Morgunblaðið - 06.02.2020, Blaðsíða 68

Morgunblaðið - 06.02.2020, Blaðsíða 68
go crazy hefst á morgun! föstudag - mánudags aföllumvörum* 25% Sparadu- *20% afsláttur af sérpöntunum. Gildir ekki um vörur á áður niðursettu verði. ILVA Korputorgi, s: 522 4500 - www.ILVA.is laugardaga og sunnudaga 12-18 mánudaga - föstudaga 11-18:30 Ný sýning á verkum Errós, Sæborg, verður opnuð í kvöld kl. 20 í Lista- safni Reykjavíkur í Hafnarhúsi. Tækni- og vísindaframfarir urðu Erró snemma innblástur í verk þar sem mætast hið mennska og hið vél- ræna, segir á vef safnsins og hafi hann skoðað inngrip tækninnar í mannslíkamann og aðlögun manns- líkamans að vélinni. Verkin veki spurningar um mörk og á sýning- unni megi sjá verk sem endurspegli þessar hugleiðingar en sæborg er hljóðþýðing á enska orðinu cyborg. Spurningar um mörk FIMMTUDAGUR 6. FEBRÚAR 37. DAGUR ÁRSINS 2020 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 697 kr. Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr. PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr. Morgunblaðið birtir í dag yfirlit yfir launakjör dómara sem dæma á Ís- landsmótunum og bikarkeppnunum í knattspyrnu, handknattleik og körfuknattleik. Greiddar eru hátt í 40 þúsund fyrir leiki sem metnir eru mikilvægastir en um nokkra launaflokka er að ræða í öllum þessum greinum. Einnig geta aðrar greiðslur verið inni í myndinni. »57 Dómgæsla á Íslandi getur verið búbót ÍÞRÓTTIR MENNING Boðið verður upp á djass í hádeginu í dag, á morgun og hinn í þremur söfnum Borgarbókasafnsins. Í dag kl. 12.15 verður djassað í Grófinni, á morgun á sama tíma í Gerðubergi og á laugardag í Spönginni kl. 13.15. Bræðurnir Óskar og Ómar Guðjónssynir munu velja, hvor um sig, nokkra af sínum uppáhalds- djassstandördum til flutnings. Leif- ur Gunnarsson leikur með þeim á kontrabassa. Bræður í bókasöfnum Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Á meðan íslenska landsliðið í hand- bolta spilaði í Evrópukeppninni í Malmö í nýliðnum mánuði sat Ólaf- ur Andrés Guðmundsson, renni- smiður og handverksmaður, stífur framan við sjónvarpið og horfði á leiki liðsins, en afabarn hans og al- nafni hefur lengi verið með bestu handboltamönnum þjóðarinnar. „Hann hefði mátt byrja leiki og spila meira,“ segir afinn, sem held- ur sér í formi með því að ganga nokkra hringi í íþróttahúsi FH ann- an hvern morgun. Í tilefni 90 ára afmælis Ólafs í fyrrasumar héldu börn hans yfir- litssýningu á verkum hans. „Ég átti ekkert af verkunum, hafði gefið þau öll,“ segir hann og bætir við að hann sé enn við sama heygarðs- hornið. „Ég er reyndar farinn að taka það rólega, en er eitthvað að dunda mér.“ Sitt lítið af hverju Í æsku bjó Ólafur á Bræðraborg- arstíg 4 í Vesturbæ Reykjavíkur. Í sama húsi bjuggu kunnir knatt- spyrnukappar, bræðurnir Hörður, Bjarni og Gunnar Felixsynir. „Ég bjó í gini ljónsins, eins og ég sagði alltaf, því þeir reyndu stöðugt að fá mig í KR án árangurs. En ég fór upp á fæðingardeild eftir að Bjarni fæddist.“ Bætir við að hann hafi ekki verið íþróttamaður, þó að hann hafi stundum rennt sér á skíðum hjá ÍR. En hann hefur rennt ótelj- andi hluti síðan hann byrjaði að vinna í Vélsmiðjunni Hamri, sem þá var við Tryggvagötu, skammt frá heimilinu. Þar vann hann í áratug og lærði rennismíði. „Við fengum leyfi til þess að vera í smiðjunni fyrir jól og smíða muni til að gefa í jólagjafir,“ segir hann um byrj- unina á handverkinu. Hjónin Ólafur og Borghildur Sölvey Magnúsdóttir fluttu í Hafn- arfjörðinn 1957 og vann hann í Vél- smiðjunni Kletti næsta áratuginn auk þess sem hann var á sjónum á veturna. Þaðan fór hann í Véla- verkstæði Jóhanns Ólafs og byggði síðan upp málmiðnaðardeild við Iðnskólann í Hafnarfirði, en hætti þar vegna aldurs 1996 og hefur síð- an „dundað sér“ í bílskúrnum heima. Þar er hann þessa dagana að renna vita. „Ég gerði þann fyrsta fyrir um 30 árum,“ rifjar hann upp. Hann hefur ráð undir rifi hverju og hugsar fyrir hverju smá- atriði. Sýnir í því sambandi hvernig hann kom fyrir lýsingunni og botn- inum. Á borðinu er meðal annars kleinuskurðarjárn. „Það sker tvær kleinur í einu,“ segir hann hróð- ugur. Þegar málmur eða tré er annars vegar vefst ekkert fyrir Ólafi. Hann hefur búið til fíngerða skartgripi og stór listaverk og allt þar á milli. Meðal annars heiðursmerki hafn- firskra sjómanna, sem hann gerði fyrir Sjómannafélag Hafnarfjarðar eftir verkinu „Siglingu“ eftir Þor- kel Gunnar Guðmundsson. „Ég held einna mest upp á þetta, en annars smíða ég bara það sem mér dettur í hug,“ segir hann. „Ég vinn fínu hlutina inni í húsi, á göngu- deildinni, en hina hérna, á geðdeild- inni, sem ég kalla svo því ég sé sjálfur um geðhjálpina.“ Ólafur heldur úrklippum úr sænsku blöðunum til haga síðan al- nafninn og barnabarnið byrjaði að spila fyrir Kristianstad í Svíþjóð. „Fyrrverandi nágranni okkar send- ir mér þær í umslagi mánaðarlega og Óli fær þær þegar ég hrekk upp af, því hann segist ekki fylgjast með umfjöllun um sig.“ Flutti úr gini ljónsins og fór í handverkið Morgunblaðið/RAX Í bílskúrnum Ólafi Andrési Guðmundssyni er margt til lista lagt.  Ólafur Andrés Guðmundsson rennismiður situr ekki auðum höndum Viti Einn með öllu að hætti Ólafs.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.