Morgunblaðið - 06.02.2020, Side 40

Morgunblaðið - 06.02.2020, Side 40
gert í gegnum tíðina. Í umræðum um losun frá meltingarvegi ber þó að hafa í huga hina náttúrulega hringrás kolefnis, þ.e. að kolefnið sem frá þeim kemur í formi metans kemur úr plöntum sem þær hafa étið og hverf- ur svo til baka í hringrás vaxtarferils gróðurs á jörðinni. Þá er vert að minna á að metan er gróðurhúsa- lofttegund með stuttan líftíma og eyðist úr andrúmsloftinu á um áratug en aðrar eru virkar í andrúmslofti okkar í margar kynslóðir. Því safnast metanið ekki upp í andrúmsloftinu á sama hátt og koldíoxíð og glaðloft. Það má því segja að losun metans frá 100 kúa hjörð í dag kemur einfaldlega í staðinn fyrir losun jafnstórrar hjarðar hjá fyrri kynslóðum, en er ekki viðbót. Íblöndun þangs í fóður gæti dregið úr losun Verkefnið SeaCH4NGE hefur ver- ið í gangi hjá MATÍS þar sem skoðað er hvort hægt sé að draga úr losun metans frá nautgripum með þangi og hvaða áhrif það hefur á velferð dýra og gæði afurða. Rannsóknir frá Ástr- alíu hafa sýnt að hægt er að draga verulega úr loftmengun í landbúnaði, ekki síst á metangasi frá nautgripum og öðrum jórturdýrum, með því einu að gefa þeim þang. Það verður því af- ar áhugavert að sjá hvort samskonar aðferðum sé hægt að beita hér á landi. Framræst land minna en áður var talið Í skýrslunni var ekki tekin fyrir losun frá landi sem áður var votlendi en hefur verið framræst og er nú not- að undir nautgriparækt, þar sem gögn um slíkt liggja ekki fyrir. Í dag kolefnislosun en það er stefna samtakanna að íslensk nautgriparækt verði kolefnisjöfnuð að fullu árið 2028 eða ekki síðar en 2040, líkt og rit- að var í samkomulag milli ríkis og bænda í endurskoðuðum bú- vörusamningi. Skýrslan sýnir ekki eiginlegt kol- efnisspor greinarinnar í þeim skilningi, þar sem bindingin er ekki tekin inn á móti, en nú höfum við mikilvægar upplýs- ingar um hvar áherslan þarf að liggja. » Losun metans frá 100 kúa hjörð í dag kemur einfaldlega í staðinn fyrir losun jafn- stórrar hjarðar hjá fyrri kynslóðum, en er ekki viðbót. Kolefnislosun ís- lenskrar naut- griparæktar er á pari við það sem þekkist er- lendis og er heldur í lægri kantinum en ann- að. Í nýlegri skýrslu sem Landssamband kúabænda lét vinna er gerð grein fyrir kolefn- islosun íslenskrar naut- griparæktar. Þetta er fyrsti fasinn hjá LK í þeirri vinnu að draga markvisst úr Margslungin metanumræða Mesti losunarvaldurinn, sem er 50% af losuninni, er iðragerjun kúnna sjálfra, þ.e. þær ropa og prumpa eins og aðrar dýrategundir og hafa alltaf er vinna í gangi hjá Landbúnaðarhá- skóla Íslands við að endurkortleggja skurðaþekju landsins. Gert er ráð fyrir að þeirri vinnu ljúki í haust og þá verður hægt að sjá hluta naut- griparæktarinnar í þeirri losun. Um mitt ár 2019 var sagt frá því að um- fang framræsts votlendis á Íslandi er töluvert minna en áður var talið. Með nákvæmari gögnum fengu vís- indamenn gleggri mynd af umfangi svæðanna og þá kom í ljós að flat- armál framræsts lands var 70.000 hekturum, eða 15-20%, minna en gert var ráð fyrir í eldra mati. Bændur mikilvægir í baráttunni gegn loftslagsbreytingum Bændur geta lagt mikið af mörkum í loftslagsmálum. Í nýsamþykktum breytingum á samningi um starfsskil- yrði nautgriparæktarinnar er mark- miðið að greinin verði kolefnisjöfnuð fyrir árið 2040. Þá þarf að byggja upp þekkingu á losun og bindingu kol- efnis, bættri fóðrun, meðhöndlun og nýtingu búfjáráburðar, markvissri