Morgunblaðið - 25.01.2020, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 25.01.2020, Blaðsíða 14
Allar upplýsingar veita Helga Pálsdóttir lögg. fasteignasali Sími 822 2123 helga@fastlind.is ÞorsteinnYngvason lögg. fasteignasali Sími 696 0226 thorsteinn@fastlind.is Bjarkardalur 4-6 Reykjanesbæ OPIÐHÚS SJÓN ER SÖGU RÍKARI! laugardaginn25/1 og sunnudaginn 26/1 milli klukkan 12 og 13 NÝJAR, FULLBÚNAR vandaðar 3 herbergja íbúðir með bílskúr. Tvær stærðir: 108,4m2 og 130,3m2. Verð frá 44,9milljónum. 20mínútna akstursfjarlægð frá höfuðborgarsvæðinu. Íbúðirnar eru einstaklega vandaðar og skilastmeð gólfefnum á öllum rýmum, fallegum innréttingum, ísskápm. frysti, uppþvottavél og smekklegri lýsingu frá Lumex. 14 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. JANÚAR 2020 Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is Luxwedding fór af stað árið 2016 svoþetta er fjórða árið okkar núna.Þetta gengur mjög vel, við erum aðskipuleggja um það bil þrjátíu brúð- kaup hér á landi á hverju ári. Við höfum ýmist umsjón með hverju einasta atriði athafnar eða örfáum og allt þar á milli, svo þetta er mjög misjafnlega mikil vinna fyrir hvert brúðkaup,“ segir Vigdís Segatta, eigandi Luxwedding.is, fyrirtækis sem tekur að sér að skipuleggja brúðkaup á Íslandi. „Viðskiptavinir okkar eru nánast allir út- lendingar og koma hvaðanæva úr heiminum. Flestir eru frá Norður-Ameríku, bæði Banda- ríkjamenn og fólk frá Kanada, en við fáum líka fólk frá Evrópu og Asíu,“ segir Vigdís og bætir við að íslensk náttúra sé það sem dregur þetta fólk hingað til lands. „Margt af þessu fólki hefur lengi látið sig dreyma um að koma til Íslands og þegar það ætlar að gifta sig lítur það á það sem gott tæki- færi til að láta verða af ferðinni. Þá fer fólk að skoða möguleikana og mesta aðdráttaraflið er auðvitað að geta látið taka brúðkaupsmyndir í íslenskri náttúru. Sumir hafa komið áður til Ís- lands og heillast af einhverjum ákveðnum stað og langar að gifta sig þar, eða trúlofað sig á Ís- landi og koma þá aftur til að láta gefa sig sam- an.“ Stundum eru væntingar óraunhæfar Vigdís segir að þau hjá Luxwedding reyni að verða við óskum fólks, en það sé ekki alltaf hægt. „Flestir vilja hafa athöfnina úti undir ber- um himni, það er mjög vinsælt. Staðsetningar geta verið nánast hvar sem fólki dettur í hug, en hjá okkar viðskiptavinum, rétt eins og hjá öðrum erlendum ferðamönnum hér á landi, þá er suðurströndin ofboðslega vinsæl og suðvest- urhornið líka. Þetta nær austur að Höfn og yfir allt suðvesturhornið, sumir fara alla leið á Vest- firðina sjálfa. Við erum líka stundum með brúð- kaup í íshellum eða inni á hálendinu, og það er rosa gaman þegar fólk er til í að gera eitthvað öðruvísi eða óvenjulegra. Stundum þurfum við að sækja um sérstakt leyfi, t.d. ef sá staður sem brúðhjón óska eftir er á friðuðu svæði, eins og Malarrifi á Snæfellsnesi, en á þessu ári verðum við með athöfn þar og höfum fengið leyfi fyrir því. Þegar við erum í þjóðgörðum eða inni á einkalandi, þá þurfum við auðvitað að vera með leyfi og það er oftast auðsótt enda reynum við að hafa eins lítið rask og mögulegt er. Brúð- hjónin sem ætla að gifta sig á Malarrifi í sumar hafa komið þangað áður og átt þar góðar stund- ir. Staðurinn á því sérstakan stað í hjörtum þeirra og hefur tilfinningalegt gildi fyrir þau,“ segir Vigdís og bætir við að fólk sé oft með óraunhæfar væntingar um hvað hægt er að gera, líka í tengslum við veðurfar á Íslandi. „Fólk áttar sig ekki alltaf