Morgunblaðið - 06.02.2020, Síða 22

Morgunblaðið - 06.02.2020, Síða 22
Blossi Eigendur segja málefni útgerðarinnar vera í biðstöðu. Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Við vonumst til að koma fram með raunhæfar lausnir – það græðir enginn á því að fá einhvern óraun- hæfan vonarneista,“ segir Þórdís Sif Sigurðardóttir, starfandi bæj- arstjóri í Ísafjarðarbæ. Þórdís er fulltrúi í starfshópi sem stjórnvöld skipuðu til að móta tillögur um að- gerðir til að treysta atvinnulíf og búsetu á Flateyri við Önundarfjörð í kjölfar snjóflóðsins hinn 14. jan- úar síðastliðinn. Flateyrarhópurinn fundaði í Reykjavík í gær og segir Þórdís að vinna hópsins gangi ágætlega. „Við erum að viða að okkur upplýs- ingum frá ýmsum viðbragðs- og hagaðilum,“ segir hún. Þar á meðal er Ofanflóðasjóður, Veðurstofan, Vinnumálastofnun, Almannavarnir og bæjaryfirvöld. Koma atvinnulífinu í gang Þórdís segir að vinna Flateyr- arhópsins hafi hafist í síðustu viku og stefnt sé að því að skila af sér föstudaginn 28. febrúar. „Við erum ekki með neinn töfrasprota sem við sveiflum og finnum lausnir fyrir Flateyringa. Við byrjum bara á því sem fyrir er og hægt er að liðka fyrir. Mest áhersla er lögð á örygg- ismálin, að íbúar séu öruggir. Svo viljum við tryggja öryggi helsta at- vinnuvegar bæjarins, hafnarinnar. Þá eru það atvinnumálin, bætur og tryggingar til þeirra sem lentu í tjóni og sálgæsla.“ Þórdís kveðst telja að unnt verði að koma atvinnulífinu á Flateyri í samt lag. „Það á að laga allt sem við kemur hafnarmannvirkjunum strax. Þau eru öll tryggð nema flot- bryggjan. Uppbygging getur hafist strax. Tryggingarfélög eru að vinna með eigendum bátanna og vonandi finnst lausn á því.“ Hún segir að miklar skemmdir hafi orðið á þeim bátum sem sukku og leitað verði leiða til að flytja þá burt úr bænum. Það væri lýti ef þá myndi daga þar uppi. „Þetta er mikið tjón fyrir útgerðarfólkið og við ætlum að sjá hvort við getum hjálpað því aftur af stað. Það er ekkert í hendi en kannski er hægt að vinna einhverjar sérútfærslur.“ Hún segir að allir bátarnir sem sukku nema einn hafi verið tryggð- ir. Fyrir vikið ætti að vera hægt að kaupa nýja báta fyrir tryggingaféð. „Ef þeir verða metnir út frá raun- verulegu verðmæti. Svo hefur verið hér kvóti og vinnsla. Það eru kannski einhverjar leiðir sem hægt er að fara, til að mynda úthlutun byggðakvóta.“ „Ég á enn vonina“ Guðrún Pálsdóttir, útgerðar- maður í Hlunnum ehf. sem gera út Blossa, sagði í samtali við Morg- unblaðið að málefni útgerðarinnar væru í biðstöðu. „Það er ekkert byrjað að meta og við vitum ekki neitt. Það er ekki hægt að taka neinar ákvarðanir enda engar for- sendur fyrri hendi. Bryggjan er farin, báturinn farinn. Hvað verður um okkur á Flateyri? Það er millj- ón spurningum ósvarað. Ég treysti því og trúi að stjórnvöld séu að vinna í okkar málum. Þetta kemur sjálfsagt í ljós með vorinu. Ég á enn vonina.“ Samkvæmt upplýsingum frá Guðmundi Kristjánssyni, hafn- arstjóra Ísafjarðarbæjar, hefur köfunarþjónustan Sjótækni náð upp öllum bátum í höfninni á Flat- eyri nema einum. Það er báturinn Orri sem er sá eini sem var ótryggður. Fundað var með eig- endum bátsins í gær og fá þeir frest til að leggja fram áætlun um björgun bátarins. „Við erum ekki með neinn töfrasprota“  Starfshópur stjórnvalda vinnur að tillögum fyrir Flateyri í kjölfar snjóflóða  Útgerðin í biðstöðu en uppbygging boðuð  „Ég á enn vonina,“ segir útgerðarmaður  Einn bátur enn strand í höfninni Guðjón Arnar Var á dragnót í fyrra en siglir ekki í bráð. Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson Á hvolfi Sjávarperlan ÍS 313 náðist úr höfninni á dögunum. Við bryggju Brói KE í höfninni á Flateyri í byrjun vikunnar. Strand Reynt verður að bjarga Orra af strandstað á næstunni. 22 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. FEBRÚAR 2020 Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is Hönnuður Gino Sarfatti Verð frá 199.000,- 2097/30 loftljós Funahöfða 7, 110 Reykjavík | Sími 577 6666      Kæli- & frystiklefar í öllum stærðum ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS VEISTU UM GÓÐAN RAFVIRKJA?

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.