jarðrækt o.fl. Sameiginlegur starfs- hópur ríkis og bænda skal skila út- færslum á þessum atriðum nú í vor og þar sem tíminn líður hratt og örugg- lega er mikilvægt að allir aðilar vinni þétt saman, fái yfirsýn yfir þá þekk- ingu sem nú þegar er fyrir hendi og byggi tillögur sínar á öruggum grunni. Það eru því ærin verkefni fram undan hjá kúabændum sem og öðrum þegar loftslagsmálin eru annars veg- ar. Tækifærin er mikil og okkur ber að grípa þau þegar þau gefast. Kolefnislosun íslensku kýrinnar Eftir Margréti Gísladóttur Margrét Gísladóttir Höfundur er framkvæmdastjóri Landssambands kúabænda. margret@naut.is 40 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. FEBRÚAR 2020 Nú í febrúar fagnar Félag heyrnarlausra 60 ára afmæli. Félagið er baráttu- og hags- munafélag sem veitir hvers konar ráðgjöf og álit er snúa að mál- efnum heyrnarlausra. Menning og saga heyrnarlausra er stór- brotin og saga mikillar baráttu fyrir til- verurétti sínum. En heyrnarlausir eru málminni- hlutahópur með merkilega sögu og ríka menningu en þurfa því miður að reiða sig mikið á túlka í sínum sam- skiptum í samfélaginu þar sem þeirra tungumál er lítt þekkt í ís- lensku samfélagi. Baráttusaga þeirra er merkileg og hreint ótrúleg og baráttan fyrir tungumáli þeirra hefur ekki verið áfallalaus í gegnum tíðina. Í áratugi var táknmálið bannað og það var ekki fyrr en árið 1980 að það var leyft aftur. Árið 2011 var táknmálið lögleitt sem fyrsta mál heyrn- arlausra, heyrnarskertra og dauf- blindra og aðstandenda þeirra sem þurfa að reiða sig á það til tjáningar og samskipta. Þar með skuldbundu stjórnvöld sig til að hlúa að því og styðja. Þarna var mikilvægum áfanga náð. Mörg baráttumál Þó þessum áfangi sé náð eru bar- áttumálin mörg. Þrátt fyrir að tákn- málið sé opinbert mál hér á landi er lítil sem engin fræðsla eða kennsla í skólum landsins. Lítið sem ekkert er gert til að kynna og kenna íslenskt táknmál sem og menningu og sögu heyrnarlausra fyrir nemendum en það er með þetta eins og svo margt annað að með því að auka fræðslu í samfélaginu myndu fordómar minnka og aukinn skilningur yrði á þörfum náungans. Textun og túlkun á sjónvarpsefni er gríð- arlega ábótavant í ís- lensku samfélagi. En það myndi koma mjög mörgum til góða ef þessi einfalda þjónusta stæði til boða bæði heyrnarlausum og heyrnarskertum börn- um sem og öðrum (svo sem innflytjendum, börnum sem eru að læra stafsetningu og fleirum). Þeir sem lifa ekki og hrærast í ná- lægð við döff samfélagið þekkja sjaldnast þetta stórkostlega íslenska mál sem á erindi við alla, vegna þess hversu skemmtilegt og opið það er. Þess vegna eru heyrnarlausir háðir túlkaþjónustu í sínu hversdagslega lífi. Táknmál er ekki einkamál Táknmál er ekki einkamál heyrn- arlausra, heldur er það tungumál stórs hóps og opinbert mál hér á landi og ætti auðvitað að vera gert hærra undir höfði heldur en nú er gert. Öll opinber þjónusta ætti að huga betur að þessu. Ég vil nota tækifærið og færa Fé- lagi heyrnarlausra árnaðaróskir í til- efni þessara tímamóta og þakka þeim þeirra baráttu fyrir réttindum þessa málminnihlutahóps. Táknmál er opinbert mál Eftir Höllu Signýju Kristjánsdóttur Halla Signý Kristjánsdóttir » Táknmál er ekki einkamál heyrn- arlausra, heldur er það tungumál stórs hóps og opinbert mál hér á landi og ætti auðvitað að vera gert hærra undir höfði en nú er gert. Höfundur er þingmaður Framsóknarflokksins.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.