Morgunblaðið - 25.01.2020, Page 27

Morgunblaðið - 25.01.2020, Page 27
UMRÆÐAN 27 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. JANÚAR 2020 Óskar Bergsson fasteignasali s. 893 2499 Hildur Harðardóttir lögfr. og lgfs. s. 897 1339 Elín G. Alfreðsdóttir nemi til lögg. s. 899 3090 Sveinbjörn Sveinbjörnsson lögmaður s. 892 2804 Vilhjálmur Einarsson fasteignasali s. 864 1190 H a m r a b o r g 1 2 • 2 0 0 K ó p a v o g u r • 4 1 6 0 5 0 0 ÁRANGUR Í SÖLU FASTEIGNA www.eignaborg.is Eftir átta umferðir af þrett-án í A-flokki stórmótsins íWijk aan Zee í Hollandihafði hinn 16 ára gamli Írani Alireza Firouzsja, sem nú um stundir teflir undir fána FIDE, náð forystu ásamt Fabiano Caruana og var þá heilum vinningi á undan heimsmeistaranum Magnúsi Carl- sen. En hans beið erfitt verkefni í næstu tveimur umferðum; í níundu tapaði hann fyrir Magnúsi og í þeirri tíundu fyrir Caruana. Að sumu leyti minnti framganga hans á annan 16 ára gamlan pilt sem hafði heldur ekki tekið út allan sinn skákþroska á þessum aldri; Bobby Fischer tefldi glæsilega á köflum í áskorenda- mótinu 1959 en gegn tveimur verð- andi heimsmeisturum, Tal og Pet- rosjan, fékk hann aðeins einn vinning úr átta skákum. Eins og margir muna var heil- mikið brambolt í kringum skák Fir- ouzja og Magnúsar á HM í hraðskák á dögunum. Þegar skákin var tefld í Wijk var Magnús að slá met í hverri umferð og hefur nú teflt 117 kapp- skákir í röð án taps. Þeir sem vilja kynna sér betur handbragð og skákstíl Norðmanns- ins ættu kannski að veita því athygli að Magnús lagði stöðu Firouzja í rúst án þess að ráðast nokkru sinni til beinnar atlögu: Wijk aan Zee 2020; 9. umferð Alireza Firouzja – Magnús Carlsen Spænskur leikur 1.e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 Rf6 4. d3 Teflir til sigurs. Hann gat fengið upp þekktar en jafnteflislegar stöður Berlínarvarnarinnar sem hefjast með 4. 0-0 Rxe4 og nú 5. d4 eða 5. He1. 4. … d6 5. c3 a6 6. Ba4 Be7 7. 0-0 0-0 8. He1 He8 9. Rbd2 Bf8 10. h3 b5 11. Bc2 Bb7 12. d4 g6 13. a3 Rb8 14. d5 c6 15. c4 Rbd7 16. a4 Dc7 17. b3 Hec8 18. Ha2 bxc4 19. bxc4 a5 20. Rf1?! Fyrsta ónákvæmni hvíts. Ridd- aranum var betur valinn staður á b1 og halda síðan til a3. 20. … Ba6 21. Re3 Rc5 22. Rd2 cxd5 23. cxd5 Hab8 24. Ba3 Dd8 25. Df3 h5! Góður stöðulegur leikur sem hindrar –Rg4 og býr biskupnum at- hvarf á h6. 26. Haa1 Bh6 27. Hab1 Hxb1 28. Hxb1 Kg7 29. Ref1 h4 30. Re3 Bf4 Það er eins og Magnús nái að egna Firouzsja með þessum leik. 31. Ref1 Dc7 32. g3 hxg3 33. fxg3 Bh6 34. h4 Dd7! Það er aðeins svartur sem hagn- ast á opnun stöðunnar. Peðið á a4 er að falla, g4-reiturinn veikur og svörtu biskuparnir skjóta geislum sínum í allar áttir. 35. Kg2 Rxa4 36. Bxa4 Dxa4 37. Bxd6 Dd4! 38. Df2 Það var ekkert betra í boði. 38. … Dxf2+ 39. Kxf2 Bxf1! – og hvítur gafst upp. Svartur vinnur mann hverju svo sem hvítur leikur. Magnús og Caruana unnu báðir í 10. umferð og áður en lokasprett- urinn hófst í gær var staðan þessi: 1. Caruana 7 v. 2. Magnús Carlsen 6½ v. 3.-4. Van Foreest og So 6 v. 5.-6. Firouzja og Duda 5½ v. 7.-8. Giri og Dubov 5 v. 9.-11. Anand, Xiong og Artemiev 4½ v. 12.-13. Vitiugov og Yu 3½ v. 14. Kovalev 3 v. Sigurbjörn og Hjörvar efstir Sigurbjörn Björnsson vann Guð- mund Kjartansson í fimmtu umferð Skákþings Reykjavíkur, vann einnig sl. miðvikudag og er einn efstur þeg- ar þrjár umferðir eru eftir með fullt hús vinninga, sex vinninga. Guð- mundur Kjartansson og Vignir Vatnar Stefásson koma næstir með fimm vinninga. Hjörvar Steinn Grétarsson er efstur með þrjá vinninga af þremur í A-flokki MótX-mótsins. Ingvar Þ. Jóhannesson kemur næstur með 2½ vinning. Í B-riðli eru átta skákmenn í efsta sæti með 2½ vinning hver. Firouzja á enn margt ólært Skák Helgi Ólafsson helol@simnet.is Morgunblaðið/Ómar Hæfileikaríkur Alireza Firouzja við taflið á síðasta Reykjavíkurskákmóti. Guðmunda Elíasdóttir fæddist 23. janúar 1920 í Bolungarvík. Foreldrar hennar voru hjónin Elías Þórarinn Magnússon, f. 1878, d. 1923, formaður í Bol- ungarvík, og Sigríður Jens- dóttir, f. 1881, d. 1968. Guðmunda hóf söngnám við Konservatoríið