Morgunblaðið - 25.01.2020, Blaðsíða 41
ÍÞRÓTTIR 41
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. JANÚAR 2020
Það vekur jafnan furðu mína
af hverju stærsta og fjölmenn-
asta íþróttahreyfing landsins
getur ekki verið með einföld mál
á hreinu eins og að skila inn leik-
skýrslum eftir leiki á vegum
sambandsins. Fyrir þá sem eru
ennþá í vafa um hvaða íþrótta-
hreyfingu ég er að tala um þá er
ég að tala um knattspyrnuhreyf-
inguna sem er jafnframt sú
tekjuhæsta af þeim öllum.
Mér blöskraði meira að
segja það illa yfir vinnubrögð-
unum um daginn að ég sá mig
tilneyddan til þess að senda
póst á yfirmann dómaramála hjá
sambandinu og hafði mótastjóra
KSÍ með í þeim skilaboðum.
Póstinn sendi ég á sunnudegi
eftir að markaskorarar úr föstu-
dagsleik í Reykjavíkurmótinu
höfðu ekki verið uppfærðir en ég
þurfti á endanum að senda þjálf-
urum liðanna skilaboð til þess
að fá markaskorarana staðfesta.
Það væri svo sem hægt að af-
saka þetta ef árið væri 874 og
Ingólfur Arnarson að hefja land-
nám við strendur Íslands. Ing-
ólfur bjó ekki svo vel, mér vit-
anlega, að vera með snjallsíma
af gerðinni iPhone eða Samsung
Galaxy eins og 99% þjóðarinnar
hafa aðgang að í dag. Sem betur
fer fyrir íslenskan fótbolta fara
ekki margir knattspyrnuleikir
fram á Hornströndum. Því ættu
dómarar KSÍ ekki að vera í mikl-
um vandræðum með að koma
sér í netsamband til þess að
fylla út sínar skýrslur.
Bæði KKÍ og HSÍ uppfæra
leiki innan sinna sambanda í
rauntíma ef svo má segja með
lifandi textalýsingu, þrátt fyrir
að vera mun minni sambönd en
KSÍ. Ég er ekki að biðja um neitt
slíkt hjá KSÍ; bara að það sé rétt
staðið að skýrslugerð og þær
séu uppfærðar í leikslok, eins og
á að teljast eðlilegt á þeim bæn-
um.
BAKVÖRÐUR
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
FRJÁLSAR
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Guðni Valur Guðnason, kringlukast-
ari úr ÍR, er að jafna sig eftir veik-
indi og meiðsli sem settu svip sinn á
síðasta keppnistímabil. Eins og
fram kom í viðtali við Guðna í
Morgunblaðinu 19. október var árið
2019 honum erfitt. Eftir að hafa far-
ið í aðgerð þar sem botnlanginn var
fjarlægður fékk hann lífhimnubólgu
og gat lítið gert í einn og hálfan
mánuð og lá lengi á sjúkrahúsi.
„Þegar ég fór að gera eitthvað og
kasta aðeins rifnaði liðband í nár-
anum sem var líklega út frá veik-
indunum enda var mikil sýking í
kviðarholinu. Fram yfir heims-
meistaramótið síðasta haust var ég
að glíma við þetta en ég fékk grænt
ljós á að hefja æfingar á fullu um
miðjan desember. Ég hef verið að
lyfta á fullu og reyna að styrkja
mig. Smám saman þarf ég að geta
hreyft mig eins hratt og ég get,“
sagði Guðni þegar Morgunblaðið
spjallaði við hann eftir setningu
Reykjavíkurleikanna.
Alþjóðlegu mótin telja
Guðni horfir nú fram á veginn.
„Ég er aðeins farinn að skoða mótin
sem eru í boði á árinu. Hefðbundin
vetrarkastmót eru í mars og
æfingabúðir eins og vanalega í apr-
íl. Líklega þyrfti ég að fara í aðrar
æfingabúðir í maí eða júní. Þá
myndi ég reyna að fara á nokkur
mót í kringum æfingabúðirnar til að
safna stigum fyrir Ólympíuleikana.
