Morgunblaðið - 25.01.2020, Page 33

Morgunblaðið - 25.01.2020, Page 33
MINNINGAR 33 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. JANÚAR 2020 ✝ Ásgerður Arn-ardóttir fædd- ist á Melum í Fljóts- dal 9. september 1946. Hún andaðist á hjúkrunarheim- ilinu Skjólgarði á Höfn í Hornafirði 19. janúar 2020. Foreldrar henn- ar voru hjónin Örn Ingólfsson og Gróa Eyjólfsdóttir. Systkini Ásgerðar eru Ingólfur, f. 1944, maki Sigurborg Gísla- dóttir, f. 1943; Örn, f. 1949, maki Guðlaug Hestnes, f. 1951; Reyn- ir, f. 1956, maki Svandís Guðný Bogadóttir, f. 1954; og Elín, f. 1958, maki Lúðvík Matthíasson, f. 1954. Eiginmaður Ásgerðar er Gunnar Ásgeirsson, f. í Þinga- nesi í Nesjum 3. júní 1943. Börn foreldrum sínum til Hafnar í Hornafirði. Ásgerður og Gunn- ar gengu í hjónaband 31. desem- ber 1965. Þau byggðu hús að Kirkjubraut 30 á Höfn og bjuggu þar alla tíð síðan. Fyrst í stað starfaði Gunnar sem sjó- maður en árið 1972 stofnaði hann útgerðarfélagið Þinganes ásamt bróður sínum og mági. Árið 1999 tók félagið höndum saman við útgerðarfélagið Skinney um kaup á útgerðar- og fiskvinnslufyrirtækinu Borgey. Síðan þá hefur sameiginlegt fé- lag verið rekið undir nafninu Skinney-Þinganes. Ásgerður stundaði ýmis störf samhliða heimilisstörfum og tók alla tíð þátt í ýmsu sem laut að útgerð- inni. Hún var virk í félagsstarfi á Höfn, sat meðal annars í stjórn slysavarnardeildarinnar Fram- tíðarinnar um árabil. Ásgerður var fyrst kvenna kjörin til setu í hreppsnefnd Hafnarhrepps, kjörtímabilið 1982-1986, af lista Framsóknarflokksins. Útför Ásgerðar fer fram frá Hafnarkirkju í dag, 25. janúar 2020, klukkan 11. Ásgerðar og Gunn- ars eru 1) Arnþór, f. 1965, maki Erla Hulda Halldórs- dóttir, f. 1966. Þau eiga tvö börn: Ás- geir Örn, f. 1990, sambýliskona Soffía Scheving Thorsteinsson, f. 1990. Barn þeirra: Dagur, f. 2018. Eik, f. 1998. 2) Ásgeir, f. 1967, maki Eygló Illugadóttir, f. 1965. Þau eiga þrjú börn: Gunn- ar, f. 1991. Tómas, f. 1995. Mar- grét, f. 2000. 3) Elín Arna, f. 1969, maki Kristinn Pétursson, f. 1968. Þau eiga þrjú börn: Þór- hildur, f. 1995. Ragnheiður Ása, f. 2000. Helena Gróa, f. 2001. Ásgerður ólst upp á Vopna- firði frá þriggja ára aldri til árs- ins 1959 þegar hún fluttist með „Jæja Erla mín, eigum við ekki að koma á vigtina?“ Ég horfi á Ásu í forundran og hugsa hratt. Hún er mamma kærasta míns, há og grannvaxin, en ég lágvaxin og svolítið mjúk. Hvað meinar hún eiginlega? Loks styn ég upp: „Hefurðu þyngst?“ Mikið hefur verið hlegið að þessu samtali síðan það átti sér stað fyrir áratugum því auðvitað var það ekki baðvogin sem um var rætt heldur hafnarvogin þar sem afli báta var vigtaður og lesa mátti aflatölur á miða í gluggan- um. Hvernig átti sveitastelpan ég að vita þetta? Sjómannskonan fylgdist auðvitað vel með afla- brögðum og leiddi mig smám saman inn í þennan heim. Samtalið fór fram við eldhús- borðið á Kirkjubraut þar sem Öræfajökull blasir við út um gluggann. Eldhúskrókurinn var samkomustaður því þangað komu daglega einhverjir úr stórfjöl- skyldunni, vinkonur eða sam- starfsfólk. Kaffi rann sífellt á könnuna og kaka var á borði. Ása naut þess að tala við fólk, hún var einstaklega minnug og hafði góða frásagnargáfu. Við eldhúsborðið heyrði ég af æskuárunum á Vopnafirði og fólkinu hennar í Fljótsdal, af stúlkunni sem fór í húsmæðraskóla en entist ekki veturinn því ástin tók völdin, af ungu móðurinni sem var 23 ára með þrjú börn og mann á sjó. Það