Morgunblaðið - 25.01.2020, Qupperneq 34

Morgunblaðið - 25.01.2020, Qupperneq 34
34 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. JANÚAR 2020 Kveðja frá Háskólanum á Akureyri Solveig Hrafns- dóttir hóf störf sem námsráð- gjafi við Háskólann á Akureyri haustið 1995, en hafði starfað Sólveig Hrafnsdóttir ✝ SólveigHrafnsdóttir fæddist 30. júní 1956. Hún lést 10. janúar 2020. Útför Sólveigar fór fram 23. janúar 2020. að kynningarmál- um við skólann áð- ur. Solveig var fyrsti námsráðgjafi Háskólans á Akur- eyri. Ýmislegt ann- að fylgdi starfinu svo sem umsjón með endurmennt- un, námskeiðahaldi og skipulagningu málstofa á vegum HA. Ennfremur sá Solveig um alþjóðasamskipti. Meginstarfið var alltaf náms- ráðgjöf sem fólst í að leiðbeina nemendum og tilvonandi nem- endum um val á námi, leiðsögn varðandi námsframvindu og bætt vinnubrögð, sem og per- sónuleg ráðgjöf. Velgengnis- vika var fyrst haldin á vegum náms- og starfsráðgjafar haust- ið 2000 og hefur haldið sér til dagsins í dag sem nýnemadag- ar á hverju hausti. Árið 2001 voru gerðar skipu- lagsbreytingar í háskólanum og varð staða námsráðgjafa þá 100% starf og önnur mál færð- ust á hendur annarra. Solveig starfaði í mörgum nefndum og starfshópum fyrir skólann þar sem tekin voru fyr- ir gæðamál, jafnréttismál og al- þjóðamál, en umfram allt starf- aði hún að málum sem tengdust hagsmunum nemenda. Og það er óhætt að segja að Solveig var ötull og öflugur talsmaður nemenda, og stuðlaði hún að velgengni skólans al- mennt. Besta viðurkenning á því kom árið 2013 þegar nem- endur heiðruðu hana sérstak- lega fyrir störf sín. Sem samstarfskona okkar hér við HA var Solveig sterk og skemmtileg persóna sem setti svip sinn á skólann. Sam- töl um málefni líðandi stundar, pólitík, nemendur og um sam- félagið í heild sinni, koma strax upp í hugann þegar ég hugsa til baka. Solveig hafði mikinn áhuga á söng, var enda ágæt söngkona, og starfaði meðal annars með Kvennakór Akureyrar. Jafnframt var hún söngvari HA-bandsins, hljóm- sveitar sem starfaði um árabil innan Háskólans á Akureyri og kom fram á helstu skemmt- unum starfsfólks og jafnvel nemenda. Solveig hafði mikil áhrif á þá sem í kringum hana voru. Skemmtilegasta dæmið er að báðir synir hennar, Sindri og Orri Kristjánssynir, hafa lært sín fræði við Háskól- ann á Akureyri og tekið virkan þátt í hagsmunabaráttu nem- enda, sem formenn nemenda- félaga og fulltrúar nemenda á hinum ýmsu sviðum skólans. Sjaldan fellur eplið langt frá eikinni. Umfram allt var Solveig eit- ilhörð baráttumanneskja fyrir Háskólann á Akureyri og tilvist hans sem öflugs háskóla utan höfuðborgarsvæðisins. Nýlega sendi hún hvatningu til sam- starfsfólks síns sem ég mun lengi minnast hennar fyrir, en þar kemur fram að HA hafi alltaf verið samfélag fólks sem brenni fyrir því að hlutir gangi upp og að menntamál, mennta- pólitík og góð grunnmenntun þjóðar sé óheyrilega mikilvæg. Mér þykir þessi setning lýsa hug hennar til skólans, nem- enda og samstarfsfólks einstak- lega vel. Við samstarfsfólk Sol- veigar munum minnast hennar með því að berjast áfram fyrir öflugum háskóla. Solveig var sannarlega einn