Morgunblaðið - 06.02.2020, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 06.02.2020, Qupperneq 28
28 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. FEBRÚAR 2020 Hringferðin 2020 hefst í Reykjavík áfimmtudag — opinn fundur á Restaurant Reykjavík kl. 18.00 Þingflokkur Sjálfstæðisflokksins fer í árlega hringferð um landið á næstu vikum, þar sem allir þingmenn flokksins fara saman til funda vítt og breitt um öll kjördæmi landsins. Fundirnir eru með óformlegu sniði ogmiðast við að sem flestir geti náð tali af þingmönnunum á sínum heimavelli og rætt það semmestumáli skiptir á hverjum stað. Hringferðin í ár hefst með opnum fundi í hjarta höfuðborgar- innar, áRestaurant Reykjavík viðVesturgötu 2. Fundurinn stendur yfir frá kl. 18.00 til 19.00 Allir velkomnir! SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN i 020 í Reykjavík í dag Þingflokkur Sjálfstæðisflokksins fer í árlega hringferð um landið á næstu vikum, þar sem allir þingmenn flokksins fara saman til funda vítt og breitt um öll kjördæmi landsins. Fundirnir eru með óformlegu sniði og miðast við að sem flestir geti náð tali af þing önnunu á sínu hei avelli og r tt það s li i tir á hv rj . ri f r i í i í hjart f r innar, á Kaffi Reykjavík við Vesturgötu 2. Fundurinn stendur yfir frá kl. 18.00 til 19.00. – opinn fundur á Kaffi Reykjavík kl. 18.00 VIÐTAL Helgi Bjarnason helgi@mbl.is „Öll aðildarlönd FEIF, alþjóða- samtaka um íslenska hestinn og fé- lagsmenn þeirra, líta til Íslands um forystu í ræktunarstarfi íslenska hestsins og alþjóðasamtakanna. Ekki er sjálfgefið að svo verði. Mér finnst að stjórnvöld þurfi að huga að því hvernig hægt er að halda betur utan um þessa samvinnu og sérstaklega upprunaættbók íslenska hestsins,“ segir Jón Baldur Lorange, verkefn- isstjóri rafrænnar upprunaættbókar íslenska hestsins, WorldFengs. Hættir eftir 30 ára starf Jón Baldur hefur unnið að raf- rænni ættbók íslenska hestsins í bráðum 30 ár og verið verkefnisstjóri frá því farið var að skrá hross í öllum heiminum undir nafni WorldFengs. FEIF heiðraði Jón Baldur fyrir þetta starf sitt á ársþingi sambandsins sem haldið var í Hveragerði um síðustu helgi. Sömu viðurkenningu fékk Bandaríkjamaðurinn Doug Smith sem hefur starfað mikið fyrir FEIF, meðal annars sem leiðtogi keppn- ismála. Er þetta æðsta heiðursvið- urkenning sem samtökin veita. Í til- viki Jóns Baldurs er hún rökstudd með því að hann sé heilinn á bak hið einstaka og magnaða gagnasafn WorldFeng sem sé ómissandi hverj- um þeim sem ræktar íslenska hesta. Jón Baldur kveðst þakklátur fyrir þessa viðurkenningu. Hann tekur um leið fram að hann vonist til þess að geta komið verkefninu í hendur ann- arra á næstu árum. Mun hann láta af verkefnisstjórn í ár en hefur fallist á að sitja í stjórn WorldFengs fram á næsta ár. „Vonandi getum við kynnt nýja útgáfu fyrir þann tíma, snjall- útgáfu, straumlínulagaðri og með enn meiri möguleikum fyrir þá sem vinna að ræktun íslenska hestsins,“ segir Jón Baldur. Spurður um ástæðu þess að hann vill hætta segir hann einfaldlega að það sé orðið tímabært. WorldFengur sé að komast á fullorðinsár og kominn tími