var meira en að segja það að vera ein með börnin, bera ábyrgð á uppeldi og heimili. Ása vann ýmis störf eins og gengur en vann um alllangt skeið á dvalarheimilinu Skjólgarði. Þar útvegaði hún mér vinnu sumarið 1988 þegar við Arnþór héldum til fyrir austan, hann að mestu á sjó. Ég eyddi því mörgum stundum við eldhúsborðið hjá Ásu, fór með henni á rúntinn út í Ósland eða við skruppum upp í Lón til ömmu Gróu, kíktum jafnvel á aurana að horfa eftir fallegum steinum. Í Lóni áttu þau Gunnar athvarf bæði áður og eftir að þau tóku við bústað Gróu. Samt fannst mér Vopnafjörður eiga dýpstar rætur í hjarta Ásu og það sá ég vel þeg- ar ég kom þangað í fyrsta sinn fyrir um tíu árum. Við Arnþór vorum á ferð um Norðausturland og Ása tók ekki í mál að við renndum á Vopnafjörð án henn- ar. Þau Gunnar hittu okkur þar og Ása naut þess að sýna okkur staði sem voru henni kærir og heimsækja ættingja. Þetta er dýrmæt ferð í endurminningunni. Ása var einstaklega flink hann- yrðakona. Hún snaraði fram á barnabörnin útprjónuðum peys- um sem dáðst var að enda engar misfellur að sjá. Og hún hafði yndi af útsaumi. Á heimili okkar Arnþórs hangir litla riddaratepp- ið (með gamla krosssauminum), sem hún tók nokkrar vikur í að sauma handa okkur (og fór í hægri öxlinni!). Ása lagði metnað í að hafa fal- legt í kringum sig. Allt var í röð og reglu, meira að segja fiskiboll- urnar voru allar jafn stórar og eins í laginu! Tengdamóðir mín var líka glæsileg kona, hvort sem hún var í einhverjum af sínum fallegu kjólum eða leggings og vindjakka á göngu á aurunum, teinrétt í baki, dökkt hárið fallega lagt. Það var þyngra en tárum taki hve fljótt krabbameinið tók hana frá okkur, aðeins fáeinum mán- uðum eftir að hún greindist. En við leiðarlok er ég þakklát fyrir ást hennar og umhyggju, ekki síst gagnvart börnunum okkar Ásgeiri Erni og Eik, sem eyddu löngum stundum hjá ömmu og afa. Ásu verður sárt saknað en missir Gunnars tengdaföður míns er mestur enda höfðu þau Ása gengið saman veginn næstum 57 ár. Gunnari og öllum ástvinum Ásu sendi ég innilegar samúðar- kveðjur. Erla Hulda Halldórsdóttir. Amma Ása var einstaklega hjartahlý og góð við okkur barna- börnin. Hún átti einstakt sam- band við hvert og eitt okkar og hvort sem við vorum á Höfn, í Reykjavík eða úti í heimi vissi hún hvað var að gerast í lífi okk- ar. Við upplifðum aðeins ást og væntumþykju frá henni þó að hún gæti alveg fussað yfir misgáfu- legum uppátækjum okkar og lát- ið okkur heyra þegar henni mis- líkaði eitthvað. Amma lagði mikið upp úr því að öllum í kringum sig liði vel og við nutum heldur betur góðs af því. Hvert okkar hefur borðað nýsteiktar kleinur og pönnukökur í hundraðatali og dagur hjá ömmu og afa endaði alltaf með gómsætu ísblómi úr frystinum. Eins og alkunna er voru dyrn- ar á Kirkjubraut 30 alltaf opnar og gestagangur mikill. Skipst var á sögum yfir kaffibolla og kökum en við barnabörnin fylgdumst með og lærðum mikilvægi þess að tala við fólk, halda góðu sambandi og bera virðingu hvert fyrir öðru. Með fordæmi sínu kenndi amma okkur líka að halda heimili, vera alltaf vel til höfð og ekki segja að eitthvað væri „ógeðslega“ gott. Ömmu fannst alltaf jafn skemmtilegt að rifja upp gullkorn og sögur um okkur barnabörnin og þá skipti engu máli hvort það voru tvær vikur eða 27 ár síðan, amma mundi það og ekki við. Bústaðurinn í Lóni var óspart nýttur til að verja tíma með fjöl- skyldunni og þar voru skapaðar ótal minningar. Langar