Svo geta plönin breyst ef maður
nær ólympíulágmarki snemma sum-
ars. Ef maður nær ekki lágmarkinu
er hægt að komast inn á stigum á
heimslista. Til að ná í góð stig þarf
maður að kasta langt á mótum með
sterkum erlendum keppendum,“
sagði Guðni. Hera má ráð fyrir að
fresturinn til að ná lágmarki sé
fram í byrjun júlí, en Ólympíu-
leikarnir í Tókýó hefjast 24. júlí og
lýkur 9. ágúst.
Guðni keppti á leikunum í Ríó
2016 og var eini Íslendingurinn á
HM í frjálsum í Doha á síðasta ári.
Ólympíulágmarkið er 66 metrar en
besti árangur Guðna er 65,53 frá
árinu 2018.
Guðni ætlar að keppa í kúluvarpi
á Reykjavíkurleikunum, en frjáls-
íþróttakeppni leikanna fer fram eft-
ir viku. Kringlukast er ekki innan-
hússgrein eins og íþróttaunnendur
þekkja.
„Ég verð með í kúlunni á RIG.
Það er alltaf gott á þessum árstíma
að lífga aðeins upp á tilveruna. Gera
eitthvað annað en að kasta í net og
sjá einhverja vegalengd. Við búum
ekki eins vel og kylfingarnir að vera
með herma til að kasta í þótt þeir
séu til enda eru þeir dýrir. Reykja-
víkurleikarnir eru alþjóðlegt mót og
erlendir keppendur mæta á svæðið.
Maður þekkir einhverja þeirra og
þetta er skemmtileg keppni,“ sagði
Guðni Valur enn fremur.
Horfir fram á veginn á ný
Guðni Valur Guðnason að komast í gang eftir erfitt ár 2019 Ólympíuleik-
arnir í sigtinu og alþjóðleg mót í sumar Kastar kúlu á Reykjavíkurleikunum
Ljósmynd/ÍSÍ
Annar Guðni Valur Guðnason hefur náð næstbestum árangri íslenskra
kringlukastara frá upphafi og er hér á palli á Smáþjóðaleikunum 2019.
Viðar Örn Kjartansson, landsliðs-
maður í knattspyrnu, gæti verið að
ganga til liðs við tyrkneska úrvals-
deildarfélagið Yeni Malatyaspor en
það var vefmiðillinn 433.is sem
greindi frá þessu í gær. Viðar hélt
til Tyrklands í gærmorgun til þess
að skoða aðstæður hjá ónefndu
tyrknesku félagi en samkvæmt
433.is er það Yeni Malatyaspor sem
situr í níunda sæti deildarinnar
með 24 stig. Viðar Örn er samn-
ingsbundinn Rostov í Rússlandi en
ætlar sér að yfirgefa félagið í þess-
um mánuði. bjarnih@mbl.is
Viðar að skrifa
undir í Tyrklandi?
AFP
Framherji Viðar Örn Kjartansson
er líklegast á leið til Tyrklands.
Guðrún Brá Björgvinsdóttir er í
harðri baráttu um sæti á Evrópu-
mótaröð kvenna í golfi 2020 eftir að
hafa leikið þriðja hring úrtökumóts-
ins á La Manga á Spáni í gær á þrem-
ur höggum yfir pari, 74 höggum.
Hún er nú í 14.-19. sæti þegar tveim-
ur hringjum er ólokið á samtals einu
höggi yfir pari en fimmtán efstu
keppendur af þeim 120 sem taka
þátt komast á Evrópumótaröðina.
Keppnin er mjög jöfn og Guðrún er
aðeins fjórum höggum á eftir Alice
Hewson frá Englandi sem er með
forystuna. vs@mbl.is
Tvísýn barátta
hjá Guðrúnu Brá
Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
Spánn Guðrún Brá Björgvinsdóttir
lýkur keppni á morgun.
HANDKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild kvenna, Olísdeildin:
Framhús: Fram – HK............................ L14
Vestmannaeyjar: ÍBV – KA/Þór........... L16
Origo-höllin: Valur – Stjarnan .............. L18
1. deild kvenna, Grill 66-deildin:
Framhús: Fram U – Stjarnan U ........... S14
Vestmannaeyjar: ÍBV U – Fjölnir ........ S14
Origo-höllin: Valur U – Grótta............... S18
KÖRFUKNATTLEIKUR
1. deild kvenna:
Hveragerði: Hamar – ÍR ....................... L16
Mustad-höll: Grindavík b – Tindastóll.. L16
Mustad-höll: Grindavík b – Tindastóll .. S16
Njarðtaksgryfjan: Njarðvík – Fjölnir .. S16
KNATTSPYRNA
Reykjavíkurmót karla:
Egilshöll: ÍR – KR............................. L15.15
Egilshöll: Þróttur R. – Fylkir ........... S17.15
Reykjavíkurmót kvenna:
Egilshöll: Valur – Víkingur R........... L17.15
Egilshöll: Fylkir – Þróttur R ............ S15.15
Fótbolti.net-mót karla:
Skessan: FH – Breiðablik................. L10.45
Akraneshöll: ÍA – Grótta .................. L11.30
Kópavogsvöllur: HK – ÍBV ................... L12
ÍSHOKKÍ
Íslandsmót karla, Hertz-deildin:
Akureyri: SA – Fjölnir ...................... L16.45
Íslandsmót kvenna, Hertz-deildin:
Akureyri: SA – Reykjavík ................. S16.45
REYKJAVÍKURLEIKAR
Badminton: Iceland International í TBR-
húsum í dag og á morgun.
Borðtennis í TBR-húsum í dag 15-18.
Hjólreiðar í Öskjuhlíð 16-19 í dag.
Júdó í Laugardalshöll 13-16 í dag.
Kraftlyftingar í Laugardalshöll 10-14 á
morgun.
Ólympískar lyftingar í Laugardalshöll
14-18 á morgun.
Sund í Laugardalslaug, úrslit 15.30 til 17
í dag og 15 til 16.30 á morgun.
Annað, sjá dagskrá á rig.is.
UM HELGINA!
Badmintonspilarinn Kári Gunn-
arsson er á meðal fyrstu Íslending-
anna sem keppa á Reykjavíkurleik-
unum þetta árið. Badmintonið var
ein þeirra greina sem fóru af stað
fyrir helgina en fyrri hluti leikanna
verður í fullum gangi í dag og á
morgun.
„RIG er mjög flott framtak. Mótið
gefur stig á heimslista en er eitt
þeirra sem gefa fá stig á heimslista
miðað við sterkari alþjóðleg mót.
Fyrir mig er rosalega skemmtilegt
að keppa á heimavelli og hafa vini,
fjölskyldu og fólk sem maður hefur
þekkt alla ævi í kringum sig. Það
getur verið einmanalegt fyrir Ís-
lending að fara um heiminn og
keppa í badminton. Ekki er sjálf-
gefið að fá stuðning á mótum erlend-
is,“ sagði Kári þegar Morgunblaðið
ræddi við hann í gær.
Seinni partinn í gær mætti Kári
Spánverjanum Tomas Toledano í
fyrstu umferð á RIG í TBR-húsinu
og tapaði eftir þrjár lotur: 11:21,
21:12 og 11:21. Kári var fyrir fram
metinn næststerkastur keppenda í
mótinu samkvæmt styrleikalistum
(ranking). Spánverjinn hafði áður
náð að hafa betur gegn Kára og úr-
slitin því ekki endilega mjög óvænt.
En vonbrigði fyrir Kára sem setti
stefnuna á sigur á heimavelli. „Aldr-
ei er auðvelt að vinna mót. Vinna
þarf fimm leiki og hér eru sterkir
keppendur.“
Kári tjáði Morgunblaðinu í gær,
áður en leikurinn fór fram, að hann
væri nú að hefja keppnistörn eftir
undirbúningstímabil. „Ég hef byggt
mig upp undanfarið fyrir síðustu
mánuði tímabilsins. Líkaminn er
svolítið þungur og þreyttur núna.
Framundan er því að vinna í
sprengikrafti og snerpu.
Keppt verður í tólf íþróttagrein-
um í dag og á morgun en síðari hluti
RIG hefst eftir tæpa viku. Þessa
helgina er keppt í badminton, borð-
tennis, dansi, hjólreiðum, hermi-
akstri, júdó, ólympískum lyftingum,
karate, kraftlyftingum, listskautum,
pílukasti og sundi. kris@mbl.is
Morgunblaðið/Eggert
Á lofti Kári Gunnarsson náði sér ekki á strik á Reykjavíkurleikunum í gær.
Tilbreyting að
vera á heimavelli
Keppt í tólf greinum um helgina