til að hann fari að flytja að heim- an. Þá sé hann sjálfur orðinn starfs- maður atvinnuvegaráðuneytisins eft- ir að búnaðarstofa var flutt þangað. Hann vann lengst af að málefnum WorldFengs sem yfirmaður tölvu- deildar Bændasamtakanna og en nú er búið að færa þá deild inn í Ráðgjaf- armiðstöð landbúnaðarins. Upphafið að WorldFeng má rekja til ársins 1991, þegar Jón Baldur var ráðinn til Búnaðarfélags Íslands sem umsjónarmaður töluvumála, nýút- skrifaður kerfisfræðingur frá Tölvuháskóla Íslands. Hann er ekki hestamaður en Kristinn Hugason hrossaræktarráðunautur óskaði eftir því að gerður yrði gagnagrunnur fyr- ir skýrsluhald í hrossarækt og það yrði gert fyrir einkatölvuumhverfi sem ekki var algengt á þeim tíma. Mál þróuðust þannig að hann tók þetta sem lokaverkefni sitt í náminu og fyrsti Fengur varð til. „Þetta varð grunnurinn að því að bændur gætu stundað sína hrossarækt með skipu- lagðari hætti á grunni skýrsluhalds- ins,“ segir hann. Málin þróuðust áfram með Íslands- Feng og VeraldarFeng sem settur var upp á internetinu í samvinnu við Skýrr. Mikið magn upplýsinga Á árinu 2000 var síðan gerður samningur á milli stjórnvalda hér, Bændasamtaka Íslands og FEIF um skráningu allra hrossa af íslenskum ættum, hvar sem þau eru í heiminum, í einn alþjóðlegan gagnabanka sem fékk nafnið WorldFengur. Til þess að það væri hægt þurfti að setja alþjóð- legar reglur um skráningu hesta og staðla alþjóðlegar kynbótasýningar. Mikið vatn hefur síðan runnið til sjávar. Ótrúlegt magn upplýsinga um hestana er komið inn í gagnabank- ann, ekki aðeins ættir þeirra og kyn- bótamat heldur einnig um ræktendur og kynbótasýningar. Þar má finna myndir og myndbönd og hægt er að segja fyrir um hæfileika og lit af- kvæma þegar tiltekin hryssa er leidd undir valinn stóðhest. Gerðar eru DNA-erfðagreiningar og gagna- grunnurinn staðfestir ætterni. Jón Baldur segir að öll upphafleg markmið starfsins hafi náðst og kveðst þess vegna geta gengið sáttur frá borði. Áfram þurfi að þróa gagna- bankann til þess að hann nýtist áskrifendunum sem best. Íslendingar haldi forystu í ræktuninni  Jón Baldur Lorange, verkefnastjóri WorldFengs, segir að forysta Íslendinga í ræktunarstarfi og fé- lagsmálum sé ekki sjálfgefin  Hann var sæmdur viðurkenningu FEIF fyrir uppbyggingu gagnabankans Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Verkefnisstjóri Jón Baldur Lorange segir að WorldFengur sé orðinn full- orðinn og tími til kominn að hann flytji að heiman. WorldFengur » Í upphafi voru 9.000 hross skráð í Feng, öll á Íslandi. Nú eru skráð yfir 500 þúsund hross, fædd í 30 löndum en eru haldin í 40 löndum. » Yfir 26 þúsund hesta- áhugamenn eru áskrifendur að WorldFeng, í 22 aðildarlöndum FEIF. Flestir eru í Þýskalandi, 8.400 talsins og 6.300 eru á Íslandi. » Áskrifendur fletta upp hrossum vegna eigin ræktunar, vegna kaupa á hesti eða bara til þess að vera viðræðuhæfur á kaffistofu hesthússins. » Fluttir voru út frá Íslandi 1.509 hestar á síðasta ári, mun fleiri en undanfarinn áratug. Flestir fóru til Þýskalands, 640, eða 42% útfluttra hesta.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.