í Kaupmanna- höfn árið 1939. Aðalkennari hennar var Dóra Sigurðsson prófessor. Hún stundaði einnig nám í París og New York. Hún söng í óperum og hélt tónleika á Íslandi og erlendis. M.a. söng hún fjórum sinnum í Hvíta húsinu í forsetatíð Eisenhowers. Guðmunda söng töluvert í útvarp og inn á hljómplötur. Guðmunda flutti alkomin til Íslands í upphafi áttunda ára- tugarins og lék eftir það tals- vert á sviði og í talsverðum fjölda kvikmynda jafnframt því að kenna söng í tónlistar- skólum og í einkatímum. Hún var heiðurslistamaður Alþingis frá 1995. Fyrri eiginmaður Guðmundu var Henrik Knudsen gull- smíðameistari, þau skildu. Börn þeirra voru Bergþóra, f. 1944, d. 1946, Hans Albert, f. 1947, d. 2009 og Sif Knudsen, f. 1950. Seinni eiginmaður Guð- mundu var Sverrir Kristjáns- son sagnfræðingur. Guðmunda lést 2. ágúst 2015. Merkir Íslendingar Guðmunda Elíasdóttir Nú finnur þú það sem þú leitar að á FINNA.is Á Seltjarnarnesi eru íbúar ánægðir með bú- setuskilyrði bæjar- félagsins, samkvæmt árlegri þjónustu- könnun sem Gallup gerir meðal sveitar- félaga landsins. Þjón- usta Seltjarnarness á heildina litið út frá reynslu og áliti íbúa nýtur verðskuldaðrar viðurkenningar. Á heildina litið er Sel- tjarnarnesbær oftast í efsta sæti með- al þessara stærstu bæjarfélaga lands- ins. Þessi jákvæða niðurstaða undir- strikar jákvætt viðhorf bæjarbúa til samfélagsþjónustunnar og er starfs- fólki og stjórnendum bæjarins hvatn- ing til að halda áfram á sömu braut. Seltjarnarnesbær leggur metnað sinn í að veita íbúum sínum góða þjónustu. Niðurstöður könnunar Gallups stað- festa að þau eftirsóknarverðu mark- mið eru að bera árangur. Ánægja barna- og fjölskyldufólks Ánægja íbúa barna- og fjöl- skyldufólks fær einnig áfram háa ein- kunn þegar kemur að þjónustu við barnafjölskyldur í sveitarfélaginu. Sel- tjarnarnesbær hefur lagt áherslu á að vera leiðandi í skóla-, æskulýðs- og íþróttastarfi á landsvísu. Það hefur lagt metnað í jöfn tækifæri fyrir alla og samhliða stuðlað að bættum árangri og vellíðan skólabarna. Eldri borgarar una hag sínum vel Ánægja eldri Seltirninga með þjón- ustu bæjarins mælist áfram mikil á landsvísu. Niðurstaðan endurspeglar festu í stjórnun þessa málaflokks en mikið kapp hefur verið lagt á að skipu- leggja nærþjónustu við aldraða í samráði við þá sjálfa með það að mark- miði að þeir eigi þess kost að búa sem lengst á eigin heimili. Í liðnu ári var opnað nýtt hjúkr- unarheimili „Seltjörn“ fyrir 40 íbúa. Aðstaða til íþrótta- iðkunar fyrsta flokks Ánægja bæjarbúa á Seltjarnarnesi helst áfram mikil þegar kem- ur að aðstöðu til íþróttaiðkunar í sveitarfélaginu, en þar lýstu 85% að- spurðra sig ánægð með aðstöðuna. Síðastliðið haust var nýtt fimleikahús tekið í notkun, ásamt stækkun á íþróttamiðstöðinni. Menningarlífið í blóma Bærinn fær einnig hæstu einkunn meðal þeirra nítján bæjarfélaga landsins, sem könnunin nær til, þegar íbúar Seltjarnarness láta í ljós ánægju sína með menningarlíf bæj- arins og gefa því hæstu einkunn. Aukin áhersla hefur verið lögð á þann málaflokk undanfarin ár með jákvæð- um árangri. Gæði umhverfis í hávegum höfð Það kemur ef til vill ekki á óvart en Seltjarnarnesbær er efstur að stigum meðal sveitarfélaganna þegar kemur að þjónustu í tengslum við sorphirðu. Enn fremur er mikill meirihluti ánægður með gæði umhverfis í ná- grenni við heimil sitt. Gott samstarf, betra samfélag Bæjarstjórn og starfsmenn bæj- arfélagsins leggja sig fram um að hlusta eftir hvaða þjónusta skiptir máli fyrir bæjarbúa og hefur sú stefna skilað bæjarfélaginu mörgum sinnum fyrsta sætið þegar kemur að spurningunni um þjónustustig bæj- arins. Að baki þeirri aðferðafræði liggur sú sannfæring stjórnenda bæj- arins að fyrirmyndarsamstarf skili sér í betra samfélagi og hagkvæmari rekstri. Seltirningar ánægð- ir með bæjarfélagið Eftir Ásgerði Halldórsdóttur Ásgerður Halldórsdóttir » Á heildina litið er Seltjarnarnesbær oftast í efsta sæti meðal þessara stærstu bæj- arfélaga landsins. Höfundur er bæjarstjóri. asgerdur@seltjarnarnes.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.