Morgunblaðið - 06.02.2020, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 06.02.2020, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. FEBRÚAR 2020 Bir tm eð fyr irv ar au m pr en tvi llu r. He im sfe rð ir ás kil ja sé rr étt til lei ðr étt ing aá slí ku .A th. að ve rð ge tur bbr ey s 60+ÁBENIDORM – fáðumeira út úr fríinu Verð frá kr. 168.995 Birgitte Bengtssonðgeturbb re ys með 19. APRÍL Í 16 EÐA 19NÆTUR Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Guðni Einarsson gudni@mbl.is Íslendingar sem koma frá Kína verða beðnir um að fara í sóttkví í 14 daga frá því að þeir koma til lands- ins. Þetta er gert til öryggis og er liður í því að verja landið fyrir kórónuveirunni (2019-nCoV). „Íslendingar sem koma til lands- ins eru hvattir til að láta vita hafi þeir verið í Kína. Þá viljum við setja þá í sóttkví,“ sagði Þórólfur Guðna- son sóttvarnalæknir. Sóttkvíin mun felast í því að fólk taki það rólega heima í tvær vikur, í stað þess að fara í vinnu og út í bæ. Það þarf að láta vita strax fari það að veikjast. Þórólfur segir að rætt hafi verið hvort hægt væri að beita sömu að- ferð við erlenda ferðamenn. Niður- staðan var sú að það yrði óáreiðan- legt og erfitt í framkvæmd að spyrja ferðamenn sem ætluðu að vera hér t.d. í fimm daga hvort þeir hefðu verið í Kína, vitandi að þeir yrðu settir í 14 daga sóttkví. Reynt hefur verið að ná til ferðamanna frá Kína með margvíslegum hætti. Leiti þeir til heilsugæslunnar eru þeir beðnir um að vera í sóttkví í 14 daga. Talið er að smit byrji ekki fyrr en fólk fer að veikjast en fyrstu einkenni geta verið væg. „Þetta er sama nálgun og aðrar þjóðir hafa beitt. Við sjáum að árangur er að nást t.d. í Evrópu. Það er ekki mikið um útbreiðslu frá þessum tilfellum sem hafa greinst,“ sagði Þórólfur. Fyrirtæki geri áætlanir Í stöðuskýrslu almannavarna- deildar ríkislögreglustjóra í gær segir m.a. að yfirleitt komi einkenni fram 4-8 dögum eftir smit. Á stöðu- fundi sóttvarnalæknis með starfs- fólki samhæfingarstöðvarinnar í gær var rætt um frekari aðgerðir og leiðir til að koma í veg fyrir að veir- an berist hingað. Heilbrigðisstofn- anir eru viðbúnar ef tilfelli koma upp og hafa uppfært áætlanir og farið yfir birgðastöðu sína. Áhersla er lögð á að stofnanir og atvinnulífið uppfæri viðbragðsáætl- anir varðandi órofinn rekstur. Þar er m.a. gert ráð fyrir samstarfi fyr- irtækja í sömu atvinnugrein. Fyrir- tæki og stofnanir verða að gera ráð fyrir verstu hugsanlegu aðstæðum, þ. á m. 25-50% fjarvistum starfs- fólks. Lokaákvörðun um verstu sviðsmynd verður tekin síðar í vik- unni. Sóttvarnalæknir ráðleggur fólki að sleppa ónauðsynlegum ferðalög- um til Kína. Vakni grunur um tilfelli á fólk að hringja fyrst í Læknavakt- ina í síma 1700 í stað þess að fara á bráðamóttöku eða á heilsugæslu- stöð nema að fengnum ráðlegging- um. Landhelgisgæslan sendir nú upp- lýsingar til skipa sem eru á leið til hafnar hér. Þar er sérstaklega beðið um að gert sé viðvart ef upp koma veikindi hjá farþegum eða áhöfn. Sýking af völdum umræddrar veiru hafði verið staðfest hjá um 24.530 einstaklingum í gær og voru um 493 látnir eða um 2%. Langflest tilfellin voru í Kína eða 24.329. Ferðalangar frá Kína fari í sóttkví  Íslendingar komnir heim frá Kína haldi sig heima í tvær vikur  Erfiðara að gera sömu kröfu til útlendra ferðamanna  Sé grunur um smit er fólk beðið að hringja fyrst í stað þess að fara til læknis AFP Varnir Ýmislegt er gert til varna vegna hættu á smiti af völdum kórónuveiru. Vetrarhátíð verður sett við Hall- grímskirkju í Reykjavík í kvöld en hátíðin er nú haldin í 19. sinn og fer fram í öllum sex sveitarfélögum höfuðborgarsvæðisins. Við setninguna verður sýnt verk- ið Sálumessa jöklanna eða Introit eftir Heimi Frey Hlöðversson lista- mann. Verður verkinu varpað á Hallgrímskirkju í formi jökuls sem er að bráðna. Verkið er þrískipt og er önnur útgáfa sýnd í Ásmundar- sal og þriðja útgáfan verður á Hafnartorgi. Meðal atriða á hátíðinni er gagn- virk innsetning á Austurvelli í Reykjavík eftir bresku listakonuna Abby Portner þar sem blandað er saman skúlptúr, ljósum og mynd- bandi. Myndunum verður varpað á heimskautarefi sem Steingrímur Þorvaldsson hjá Verkstæðinu ehf. í Mosfellsbæ vann í gær við skera út úr krossvið og mála. Nánar má lesa um dagskrána á vefnum vetrarhatid.is. Vetrarhátíð á höfuðborgarsvæðinu sett í 19. skipti í kvöld Útskornir refir á Austurvelli Morgunblaðið/Eggert Samningafundi Eflingar og Reykjavíkurborgar lauk án niður- stöðu hjá ríkissáttasemjara síð- degis í gær. Því var ljóst að sólar- hringslangt verkfall félagsmanna Eflingar sem starfa hjá borginni myndi byrja á miðnætti og standa til miðnættis í kvöld. „Það gerðist ekkert á þessum fundi,“ sagði Sólveig Anna Jóns- dóttir, formaður Eflingar, en hún vildi ekki tjá sig nánar um hvað þar fór fram eða hvort viðhorfs- breytingar hjá viðsemjendum hefði gætt. „Við erum enn í viðræðum og á meðan viðræður eru í gangi þá miðar hlutum áfram,“ sagði Harpa Ólafsdóttir, formaður samninga- nefndar Reykjavíkurborgar, um samningaviðræðurnar við Eflingu. „Við erum að funda um vakta- vinnuna, styttingu vinnuvikunnar hjá vaktavinnufólki. Þetta var einn af útgangspunktum Eflingar að það yrði að klára umræðu um vaktavinnu áður en þau myndu skrifa undir“. gudni@mbl.is Verkfall Eflingar hjá borg- inni stendur til miðnættis  Viðræðufundi slitið síðdegis í gær án niðurstöðu Morgunblaðið/Eggert Samningafundur Efling og borgin ræðast við hjá ríkissáttasemjara.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.