Morgunblaðið - 06.02.2020, Qupperneq 60

Morgunblaðið - 06.02.2020, Qupperneq 60
60 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. FEBRÚAR 2020 IB ehf | Fossnes A | 800 Selfoss | ib.is Nánari upplýsingar ib.is Ábyrgð og þjónusta fylgir öllum nýjum bílum frá IB Bílar á lager Sími 4 80 80 80 2019 Ford F-350 Lariat Sport Litur: Magnetic/ Svartur að innan. 6,7L Diesel ,450 Hö, 925 ft of torque Lariat með Sport pakka, Ultimate pakka , up- phituð/loftkæld sæti, heithúðaðan pall, fjarstart og trappa í hlera, Driver alert og distronic, Bang Olufssen hljómkerfi, 360 myndavél. VERÐ 11.390.000 m.vsk 2019 Ram Limited 3500 35” Nýtt útlit 2019! Litur: Granite Crystal Nýr 6,7L Cummins Turbo Diesel, 400 hö, togar 1000 pund! Aisin sjálfskipting, upphi- tanleg og loftkæld sæti, hiti í stýri, sóllúga, nýr towing technology pakki. 35” dekk. VERÐ 11.395.000 m.vsk 2019 Ford F-150 Lariat Sport Litur: Svartur, svartur að innan. FX4 offroad-pakki, Sport-pakki,Bakkmyn- davél, Bang & Olufsen hátalarakerfi, hiti í öllum sætum, hiti í stýri, fjarstart, o. fl. 3,5 L Ecoboost (V6), 10-gíra, 375 hestöfl 470 lb-ft of torque VERÐ 12.770.000 m.vsk 2019 Ford F-150 Lariat Litur: Platinumhvítur, svartur að innan. FX4 offroad-pakki, Bakkmyndavél, Bang & Olufsen hátalarakerfi, hiti í öllum sætum, hiti í stýri, fjarstart, o. fl. 3,5 L Ecoboost (V6), 10-gíra, 375 hestöfl 470 lb-ft of torque VERÐ 12.770.000 m.vsk eiginkonu Pitts, Angelinu Jolie, hafa gefist upp á hegðun hans, hver svo sem hún var. Hefur Pitt viðurkennt að hafa verið drykkfelldur og fór hann í opinskátt viðtal í GQ þar sem hann sagðist hafa farið í meðferð og leitað aðstoðar sálfræðings. Batnandi mönnum er best að lifa og allt það. „Zen“-yfirhalning Pitt og Jolie sóttu um skilnað árið 2016 og hefur leikarinn leikið á als oddi undanfarið ár eða svo, nokkurn veginn eftir að gengið var endanlega frá pappírunum. Þessi hressleiki virð- ist hafa náð hámarki í kvikmynda- verðlaunatíðinni sem nær hámarki á sunnudaginn með afhendingu Ósk- arsverðlauna sem Pitt mun líklega hljóta. Í Guardian er talað um að Pitt hafi farið í einhvers konar „zen“-yfirhaln- ingu, fundið innri ró og slái nú í gegn hvert sem hann fer með elskulegu viðmóti og glensi. Hafi hann m.a. tek- ið upp á því að bera nafnspjald í mat- arboði Óskarsins fyrir tilnefnda og gert ítrekað góðlátlegt grín að sam- starfsmönnum sínum. Síðast en ekki síst hefur hann verið duglegur að gera grín að sjálfum sér og eigin orðspori í slúðurmiðlum. Kvennamál koma þar auðvitað við sögu og sagðist Pitt ekki geta staðið við hlið konu án þess að sá orðrómur kæmist á kreik að þau væru byrjuð saman. Þess vegna geti hann ekki boðið mömmu sinni með á verðlauna- afhendingu! Sem er auðvitað leið- inlegt fyrir þau bæði. Nú síðast hitti hann sína fyrrver- andi, Jennifer Aniston, og fór vel á með þeim. Fór um leið sú saga á kreik að þau væru að stinga saman nefjum og sjálft Smartlandið hjólaði í ofanritaðan skömmu síðar og spurði hvað honum þætti um þetta mál, möguleikann á því að Pitt og Aniston tækju saman á ný. Stóð miðaldra manni nokkurn veginn á sama um það mál en forvitnin var þó vakin um hagi Pitts. Við nánari eftirgrennslan virtust margir menningarblaðamenn vera í sömu hugleiðingum. Vel smurð vél Steven Gaydos, ritstjóri Variety, segir í samtali við Guardian að bak við hverja einustu tilnefndu kvik- mynd í verðlaunakapphlaupinu mikla sé vandlega smurð kynningarvél sem stýri