af frumkvöðl- um Háskólans á Akureyri. Við söknum góðs vinnufélaga sem kvaddi okkur alltof snemma. Fyrir hönd starfsfólks og nemenda sendum við Kristjáni, eiginmanni hennar, sonum þeirra, ættingjum og vinum okkar dýpstu samúðarkveðjur. Eyjólfur Guðmundsson, rektor Háskólans á Akureyri. ✝ Jón Pálssonvar fæddur á Siglufirði 22. febr- úar 1942. Hann lést á Heilbrigðisstofn- un Suðurlands á Selfossi 18. janúar 2020. Foreldrar hans eru Auður Magnea Jónsdóttir, hús- móðir og verslun- arkona frá Sauðár- króki, f. 21. apríl 1921 og Páll Magnússon, bílstjóri frá Grund í Svarfaðardal, f. 21. mars 1918, d. 23. júlí 1974. Þau hófu sinn búskap á Siglufirði og bjuggu þar til ársins 1964 þegar þau fluttu til Akureyrar, þar sem þau bjuggu alla tíð síðan, lengst af í húsi sínu í Rauðumýri 16. Systkini Jóns eru: Guðný, f. 1943, fyrrverandi kennari á Höskuldssyni. Þeirra synir eru Jón Auðunn, Andrés Már og Magnús Páll. Þau slitu sam- vistir. Núverandi sambýlis- maður er Gísli Eiríksson, f. 1963. Börn hans af fyrra hjóna- bandi eru Eiríkur og Auður Anna. Hermann, f. 17. sept- ember 1970. Kvæntur Önnu Kristínu Jensdóttur. Dætur þeirra eru Sunna Björk og Auð- ur Anna. Dætur Önnu Kristínar af fyrra sambandi eru Frið- gerður og Jenný Katarína. Jón lærði rafvirkjun við Iðn- skólann á Siglufirði og starfaði næstum allan sinn starfsaldur að iðn sinni hjá ýmsum fyr- irtækjum, bæði í Reykjavík og í Þorlákshöfn. Hann var félagi í Kiwanisklúbbnum Ölver í Þor- lákshöfn og á árum áður í Hestamannafélaginu Háfeta og Björgunarsveitinni Mannbjörg. Jón verður jarðsunginn frá Þorlákskirkju í Þorlákshöfn í dag, 25. janúar 2020, klukkan 14. Siglufirði, Þórunn, f. 1945, hár- greiðslumeistari á Akureyri, Unnur Björk, f. 1946, fyrr- verandi verslunar- kona á Akureyri, Magnús, f. 1955, félagsráðgjafi í Reykjavík. Jón kvæntist 3. desember 1963 eft- irlifandi eiginkonu sinni, Önnu Lúthersdóttur frá Siglufirði. Hún starfaði sem leiðbeinandi og forstöðukona í Þorlákshöfn. Foreldrar Önnu voru Lúther Einarsson og Ok- tavía Lovísa Friðriksdóttir á Siglufirði. Börn Jóns og Önnu eru: Auð- ur, f. 17. nóvember 1964, d. 8. desember 1979. Þórunn, f. 19. ágúst 1966. Hún var gift Haraldi Hann Jón bróðir minn er genginn á vit feðra sinna eftir stutt en snörp veikindi. Hann tók því af æðruleysi að hverfa af sjónarsviðinu og gekk frá öllu sem þurfti með Önnu konu sinni og börnunum. Alltaf jafn samviskusamur og nákvæmur. Hann var stoð mín og stytta þegar ég flutti til Reykjavíkur til að ganga í skóla og þegar ég eignaðist strákana mína voru þau hjónin boðin og búin að aðstoða við pössun og flutninga og hvað sem til þurfti. Við fluttum aust- ur fyrir fjall á svipuðum tíma og höfðum mikið samband alla tíð. Jón hafði mikinn áhuga á náttúru Íslands og einn morg- un gat ég hringt eldsnemma í hann og tilkynnt honum að ég hefði heyrt að byrjað væri að gjósa nærri byggð. Hélt kannski að nú væri farið að gjósa á Reykjanesinu. Hann trúði mér varla en svo kom í ljós að þetta var Vest- mannaeyjagosið sem var að hefjast og ég hafði heyrt Ómar Ragnarsson segja frá í útvarp- inu. Þetta var nú eitthvað sem Jón hafði áhuga á og fylgdist