Morgunblaðið - 25.01.2020, Blaðsíða 43
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen
arnareggert@arnareggert.is
Þegar öfgarokksplata bernafnið Dissolution Of VirileChauvinism (lausleg þýðing:
Upplausn ofstopafullrar karl-
rembu) þá sperrir þú eyru og
glennir upp augu. Svona yrkisefni
finnur þú sjaldn-
ast í öfgarokki,
sem er sögulega
séð undirlagt af
testósteróni
(breytingar að
e-u leyti eru í
gangi, en þær
eru löturhægar).
Titillinn vakti at-
hygli en ekki síð-
ur tónlistin.
HUSH uppgötv-
aðist seint á síð-
asta ári, er dóm-
nefnd Kraums sat sveitt við yfir-
ferð ársins. Í dag er það svo að fólk
gefur út efnislega sem stafrænt á
hinum og þessum veitum, og sumt
hverfur í haf óminnisins, en líklega
hefur aldrei verið erfiðara en nú
að ná í gegnum útgáfukraðakið
(sem er bæði gott og slæmt). Á
Bandcamp lúra t.d. ýmis neðan-
jarðarverkefni og þar fannst
HUSH, illa merkt, en heimili var
engu að síður Akureyri, Ísland.
Formanni dómnefndar, Árna Matt-
híassyni, tókst svo að hafa uppi á
Öfgar eru alltaf góðar
listamanninum, sem reyndist ung-
ur Húsvíkingur að nafni Eysteinn
Orri.
Kauði hafði þá, frá október
2019, dælt út efni undir þessu
nafni. Einni breiðskífu (Pandemon-
ial Winds), stuttskífu (Dissolution
Of Virile Chauvinism) og nokkrum
smáskífum. Tónlistin er allsvaka-
leg, svo ekki sé fastar að orði kom-
ist. Nokkurs konar hljóðlistar-
dauðarokk, sem er hvað tærast á
Pandemonial Winds. Lögin hljóma
eins og þú sért fastur í stormi eða
það sé „hvítt hljóð“ í sjónvarpinu
þínu. Afbyggð, brjáluð keyrsla,
strúktúrlaus hávaði á köflum.
Geðveikislegt. Minnir á Impetuous
Ritual, Mitochondrion og álíka
sveitir. Allt mjög dularfullt, öll um-
slög svört og grá með heiðnum
táknum og hringjum. Lög kafla-
skipt (oft með I, II og IV merk-
ingum). Lögin skæld og skrítin,
löng, tilraunakennd og í gruggugri
keyrslunni má skynja bæði sveim
og örgustu hávaðalist. Einhvers
staðar þarna er HUSH.
Pistilritari sló á þráðinn til
Eysteins og spjallaði lítið eitt við
hann. Sagðist hann hafa langað til
að gera dauðarokk með femínísku
þema, margar slíkar sveitir væru
syndandi um í kvenhatri og hann
hafi langað til að snúa þessari kjör-
mynd á rönguna. Eysteinn er með
mörg önnur verkefni í gangi, sem
heita nöfnum eins og Places of
Torment, Black Memorial og Moon
Bearer, öll með ólíkum áherslum
(plata með Moon Bearer datt inn á
Bandcamp í janúarbyrjun).
HUSH fæddist vegna ritstíflu
sem tengdist Places Of Torment.
„Mig langaði bara að gera eitthvað
einfalt og þungt,“ segir Eysteinn.
„Það var mjög lítill undirbúningur,
ég settist bara niður og skrifaði
eitt lag sem varð svo að fimm lög-
um og ég ákvað svo bara að gefa
það út.“ HUSH er einslags svefn-
herbergisverkefni, en Eysteinn
gerir allt sjálfur við skrifborðið
heima hjá sér í gegnum Logic Pro
með hljóðkorti.
Það er ljúft að spjalla við
Eystein, sem kemur fyrir sem ró-
lyndis pælari. Engar stórkostlegar
áætlanir eru uppi um framhaldið
þrátt fyrir athyglina en HUSH
komst á langlista Kraums-
verðlaunanna. Eysteinn er með
puttana í alls kyns stílum, og þegar
ég spyr hann um hvort hann ætli
lengra með HUSH, er svarið dæmi-
gert: Það er allt opið.
„Ég held að ég muni halda
áfram með HUSH í einhvern tíma
en veit ekki hvort ég myndi spila á
tónleikum með efnið, nema þá að
ég myndi stækka HUSH í hljóm-
sveit. Eins er með hin verkefnin
mín, ef ég fæ einhverja geggjaða
hugmynd sem hentar þeim frekar,
þá fer ég í þá áttina.“
» Afbyggð, brjáluðkeyrsla, strúktúr-
laus hávaði á köflum.
Geðveikislegt.
Íslenskt öfgarokk er
við góða heilsu nú sem
endranær. Ein af at-
hyglisverðari útgáf-
unum úr þeim ranni
var á vegum HUSH,
dularfullt verkefni sem
Húsvíkingurinn Ey-
steinn Orri stendur að.
Femínískur Eysteinn
Orri fer vandrataða
stíga í rokkinu.
MENNING 43
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. JANÚAR 2020
Söngkeppnin
Vox Domini fer
fram í fjórða sinn
í dag og á morg-
un og er loka-
keppnin opin öll-
um og haldin í
Salnum í Kópa-
vogi á morgun
kl. 19. Keppnin
var haldin í
fyrsta sinn í jan-
úar 2017 af Félagi íslenskra söng-
kennara og er fyrst og fremst hugs-
uð fyrir söngvara og nemendur í
klassískum söng sem eru að stíga
sín fyrstu skref á ferlinum.
„Við sem söngkennarar höfum
leitast við að kynna íslenska tónlist
og tónskáld fyrir nemendum okkar,
og í ár er keppnin með því sniði að
við völdum eitt íslenskt tónskáld til
að taka þátt með okkur,“ segir í til-
kynningu og að tónskáldið sé Gunn-
steinn Ólafsson. Þurfa keppendur
að velja lög eftir hann og syngja.
Söngkeppnin Vox
Domini í Salnum
Gunnsteinn
Ólafsson
Tónleikar í röð-
inni Sígildir
sunnudagar
verða haldnir á
morgun kl. 16 í
Norðurljósasal
Hörpu. Yfirskrift
þeirra er Vinsæl-
ir sígildir ljóða-
söngvar og verða
flytjendur þær
Kristín Ragn-
hildur Sigurðardóttir sópran og
Arnhildur Valgarðsdóttir píanó-
leikari. Þær munu flytja þekkt,
rómantísk „lieder“-ljóð eftir Schu-
bert, Richard Strauss og Gabriel
Fauré. Miðasala fer fram á vef
Hörpu, tix.is og við innganginn.
Vinsælir, sígildir
ljóðasöngvar
Kristín Ragnhildur
Sigurðardóttir
ICQC 2020-2022
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
LOKAKAFLINN
Í SKYWALKER SÖGUNNI
SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI
6 ÓSKARSTILNEFNINGAR
ÓSKARS
TILNEFNINGAR11
Rás 2
FBL
LEIKSTÝRÐ AF CLINT EASTWOOD