki í allan mannfjöldann þar
sem ferðaþjónustan er með met um-
svif.“
Einstök veðurskilyrði
En Ómar Þór segir að það sé meira
en kyrrðin sem fólk leiti í.
„Veðurskilyrði þarna eru í raun
ótrúleg. Alþjóðaheilbrigðisstofnunin
hefur meira að segja vottað það á ein-
hverjum tímapunkti. Í Quesada eru
320 sólardagar á ári og loftslagið er
ótrúlegt. Það er samspil hafgolunnar
og fjallanna en ekki síst vatnsins La
Laguna Rosa sem er salt, sem gerir
skilyrðin þarna alveg einstök. Vatnið
er raunar dálítið eins og Bláa lónið
Ómar Þór
Ómarsson