Morgunblaðið - 25.01.2020, Síða 45

Morgunblaðið - 25.01.2020, Síða 45
MENNING 45 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. JANÚAR 2020 »Það var margt um manninn í Bíó Paradís á fimmtudaginn þegar Franska kvikmyndahátíðin var sett með pomp og prakt og opnunarmynd hennar sýnd. Sú nefnist La belle époque eða Fagra veröld og er á vef kvikmyndahússins sögð stórkost- leg rómantísk gamanmynd sem fjalli um Daniel sem gefið sé tækifæri til að endurlifa fortíðina í þeim tilgangi að bjarga hjónabandi sínu. Ellefu kvikmyndir verða sýndar á hátíðinni. Eru þær af ýmsu tagi og þeirra á meðal ein teiknimynd og ein heimildarmynd. Franska kvikmyndahátíðin hófst í fyrradag í Bíó Paradís Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Hátíð Guðlaug Jakobsdóttir, Hilmar Oddson og Hrönn Sveinsdóttir. Listapar Snæbjörn Brynjarsson og Ragnheiður Sigurðardóttir Bjarnarson. Kát Erling Jóhannesson, Sigríður Heimisdóttir og Ingibjörg Þórisdóttir. 17 útskriftar- nemendur við myndlistardeild Listaháskóla Ís- lands opna sam- sýningu í Segul 67 á Siglufirði í dag en þeir hafa dvalið þar á vegum Alþýðu- hússins á Siglu- firði sl. tvær vikur og starfað undir hand- leiðslu Aðalheiðar S. Eysteins- dóttur og Sindra Leifssonar. Sýn- ingin ber titilinn 17 nemendur, einn fokkaði upp, og verður opn- uð kl. 15. 17 nemendur en einn fokkaði upp Aðalheiður Eysteinsdóttir Í frétt sem birt var í blaðinu í gær stóð að org- anistinn Kristján Hrannar Pálsson myndi frumflytja loftslagsverkið +2,0°C á Klais- orgel Hallgríms- kirkju þá um kvöldið. Hið rétta er að verkið verð- ur frumflutt föstudaginn 7. febrúar og er beðist velvirðingar á þessum leiðu mistökum. LEIÐRÉTT Tónleikar 7. febrúar Kristján Hrannar Pálsson Leikhópurinn Lotta frum-sýndi þriðju vetrarsýningusína í Tjarnarbíói um liðnahelgi. Fyrir tveimur árum markaði hópurinn sér þá stefnu að halda áfram að frumsýna ný barna- og fjölskylduleikrit á sumrin, en nota vetrartímann til að dusta rykið af eldri verkum hópsins og sýna í nýjum uppfærslum ávallt tíu árum eftir frumuppfærsluna. Í ár var því komið að Hans klaufa eftir Snæbjörn Ragn- arsson sem Lotta frumsýndi sumarið 2010. Ólíkt fyrri tveimur vetrarsýn- ingum Lottu lagði leikhópurinn, und- ir forystu Önnu Bergljótar Thoraren- sen, mun meiri vinnu í að uppfæra leikritið og breyta til þess að láta það betur tala við samtímann, enda hefur margt breyst á einum áratug. Í grunninn snýst verkið sem fyrr um Hans klaufa (Sigsteinn Sigur- bergsson) sem starfar við hirðina og er vinur Arons prins (Stefán Bene- dikt Vilhelmsson). Sölvi (Orri Huginn Ágústsson) og Ríkey (Tinna Hrönn Sigurdórsdóttir) eru ekki lengur mæðgin óskyld Aroni heldur systkini hans. Þegar drottningin móðir þeirra (Andrea Ösp Karlsdóttir) deyr erfir Aron konungsríkið, Sölvi spegil og Ríkey töfrasprota, sem er þeim eiginleikum gæddur hann lætur ekki að stjórn sé hann notaður til illra verka. Ólíkt systkinum sínum er Aron lítið upptekin af titlum og dreymir þess í stað um stéttlaust samfélag þar sem öll fái að sitja við sama borð. Ríkeyju gremst þetta og fær Sölva í lið með sér til að vinna gegn áformum Arons sem endar með því að Aroni er