m.a. hegðun stjarnanna. Gam- ansöm ræða Pitts á verðlaunahátíð SAG hafi því líklega verið samin af grínistum og þess gætt að einnig kvæði við alvarlegri tón. „Við þekkj- um öll sársaukann og einmanaleik- ann,“ sagði Pitt í ræðu sinni um leik- arastéttina og vísaði um leið til eigin rauna sem svo mjög hefur verið fjallað um. Kynningarmaskínan vel- smurða var líklega með þessu að reyna að vekja samúð slúðraranna með Pitt og um leið allra þeirra sem fylgjast með slúðrinu. Hressi Pitt, sá sem er vinur allra og hinn mesti ljúflingur, stelur nú senunni af þeim Pitt sem slúður- miðlar fjölluðu svo grimmilega um fyrir nokkrum misserum. Pitt-inum sem drakk of mikið, reykti gras og of- bauð fjölskyldu sinni. Hann var vond- AF STJÖRNU Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Bandaríski mannleikarinn (hugtak fengið að láni frá fyrrverandi blaða- manni viðskiptablaðs Morgunblaðs- ins) Brad Pitt hefur heldur betur ver- ið í kastljósinu nú í ársbyrjun og sankað að sér verðlaunum fyrir að leika miðaldra áhættuleikara sem dettur hvorki af né drýpur. Cliff Booth heitir sá nagli og kemur mjög við sögu í nýjustu ræmu Quentins Tarantinos, Once upon a Time in Hollywood, eða Einu sinni var í Hollywood. Pitt er svellkaldur í meira lagi í þessu hlutverki, súkkulaðibrúnn og búkurinn að vanda tálgaður og stæltur, með sítt að aftan og í havaí- skyrtu. Pollrólegur þvælist hann um Hollywood í innihaldslitlum erinda- gjörðum fyrir vinnuveitanda sinn, kvikmyndastjörnu sem Leonardo Di Caprio leikur, á milli þess sem hann gefur hundinum sínum, horfir á sjón- varpið og lúskrar á mönnum sem ybba gogg. Fyrir þetta að því er virðist áreynslulitla hlutverk hlýtur Pitt nú hverja verðlaunastyttuna á eftir ann- arri og skákar gömlum brýnum á borð við Al Pacino og Anthony Hop- kins. Og til að bæta gráu ofan á svart gerir hann grín að frammistöðu sinni og um leið sjálfum sér og einkalífi sínu. Þegar Pitt tók við verðlaunum bandarískra samtaka kvikmynda- og sjónvarpsleikara á dögunum, SAG, reytti hann af sér brandarana og sagði m.a. um hlutverkið að það hefði reynt töluvert á sig að leika mann sem reykir gras, fer úr að ofan og semur ekki við eiginkonu sína. Sem er einmitt það sem Pitt hefur öðlast frægð fyrir og auðvitað líka fyrir að leika í kvikmyndum. Slúðurmiðlar hafa verið iðnir við að færa fréttir af meintum kannabis- reykingum Pitts, áfengisneyslu og kæruleysislegri hegðun. Hefur slúðr- ið m.a. gengið svo langt að halda því fram að Pitt hafi beitt börn sín of- beldi. Slúðrarar segja fyrrverandi Plakatapjakkurinn Pitt Kyntákn Pitt ber að ofan með 28 ára millibili, árið 1991 í Thelmu og Louise og 2019 í Once Upon a Time in Hollywood, hárþurrku skipt út fyrir hamar. ur pabbi og vondur eiginmaður, sam- kvæmt þeim. Leikur leikinn vel Kynningarmaskínan á bak við Once Upon a Time in Hollywood er öflug enda ræman eftir meistara Tar- antino. Maskínan hefur þó ekki land- að myndinni mörgum verðlaunastytt- um þó svo tilnefningarnar hafi sann- arlega verið margar. Nema þegar kemur að Brad Pitt. Hann tekur skælbrosandi og sultuslakur við hverjum verðlaunagripnum af öðrum. Gaydos fyrrnefndur bendir á að Pitt hafi það með sér að „leika leik- inn“, taki með glöðu geði þátt í öllu hátíðahavaríinu með sínum rauðu dreglum og stöðugu myndatökum, ólíkt keppinaut sínum, fýlupokanum Joe Pesci, sem forðist slíkt havarí eins og heitan eldinn. Hollywood hafi því endurnýjað ástarsamband sitt