bílferðir inn eftir aurum í torfærum og að tína steina – en ömmu fannst hið síðarnefnda langtum skemmti- legra – er ein af okkar sælustu minningum. Eftir að amma veiktist héldum við frændsystkinahitting sem hafði verið lengi í pípunum. Við byrjuðum daginn á því að hittast öll á Landspítalanum til þess að heilsa upp á ömmu. Hún brosti svo breitt þegar hún sá okkur öll samankomin, enda var fjölskyld- an henni allt. Elsku amma okkar, þegar við hugsum til baka og minnumst tíma okkar saman fyllumst við gleði og þakklæti. Þú ert fyrir- mynd okkar og allt það sem þú kenndir okkur mun fylgja okkur um ókomna tíð. Við viljum þakka þér fyrir að við eigum hvort ann- að og hversu náin við erum en við munum halda áfram að rækta samband okkar alla tíð. Þú munt lifa áfram í minningum okkar, enda kenndir þú okkur öllum hve dýrmætt það er að muna. Ásgeir Örn, Gunnar, Þórhildur, Tómas, Eik, Ragnheiður Ása, Margrét, Helena Gróa. Ása mágkona var einstaklega trygglynd og góð vinkona. Jafn- framt var hún sérstaklega bón- góð og gott að leita til hennar. Fáa þekkjum við eins frænd- rækna og hún var. Ása fylgdist vel með sínu fólki, vinum og kunningjum og sóttist eftir að vita hvernig þeim farnaðist. Um- hyggjusemi hennar kom vel fram í fallegu og vönduðu prjónaflík- unum sem hún gladdi fólkið í kringum sig með við ýmis tæki- færi. Oftar en ekki voru þessar hlý- legu gjafir, sumar hrein listaverk, tilbúnar áður en viðkomandi kom í heiminn. Börnunum okkar og barnabörnum þótti vænt um gjaf- irnar og skynjuðu væntumþykj- una sem þær báru með sér. Hún var einlægur vinur barnanna okkar, sem hændust að henni og það leyndi sér ekki að þeim leið vel í návist hennar. Eftir að þau fóru að heiman kom ekki annað til greina en að líta við hjá Ásu í heimsóknum á Hornafjörð. Gæfumanneskja var Ása og ung bundust þau Gunnar tryggð- arböndum og tókust fljótlega á hendur þá ábyrgð að stofna fjöl- skyldu og koma sér upp heimili. Börnin og fjölskyldur þeirra bera þess vitni að hafa fengið góðan undirbúning út í lífið. Þau hjónin voru samrýnd og studdu hvort annað vel í öllu sem þau tóku sér fyrir hendur. Ása og Gunnar ræktuðu garðinn sinn vel í víðum skilningi og lögðu sig fram um að bæta og snyrta umhverfið í kringum sig og ekki síður að leggja samfélaginu lið á margan hátt. Sjómannskonunni rann blóðið til skyldunnar og tók hún virkan þátt í starfi Slysavarnafélaganna alla tíð og fyrir framlag hennar og þátttöku í félaginu var hún sæmd gullmerki þess. Ása var einn dyggasti stuðn- ingsmaður knattspyrnunnar þeg- ar börnin og barnabörnin voru að keppa. Hún taldi ekki eftir sér löng ferðalög, jafnvel milli lands- hluta, til að missa ekki af kapp- leikjum þeirra og styðja þau og hvetja. Ása og Gunnar hafa sýnt uppbyggingarstarfi knattspyrn- unnar mikinn áhuga og stutt og styrkt vel frá fyrstu tíð, sem sam- félagið á Hornafirði hefur notið góðs af og mun njóta áfram. Ása og Gunnar voru höfðingjar heim að sækja og nutum við fjöl- skyldan þess í ríkum mæli, hvort sem var í sumarhúsinu þeirra í Stafafellsfjöllum eða á Kirkju- brautinni. Alltaf var vel útilátið bakkelsi á borðum og ekki skorti umræðuefni. Fyrst þurfti að fá fréttir af fólkinu okkar en svo var rætt um allt milli himins og jarð- ar. Ása var þægileg og hrein- skiptin í öllum samskiptum en gat haft ákveðnar skoðanir á mönn- um og málefnum. Fimmtudagskaffifundir á Kirkjubrautinni voru fastir liðir þar sem saman komu nokkrar vinkonur hennar