óvart breytt í frosk, sem er meistaralega útfært bæði í öllu gervi og leik. Þriðja sagan sem höfundar vinna með, auk Hans klaufa og froska- prinsins, er sem fyrr Öskubuska (Andrea Ösp Karlsdóttir). Hún býr við vont atlæti stjúpsystra sinna, Heklu (Orri Huginn Ágústsson) og Kötlu (Thelma Hrönn Sigurdórs- dóttir). Þegar Aron býður öllum í ríkinu til veislu eru það ekki stjúp- systur Öskubusku sem koma í veg fyrir að hún geti mætt heldur sú ákvörðun Ríkeyjar að breyta boðs- kortunum á þá leið að aðeins fólk sem eigi fín föt sé velkomið, því þannig megi útiloka fátæklingana. Líkt og í upprunalega ævintýrinu fær Öskubuska óvænta aðstoð frá álfkonunni Álfheiði (Stefán Benedikt Vilhelmsson), sem líkt og Öskubuska reynir að vera umhverfisvæn sem út- skýrir með skemmtilegum hætti hvers vegna kjóll hennar hverfur á miðnætti. Öskubusku langar fyrst og fremst á ballið í höllinni til að tala fyr- ir mikilvægi þess að allir íbúar Ævin- týraskógarins flokki og endurvinni rusl, en verður óvænt ástfangin af Aroni sem endurgeldur hrifningu hennar. Sem fyrr er prinsessupróf Hans klaufa fyrirferðarmikið í seinni hluta verksins þar sem Öskubuska, Hekla og Katla leysa þrautir prinsessa úr öðrum þekktum ævintýrum áhorf- endum til mikillar skemmtunar, en sérdeilis flott var að sjá þegar Hekla stakk sig á snældunni. Hans klaufi er nefnilega sannfærður um að takist honum að finna stúlkuna sem Aron varð ástfanginn af rétt áður en hann hvarf (þegar hann breyttist í frosk) þá muni Aron snúa aftur. Og auðvitað fer allt vel að lokum. Fyrir þá sem þekkja gömlu útgáfu Lottu af Hans klaufa, sem aðgengileg er á geisladiski og heyra má í Lottu- appinu sem hópurinn hefur þróað og mun einnig innihalda myndrænar upptökur af öllum vetrarsýningum hópsins, er gaman að láta koma sér á óvart með nýjum snúningi á verkinu. Fyrir yngstu áhorfendurna sem eru ef til vill að kynnast Lottu í fyrsta sinn er nýja útgáfan af Hans klaufa einstaklega gott dæmi um þann mikla listræna metnað sem ávallt hefur einkennt sýningar hópsins, óþrjót- andi hugmyndaauðgi, góðan húmor (þar sem allir fá eitthvað fyrir sinn snúð, jafnt börn sem fullorðnir) og samfélagsádeiluna sem orðið hefur fyrirferðarmeiri í uppfærslum hóps- ins á umliðnum árum. Á aðeins klukkutíma tekst forvitnilegum per- sónum verksins að segja skemmti- lega sögu og nota til þess öll meðöl leikhússins. Leikmyndin er einstaklega vel heppnuð og útfærð hjá Sigsteini Sig- urbergssyni og Andreu Ösp Karls- dóttur þar sem litríkum flekum er snúið á ýmsa enda og kanta og iðu- lega kubbað upp á nýtt til að þjóna hverri senu. Búningar Alexíu Rósar Gylfadóttur og Rósu Ásgeirsdóttur þjóna persónum vel og draga fram skýra mynd af stöðu þeirra í verkinu. Lýsing Kjartans Darra Kristjáns- sonar skapaði ávallt rétta stemn- ingu. Hljóðmynd og nýjar útsetn- ingar Þórðar Gunnars Þorvalds- sonar settu afgerandi svip á lögin, bæði gömlu og nýju. Sem dæmi tókst honum að skapa martraðarkennda stemningu í dúett Heklu og Kötlu þar sem þær syngja um „Busku- greyið“ og stjórna systur sinni líkt og strengjabrúðu. Rýnir saknaði þess ögn að sjá systurnar ekki höggva af sér hæl og tá, ekki síst til að undirbyggja