með. Þau hjón urðu fyrir þeirri sáru reynslu að missa elsta barnið sitt 15 ára gamla dóttur og fyrir nokkrum árum missti ég elsta barnið mitt og nú er móðir mín á nítugasta og ní- unda aldursári að missa sitt elsta barn. Undarleg þessi ör- lög okkar. Ég vil þakka bróður mínum alla hans góðu hjálp og umhyggju í minn garð og barnanna. Kannski við hittumst öll fyrir hinum megin og getum þá rifjað upp gömlu árin á Siglufirði þegar þar ríkti nótt- laus voraldarveröld á síldar- plönum og miðnætursólin litaði gluggana í bænum eldrauða. Minningin lifir. Guðný Pálsdóttir. Það fylgdi því ákveðin ör- yggiskennd fyrir okkur skötuhjúin og foreldra okkar, þegar við ung að árum ákváðum að flytjast til Þorláks- hafnar, að vita af Jóni Páls og Önnu Lú á staðnum. Þó að samgangur heimilanna hafi ekki verið daglegur og stundum hafi liðið vikur og jafnvel mánuðir milli samveru- stunda, einkum í seinni tíð, var alltaf gott að hittast og kært á milli fjölskyldnanna. Fyrir það langar okkur að þakka nú þeg- ar Jón hefur kvatt eftir stutta en snarpa baráttu við krabba- mein. Segja má að samskiptin hafi verið á ýmsum sviðum. Frænd- semin vó þar þyngst og margar minningar skjóta upp kollinum frá bernskuárum og heimsókn- um til Jóns og Önnu hér fyrir sunnan. Eftir að við settumst að í Þorlákshöfn fengum við að taka þátt í fjölskyldustundum með þeim og Þórunni, Hemma og fjölskyldum. Áramótin á Sel- vogsbrautinni koma upp í hug- ann, barnaafmælin og fleiri veislur, svo ekki sé minnst á kaffibolla og rökræður við eld- húsborðið. Þessar stundir eru nú afar dýrmætar. Við Jón störfuðum einnig saman um árabil við lúðueld- isstöðina Fiskey hér í Þorláks- höfn. Það voru góðir tímar enda merkileg starfsemi og skemmtilegur vinnustaður. En það væri ósatt ef ég segði að við frændurnir hefðum alltaf verið sammála um hlutina. Að vinna með Jóni var lærdóms- ríkt. Hann var skarpgreindur, rökfastur og fylginn sér en líka fjandanum þrjóskari! Hann var traustur vinnufélagi, samvisku- samur og glöggur á lausn vandamála. Samstarfsárin okkar í fisk- eldinu eru nú dýrmæt minning um samband og samskipti okk- ar Jóns, samskipti sem líklega hafa haft meiri áhrif á mig en ég geri mér grein fyrir. Það er nefnilega stundum haft á orði hér á heimilinu við ákveðnar aðstæður að það sé „Jón í karl- inum“. Það skilja allir sem til þekkja hvað átt er við með því! Fyrst og síðast var Jón okk- ur góður. Til hans og Önnu höf- um við alltaf getað leitað og gott að eiga þau og fólkið þeirra að. Við komum til Jóns aðeins fáum tímum fyrir andlát hans. Hann var þrotinn að kröftum og þreyttur. Þegar við tókum hvort í sína hönd hans að skiln- aði tók hann furðu þétt á móti og hélt í dágóða stund. Það sagði okkur meira en þúsund orð og var táknrænt fyrir það sem hann var okkur alla tíð. Fyrir samfylgdina erum við þakklát. Við vottum Önnu, Þór- unni, Hermanni og fjölskyldum þeirra okkar dýpstu samúð. Guð blessi minningu Jóns Pálssonar. Sigurður Örn og Sigþrúður. Kynni okkar Ingu við þau hjón Jón og Önnu hófust þegar þau fluttu til Þorlákshafnar ár- ið 1974 ásamt þremur börnum sínum, þeim Auði, Hermanni og Þórunni. Strax tókst með