við gamla kyntáknið á tímum hnignunar gömlu, góðu kvikmyndastjörnunnar. Hún á víst undir högg að sækja, ég sel það ekki dýrar en ég keypti og Pitt er sagður hinn fullkomni „poster boy“ eða plakatapjakkur eins og koll- egi minn þýddi það skemmtilega. Ekki bara pjakkur En Pitt er ekki bara plakatapjakk- ur heldur er hann líka ágætur leikari. Ekki bara sætur strákur, eins og sagt er, líka listamaður með töluverða hæfileika. Það kann að gleymast þeg- ar Pitt rífur sig úr að ofan og sýnir glansandi þvottabrettið, nú síðast í kvikmynd Tarantinos, svo karlar og konur taka andköf í bíósölum vestan hafs sem austan. Töffarahlutverkin eru auðvitað orðin mörg en önnur meira krefjandi og val Pitts á hlut- verkum er oft áhugavert. Mætti þar nefna hlutverk Benjamíns Buttons sem fæddist gamall og varð sífellt yngri, hlutverk fjöldamorðingja í Kalifornia, hlutverk drottnandi föður í The Tree of Life og syrgjandi föður í Babel. Að mínu mati er Pitt þó einna bestur þegar hann slær á létta strengi. Hann var bráðfyndinn sem heimskur einkaþjálfari í Burn After Reading og hlutverk hans í Once Upon a Time in Hollywood er í grunninn spaugilegt. Tarantino gerir grín að þöglu hörðu týpunni, erkitýpu Hollywood-hasarmynda og vestra og um leið töffaraímynd Pitts. Kannski er þar komin skýringin á öllum verð- laununum sem Pitt hefur hlotið á síð- ustu vikum. Hann er að leika sjálfan sig og gerir það auðvitað frábærlega. Aftur til upphafsins Tarantino nýtur þess að leika sér með kvikmyndasöguna og prakkar- inn í honum fær útrás þegar hann lætur Pitt stökkva upp á þak einbýlis- húss og rífa sig úr að ofan til þess eins að laga sjónvarpsloftnet. Pitt fer sér hægt, kveikir í sígarettu, opnar bjór, og myndavélin daðrar við hann. Sjáið þennan töffara, sjáið þennan líkama! segir Tarantino og bak við sólgler- augun glittir í brosandi augu Pitts. Já, ég er ennþá kyntröll, segir hann með látbragði sínu og glottir við tönn. Með þessu atriði minnir Tarantino áhorfandann á hvernig Pitt skaust upp á stjörnuhimininn, þegar hann fór úr að ofan í Thelmu og Louise og hoppaði uppi í rúmi með kúrekahatt á höfði, vopnaður hárþurrku. Eftir það vildu karlar Pitt vera og þá væntan- lega líka þeir sem hampa honum nú með alls konar verðlaunastyttum. Dagblaðið New York Times bendir í pistli á að plakatapjakkar eins og Pitt, sætir og kynþokkafullir leikarar, hafi oftar en ekki átt erfitt uppdráttar þegar kemur að verðlaunum í Holly- wood. Nefndir eru hinir fögru Paul Newman og Robert Redford sem eru, líkt og Pitt, skapaðir fyrir hvíta tjaldið. Hrein unun á þá að líta. Í pistlinum er talað um fegurðargildr- una, þ.e. að fagrir leikarar á borð við Pitt, Newman og Redford hafi þurft að bíða lengur en ella eftir Óskars- verðlaunum. Newman var tilnefndur sjö sinnum áður en hann loksins hlaut styttuna. Redford var bara tilnefndur einu sinni og fór tómhentur heim. Pitt hefur að vísu hlotið Óskarinn sem framleiðandi en aldrei sem leikari. Hann er nú tilnefndur í fjórða sinn fyrir leik og ég tel álíka öruggt að hann hljóti verðlaunin og að Hildur Guðna hljóti þau fyrir Joker. Toj, toj, Hildur og Brad! »… það hafi reynttöluvert á hann að leika mann sem reykir gras, fer úr að ofan og semur ekki við eigin- konu sína. AFP Braniston? Brad Pitt og eiginkona hans fyrrverandi, Jennifer Aniston, hittust á SAG-verðlaunahátíðinni og slúðurmiðlar fóru á límingunum.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.