söngtextann þess efnis að býfur Öskubusku séu pass- legar í prinsessuskó en „hún ekkert af sér hjó“. Dansarnir sem Berglind Ýr Karls- dóttir hafði yfirumsjón með njóta sín vel í útfærslu leikhópsins. Leikgleði og skemmtilegar sjónrænar lausnir einkenna uppfærsluna undir styrkri stjórn Önnu Bergljótar Thorarensen og Þórunnar Lárusdóttur. Andrea Ösp Karlsdóttir er yndisleikinn upp- málaður í hlutverki Öskubusku, sannfærandi baráttukona fyrir bætt- um heimi og kveikir auðveldlega samkennd með áhorfendum. Stefán Benedikt Vilhelmsson á skemmti- lega innkomu sem Álfheiður, er fyndinn froskur og trúverðugur í hlutverki Arons, hvort heldur er þegar hann talar fyrir jöfnum kjör- um íbúa ríkisins eða missir nánast málið sökum feimni þegar hann hitt- ir draumadísina sína. Orri Huginn Ágústsson sameinar í Sölva sjálfumglaðan einstakling sem samtímis er bæði latur og undirgef- inn systur sinni, en í reynd ekki svo vondur inn við beinið. Thelma Hrönn Sigurdórsdóttir syngur eins og eng- ill, fer hamförum í hlutverki Ríkeyj- ar og er dásamleg undir lok sýningar þegar hún trúir lygasögunni sem Hans klaufi spinnur upp til að bjarga málum. Samleikur Orra Hugins og Thelmu Hrannar í hlutverkum sín- um sem Hekla og Katla er skínandi og auðvelt að fá samúð með Ösku- busku þegar systurnar níðast á henni. Flámæli Kötlu bætti litlu við persónusköpunina en gerði á stund- um erfitt að skilja það sem sagt var, sem var miður. Að lokum verður að minnast á Sig- stein Sigurbergsson sem er í essinu sínu í titilhlutverkinu. Sigsteinn hef- ur meistaraleg tök á kómískum tíma- setningum og vekur hæglega sam- hug með áhorfendum í einfeldni sinni sem Hans klaufi. Dásamlegt var að heyra hann ítrekað „ussa“ á aum- ingja Aron, í gervi frosksins, með þeim orðum að bannað sé að grípa fram í, fullorðna fólkið sé að tala saman og hann verði að sýna kurt- eisi, sem hljómar vafalítið kunn- uglega í eyrum margra áhorfenda. Eftir stendur að Hans klaufi er frá- bær sýning fyrir alla fjölskylduna og enn ein rósin í hnappagat Lottu. Sitjum öll við sama borð Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Gleði Hans klaufi fyrir miðri mynd ásamt systkinunum Aroni og Ríkeyju, en lengst til hægri glittir í Öskubusku. Tjarnarbíó Hans klaufi bbbbn Eftir Snæbjörn Ragnarsson, Anna Berg- ljót Thorarensen og leikhópinn. Leik- stjórn: Anna Bergljót Thorarensen og Þórunn Lárusdóttir. Höfundar laga og texta: Anna Bergljót Thorarensen, Bald- ur Ragnarsson, Björn Thorarensen, Gunnar Ben, Snæbjörn Ragnarsson og Þórður Gunnar Þorvaldsson. Hljóðmynd og útsetningar: Þórður Gunnar Þor- valdsson. Lýsing: Kjartan Darri Krist- jánsson. Leikmynd: Sigsteinn Sigur- bergsson og Andrea Ösp Karlsdóttir. Búningar: Alexía Rós Gylfadóttir og Rósa Ásgeirsdóttir. Danshöfundar: Berglind Ýr Karlsdóttir, Anna Bergljót Thorarensen og Þórunn Lárusdóttir. Leikarar: Andrea Ösp Karlsdóttir, Orri Huginn Ágústsson, Sigsteinn Sigur- bergsson, Stefán Benedikt Vilhelmsson og Thelma Hrönn Sigurdórsdóttir. Leik- hópurinn Lotta frumsýndi í Tjarnarbíói laugardaginn 18. janúar 2020. SILJA BJÖRK HULDUDÓTTIR LEIKLIST

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.