okkur góður vinskapur sem haldist hefur síðan. Nú er hann Jón fallinn frá eftir stutta og snarpa bar- áttu við krabbamein. Það velkist enginn í vafa um hvaðan þau hjón komu því mað- ur hefur oftast nær ekki talað lengi við Siglfirðing þegar hann hefur komið því að hvaðan hann er. Þannig var einnig far- ið með Jón, hann var mjög stoltur af siglfirskum uppruna sínum. Jón var lærður rafvirki og ákaflega vel inni í öllu sem því fagi við kom og handlaginn. Jón var einnig afar hjálpsamur og greiðvikinn vinur. Við Inga nutum oft hjálpsemi hans, sér- lega eftir að ég veiktist. Í end- urhæfingu minni þurfti ég að æfa mig í að ganga en það gat ég ekki einn. Jón bauðst þá til að fara með mér upp á íþrótta- völl og ganga á eftir mér og halda í beltið sem ég hafði utan um mig, tilbúinn að grípa í það ef ég ætlaði að fara á hausinn. Svona gengum við fram og til baka. Jón hafði gott auga fyrir því sem við vorum að gera og kom með góðar ábendingar um það sem ég mætti gera öðruvísi og var það oftast mjög gott. Við Jón áttum oft skemmti- legar samræður um menn og málefni, þó ekki höfum við allt- af verið sammála. Hann hafði alla tíð ákveðnar skoðanir og hélt sig þétt að þeim. Við Inga þökkum Jóni trausta vináttu í gegnum árin og sendum Önnu, Auði móður Jóns, Hermanni, Þórunni og fjölskyldum þeirra innilegar samúðarkveðjur. Þorleifur Björgvinsson. Jón Pálsson Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur hlýhug, samúð og vinarhug vegna andláts ástkærs eiginmanns, föður, tengdaföður, afa og langafa, SÆVARS BRYNJÓLFSSONAR skipstjóra, Pósthússtræti 3, Keflavík. Einnig þökkum við öllum þeim sem af alúð og fagmennsku studdu hann í veikindum hans. Ingibjörg Hafliðadóttir Bryndís Sævarsdóttir Einar Þ. Magnússon Hafliði Sævarsson Jenný Lovísa Þorsteinsdóttir Brynjólfur Ægir Sævarsson Áslaug Ármannsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför elskulegrar móður okkar, tengdamóður og ömmu, SIGRÍÐAR JÓHANNSDÓTTUR Ljárskógum 25. Jóhanna Björnsdóttir Óskar Bergsson María Björnsdóttir Þór Bjarkar Lopez Björn Leví Óskarsson Sigurður Darri Óskarsson Þóra Björk Þórsdóttir Jóhann Bjarkar Þórsson Innilegar þakkir fyrir hlýhug og samúð við andlát og útför ástkærs eiginmanns, föður, tengdaföður, sonar og afa, ARNAR FRIÐRIKS CLAUSEN. Sérstakar þakkir færa aðstandendur starfsfólki Mánateigs, hjúkrunarheimilis Hrafnistu, fyrir góða umönnun. Helga Theodórsdóttir Þóra Björg Clausen Bjarnólfur Lárusson Ragnar Örn Clausen Þórhildur Ásmundsdóttir Þóra Hallgrímsson Björgólfur Guðmundsson og barnabörn Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, JÚLÍA GUNNARSDÓTTIR, lést sunnudaginn 12. janúar á hjúkrunarheimilinu Skjóli. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Magnús Matthíasson Ragna Jóna Sigurjónsdóttir Birgitta Lára Matthíasdóttir barnabörn og barnabarnabörn Elskulegur bróðir minn og vinur okkar, KRISTJÓN GUÐMANNSSON, Kríulandi 7, Garði, lést á heimili sínu föstudaginn 17. janúar. Útförin fer fram frá Útskálakirkju miðvikudaginn 29. janúar klukkan 15. Þórður Guðmannsson Guðmundur Jens Knútsson Anna Marý Pétursdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.