á að á ein- hverjum stað sem lítur rosa vel út á ljósmynd, þá getur vindur upp í 20 metra á sekúndu verið mjög algengt veðurfar þar. Fólk er eðlilega ekki alltaf með samhengi í þessu og okkar vinna felst auðvitað meðal annars í því að vera með væntingastjórnun, reyna að greiða leið fólks og verða við óskum þess, en jafnframt benda á að við verðum að vera raunsæ og hafa öryggi í fyrirrúmi og annað slíkt. Vissulega höf- um við verið með brúðkaup uppi á jökli og feng- ið geggjað veður og allt ræst í topp, en það get- ur verið erfitt að lofa slíkum hlutum á fráteknum dagsetningum fyrir þessa stóru stund á Íslandi þar sem allra veðra er von.“ Sumir koma með hljómsveit með sér Stundum er miklu til kostað í brúðkaupum sem Luxwedding tekur að sér að skipuleggja, þau alflottustu hafa verið upp á nokkrar millj- ónir. En hvað er það sem gerir athöfn mjög dýra? „Ef það eru margir gestir þá er kostnaður fljótur að fara upp. Brúðkaup eins og við þekkj- um eru með hundrað til hundr- að og fimmtíu gestum, en brúðkaup hjá fólki sem kemur til Íslands til að gifta sig eru oftast með aðeins 20 til 50 gestum, en brúðhjónin bjóða þeim kannski öllum í Bláa lón- ið eða annað sem kostar sitt. Þetta eru ekkert endilega ofboðslega dýr brúð- kaup miðað við gestatölu, en það er verið að leggja miklu meira í allt. Sum brúðhjón borga til dæmis gistinguna fyrir alla gestina, svo kostnaðurinn fer fljótt upp. Það eru engir brjál- æðislega dýrir póstar í þessu, þetta fer eftir því hvar fólk gistir, það hleypir verðinu upp ef fólk ákveður til dæmis að vera í lúxusgistingum á Íslandi.“ Panta erlend brúðhjón íslenska skemmti- krafta, tónlistarfólk eða heilar hljómsveitir til að koma fram í brúðkaupum sínum hér á landi? „Nei, það er ekki mikið um það, þó höfum við stundum verið með strengjakvartett eða gítarleikara, hljómsveitir, diskótekara eða slíkt. Sumir koma með hljómsveit með sér frá útlöndum. Allur gangur er á þessu, en fæst af þeim brúð- kaupum sem við skipuleggj- um eru þannig brúðkaup, þar sem eru hundrað gestir, partí og hljómsveit. Flest eru smærri í sniðum og notaleg. Stemningin hjá flestum er að leggja áherslu á flottan mat en ekkert endilega ball eða læti,“ segir Vigdís sem gifti sig sjálf á síð- asta ári og planaði sitt brúðkaup sjálf, enda komin með góða reynslu af slíku í vinnunni. „Brúðkaupið mitt var í Mjóafirði, en fjölskylda mannsins míns er þaðan, svo það lá beinast við, enda fallegur staður.“ Ljósmynd/Icelandweddingphoto.co Stóri dagurinn úti í guðsgrænni Vigdís segir að viðskiptavinir fyrirtækisins Luxwedding séu langflestir erlendir og vinsælt sé að láta mynda stóra daginn í magnaðri íslenskri náttúru, við fossa, inni í hellum eða hvar sem fólk vill. Ljósmynd/Icelandweddingphoto.co Ljósmynd/Icelandweddingphoto.co Að gifta sig á Íslandi er vinsælt Íslenska fyrirtækið Luxwedding sérhæfir sig í að skipuleggja brúðkaup fyrir erlenda gesti og er aðdráttaraflið fyrst og fremst brúðkaups- myndataka í íslenskri náttúru. Stundum er miklu til kostað, jafnvel milljónum, með hljómsveitum og böllum, en oftast eru brúðkaupin ósköp venjuleg og notaleg. Vigdís Segatta er eigandi Luxwedding en hún gifti sig sjálf í fyrra og hélt veislu í Mjóafirði. Ljósmynd/Icelandweddingphoto.co Horfst í augu Luxwedding skipulagði brúðkaupið fyrir þessi erlendu brúðhjón sem virðast hér alsæl úti í íslenskum hólma. „Erfitt getur verið að lofa góðu veðri uppi á jökli einhvern ákveðinn dag.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.