Morgunblaðið - 06.02.2020, Page 1

Morgunblaðið - 06.02.2020, Page 1
F I M M T U D A G U R 6. F E B R Ú A R 2 0 2 0 Stofnað 1913  31. tölublað  108. árgangur  Blómkál og spergilkál Saman í pakka eða í sitthvoru lagi 349KR/PK ÁÐUR: 499 KR/PK Ungnautahamborgarar 4x90 gr með brauði 788KR/PK ÁÐUR: 1.459 KR/PK FRÁBÆR TILBOÐ Í VERSLUNUM NETTÓ UM HELGINA! Lægra verð - léttari innkaup Tilboðin gilda 6. - 9. febrúar 40% -30%KalkúnasneiðarÍsfugl 1.733KR/KG ÁÐUR: 2.889 KR/KG 46% FÆR PITT ÓSKARINN AÐ LOKUM? FAGNA TVÍTUGSAFMÆLI PÉTUR BORGAR- STJÓRI MEÐ FORYSTUNA TÓNLISTARSKÓLI REYKJANESS 18 PETE BUTTIGIEG 38AUGNAKONFEKT 60 Kerlingardalsáin í Mýrdal var mjög bólgin og breiddi úr sér eftir hádegi í gær þegar Jónas Erlendsson, fréttaritari Morgunblaðsins, tók myndina. Hann sagði það gerast ef til vill einu sinni á ári að áin breiði svona mikið úr sér. Á myndinni er horft frá jörðinni Fagradal og yfir að bænum Höfðabrekku. Þar er Hótel Katla í nýlegum húsum. Höfðinn á bak við Höfðabrekku heitir Höfðabrekkuháls. Þétt upp við hann er Kerlingardalsvegur sem ligg- ur inn í Kerlingardal og svo áfram inn í Þakgil. Næst á myndinni er annar vegur sem tilheyrir Fagradal og liggur að fiskeldisstöð þar sem ræktuð er bleikja. Venjulega standa áraurarnir upp úr og áin velur sér farveg um þá. Tíkin Donna fylgdi húsbónda sínum í leiðangurinn og virti fyrir sér vatnavextina eflaust fegin því að vera ekki á leið í smölun. Miklar leysingar og úrkoma voru á landinu í gær og er svipuð spá fyrir daginn í dag. Sér- fræðingur Veðurstofu Íslands skrifaði í gær að þetta myndi valda töluverðum vatnavöxtum í ám og lækjum á sunnan- og vestanverðu land- inu, á Tröllaskaga og á sunnanverðum Vest- fjörðum. Heldur virtist vera farið að draga úr vatnavöxtunum á Suðurlandi þegar leið á gær- daginn. gudni@mbl.is Morgunblaðið/Jónas Erlendsson Kerlingardalsáin flæmdist yfir áraurana „Eigendurnir telja sig hugsanlega geta bjargað bátnum og eru að leita leiða til þess. Við gefum þeim frest til að koma með framkvæmdaáætlun um það,“ segir Guðmundur Krist- jánsson, hafnarstjóri Ísafjarðarbæj- ar. Tekist hefur að ná til allra bátanna sem urðu fyrir snjóflóðinu á Flateyri í síðasta mánuði nema netabátsins Orra. Hann er sá eini sem var ótryggður. „Það er þannig lagað séð ekki mikil mengunarhætta af honum en við leggjum samt áherslu á að hann verði fjarlægður sem fyrst,“ sagði Guðmundur eftir fund með eig- endunum í gær. »22 Munu reyna að bjarga Orra  Eigendur fá frest frá bænum  Lítil mengunarhætta Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson Strand Orri hefur verið í höfninni á Flateyri frá því snjóflóðið féll. Réttarhaldinu yfir Donald Trump Bandaríkjaforseta lauk í gær, þegar þingmenn öldungadeildar Banda- ríkjaþings sýknuðu hann af báðum ákærum fulltrúadeildarinnar. Trump er þriðji forsetinn sem ákærður er til embættismissis, en allir þrír hafa ver- ið sýknaðir í öldungadeildinni. Atkvæði um fyrri ákæruliðinn féllu þannig að 52 töldu rétt að sýkna Trump en 48 vildu svipta hann emb- ætti sínu. Mitt Romney, þingmaður Utah, var eini repúblikaninn sem vildi svipta Trump embætti en hann taldi forsetann hafa gerst sekan um að hafa misbeitt valdi sínu með því að reyna að fá erlent ríki til þess að rannsaka mögulega andstæðinga sína í komandi forsetakosningum. Romney varð þar með fyrsti öldungadeildarþingmaður- inn til þess að greiða atkvæði með sekt forseta úr sínum eigin flokki. Hann taldi Trump hins vegar ekki sekan um að hafa staðið í vegi þingsins. Lengi hafði stefnt í þessa niður- stöðu en samþykki tveggja þriðju hluta öldungadeildarinnar, eða 67 þingmanna af 100, þarf til þess að svipta forsetann embætti sínu. Flest- ar atkvæðagreiðslur í deildinni meðan á málinu stóð hafa hins vegar fallið eftir flokkslínum, þar sem repúblik- anar hafa 53 þingmenn en demó- kratar 47. sgs@mbl.is Trump sýknaður í öldungadeildinni

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.