og stundum nokkrir nákomnir karlar. Það er bjart yfir minningu Ásu og ánægjulegum og eftirminni- legum stundum með þeim hjón- um í gegnum tíðina. Fyrir það og umhyggjusemi gagnvart börnum okkar og fjölskyldum þeirra er- um við afar þakklát. Gunnar, Arnþór, Ásgeir, Elín Arna og fjölskyldur þeirra hafa tekist á við erfiða daga undanfar- ið af aðdáunarverðri samheldni og æðruleysi. Við biðjum þeim guðsbless- unar og megi góðar og fallegar minningar vera þeim huggun í sorginni. Ásta Ásgeirsdóttir. Albert Eymundsson Ásgerður Arnardóttir HINSTA KVEÐJA Elsku amma Ása. Þú sem elskaðir alla svo heitt, þú sem fyrirgafst öll- um. Nú ertu farin á góðan stað, þar sem þú fylgist með mér með bros á vör. Manneskju með hjarta eins og þitt er erfitt að finna. Ég er stolt af því að hafa alist upp í faðmi þínum og ég mun þér aldrei gleyma. Þú ert svo falleg. Helena Gróa Kristinsdóttir. Sálm. 6.3 biblian.is Líkna mér, Drottinn, því að ég er magnþrota, lækna mig, Drottinn, því að bein mín tærast af ótta. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, KRISTJANA JÓNSDÓTTIR, hjúkrunarheimilinu Grund, áður Eiðismýri 30, lést miðvikudaginn 8. janúar. Útför hennar fer fram frá Seltjarnarneskirkju fimmtudaginn 30. janúar klukkan 13. Þökkum starfsfólki á hjúkrunarheimilinu Grund sérstaklega góða umönnun og hlýhug. Ólafur Haukur Ólafsson Elín Arna Arnardóttir Hannam Valdimar Ólafsson Margrét Steinunn Bragadóttir Guðrún Ingimundardóttir Þórleif Drífa Jónsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Davíð útfararstjóri 551 3485 - www.udo.is Óli Pétur útfararstjóri Faðir minn, bróðir okkar og mágur, JÓN INGI BJARNÞÓRSSON verkamaður, lést á heimili sínu 6. janúar. Útförin fer fram frá Hveragerðiskirkju miðvikudaginn 29. janúar klukkan 13. Bjarnþór Jónsson Ómar Bjarnþórsson Hanna Þóra Friðriksdóttir Guðlaug Bjarnþórsdóttir Davíð Jóhannesson Bjarnþór Bjarnþórsson Jóna Einarsdóttir og fjölskyldur Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma, systir og mágkona, ÁSLAUG SÆUNN SÆMUNDSDÓTTIR, lést 17. janúar á Landspítalanum Fossvogi. Útförin fer fram frá Selfosskirkju fimmtudaginn 30. janúar klukkan 13. Guðmundur Svavar Valgarðsson Íris Huld Guðmundsdóttir Gestur Sigurðsson Margrét S. Frímannsdóttir Jón Gunnar Ottósson Helga Anna Hannesdóttir Sævar Erlendsson Inga Hanna Hannesdóttir Ómar Jóhannesson Hafdís Hannesdóttir Hjörtur Sæmundsson Sigrún Gunnarsdóttir barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabarn Eiginkona, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, ANNA GUÐRÚN TRYGGVADÓTTIR kennari, Heiðargerði 46, lést á Droplaugarstöðum þriðjudaginn 21. janúar. Útförin fer fram frá Grensáskirkju föstudaginn 31. janúar klukkan 13. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast Önnu Guðrúnar er bent á Mæðrastyrksnefnd. Bjarni Guðnason Tryggvi Bjarnason Erna Eyjólfsdóttir Gerður Bjarnadóttir Jón Steindór Valdimarsson Auður Bjarnadóttir Unnur Bjarnadóttir barnabörn og barnabarnabörn Lífsförunautur okkar, sjómaðurinn og sagnameistarinn, HALLDÓR HERMANNSSON, skipstjóri frá Ísafirði, lést á heimili sínu miðvikudaginn 22. janúar. Hann verður jarðsunginn frá Ísafjarðarkirkju laugardaginn 1. febrúar klukkan 14. Katrín Gísladóttir Bergljót Halldórsdóttir Gunnar Halldórsson Ragnheiður Halldórsdóttir Rannveig Halldórsdóttir Gísli Halldór Halldórsson Hermann Jón Halldórsson Guðmundur Birgir Halldórsson tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.