Morgunblaðið - 10.03.2020, Síða 4

Morgunblaðið - 10.03.2020, Síða 4
KÓRÓNUVEIRUSMIT Á ÍSLANDI4 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. MARS 2020 BROTINN SKJÁR? Við gerum v allar tegun síma, spjaldtö og Apple t ið dir lva, ölva Bolholti 4, 105 • Reykjavík • S 534 1400 • www.smartfix.is s n j a l l t æ k j a þ j ó n u s t a Ten Points Pandora Ullarfóðraðir – Stærð 37-42 26.990 kr. Garðatorg 4 | s. 551 5021 | www.aprilskor.is Skíðasvæði í Ölpunum voru í gær skilgreind sem áhættusvæði vegna veirunnar sem veldur COVID-19- sjúkdómi. Þetta var ákveðið af sótt- varnalækni að viðhöfðu samráði við ríkislögreglustjóra. Sóttvarnalækn- ir telur aukna áhættu á smiti á þess- um svæðum. Það er vegna fjölg- ungar tilvika COVID-19 hjá fólki hér á landi og erlendis sem hefur verið á skíðasvæðum í Ölpunum. Íslendingar sem hafa dvalið á þessum svæðum frá 29. febrúar eiga að fara í 14 daga sóttkví frá því þeir yfirgáfu viðkomandi svæði. Fjöldi Íslendinga er á þessum svæð- um nú um stundir. Þeir eru hvattir til að skrá sig í gagnagrunn borg- araþjónustu utanríkisráðuneytisins vegna COVID-19, sem má nálgast á heimasíðu ráðuneytisins. Nýju áhættusvæðin eru t.d. Val Thorens, Chamonix, Zermatt, St. Anton, Ischgl, Serfaus, Sölden, Garmisch, Hintertux, Kitzbuhel, Saalbach, Wagrein o.fl. Öll skíðasvæði í Aust- urríki, Slóveníu og Sviss eru skil- greind sem áhættusvæði. Einnig skíðasvæði í Suður- Bæjaralandi í Þýskalandi og Provence-Alpes- Côte d’Azur og Auvergne-Rhône- Alpes í Frakklandi. Þau bætast við áðurnefnd áhættusvæði (Kína, Suð- ur-Kórea, Íran og Ítalía auk Ischgl í Austurríki). Þeir sem hafa verið á þessum svæðum og finna til einkenna eru hvattir til að hafa samband í síma 1700, tilgreina að þeir hafi verið á hættusvæði og fá ráðgjöf. Skilgreind áhættusvæði vegna kórónuveiru Þeir sem hafa verið á þessum svæðum og finna til einkenna skulu hafa samband við síma 1700 og fá ráðgjöf um næstu skref. Ekki mæta óboðaðir á sjúklingamóttökur. Skíðasvæði í Ölpunum eru nú skilgreind áhættusvæði vegna kórónuveiru Íslendingar sem hafa dvalið á þessum svæðum frá 29. febrúar eiga að fara í 14 daga sóttkví frá því að þeir yfirgáfu viðkomandi svæði. Heimild: Embætti landlæknis ÍTALÍA ÍRAN AUSTURRÍKI Öll skíðasvæði SVISS Öll skíðasvæði SLÓVENÍA Öll skíðasvæði KÍNA SUÐUR-KÓREA ÞÝSKALAND Skíðasvæði í Suður Bæjaralandi FRAKKLAND Provence-Alpes-Côte d‘Azur og Auvergne-Rhône-Alpes Umrædd svæði eru í Austurríki, Sviss, Þýskalandi og Frakklandi. Þessi svæði bætast við áður skilgreind áhættusvæði, sem eru Kína, Suður-Kórea, Íran og Ítalía. Mörg skíðasvæði lýst áhættusvæði Guðni Einarsson Hallur Már Hallsson Jóhann Ólafsson Ragnhildur Þrastardóttir Þessi vika er mikilvæg við að meta hversu markvissar aðgerðir stjórn- valda hafa verið frá því fyrstu smit nýju kórónuveirunnar greindust hér á landi. Þetta kom fram í máli Þórólfs Guðnasonar sóttvarnalæknis á blaða- mannafundi í gær. Fundurinn var haldinn í sérstökum fjölmiðlagámi sem settur hefur verið við stjórnstöð almannavarna í Skógarhlíð í Reykja- vík. „Hversu margir eru að veikjast al- varlega, það er mælikvarðinn sem við erum að horfa á fyrst og fremst,“ seg- ir hann. Sérstaklega sé fylgst með því hversu margir viðkvæmir einstak- lingar eru að veikjast. „Það er kannski meiri og betri mælikvarði á hversu margir eru að taka þessa veiru,“ útskýrir Þórólfur en hingað til hafa þeir sem greinst hafa með veiruna einungis sýnt væg einkenni. Fjöldi nýrra smita er að sjálfsögðu líka það sem helst er horft í en hvern- ig þau berast er ekki síður mikilvægt. Fjöldi smita sem verða innanlands þ.a. hversu margir hafa smitast af fólki sem hefur verið að snúa heim frá skíðasvæðum í Ölpunum er mikil- vægur mælikvarði. Þá hefur það mikið að segja hvort svokölluð þriðja stigs smit hafi orðið. Þau eiga við um þá sem hafa mögu- lega smitast af fólki sem fékk veiruna frá einhverjum sem hafði dvalist í er- lendis. Þessi atriði gefa mynd af því hversu mikil dreifingin sé í samfélag- inu. Samkomubann flókið mál Samkomubann bar einnig á góma á fundinum. Víðir Reynisson, yfirlög- regluþjónn hjá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra, sagði að reynsla annarra af slíku hafi verið skoðuð. Þórólfur sóttvarnalæknir sagði slíkt bann vera flókið í framkvæmd ef ætti að gera það vel. Víðir sagði að gripið yrði til slíks banns þegar sérfræðingar teldu það virka best. Því yrði beitt á þeim svæð- um þar sem þörf væri á slíku og því myndi það ekki endilega eiga við um allt landið. Hann bætti því við að reynsla frá fyrri faröldrum væri skoðuð í þessu samhengi. Þórólfur sagði að miklu máli skipti að gera þetta ekki of snemma í far- aldrinum og heldur ekki of seint. „Það sem skiptir mestu máli eru þessar samfélagslegu aðgerðir sem einstaklingar og fyrirtæki grípa til þar sem fólk er meðvitað um hvað á að gera í daglegu lífi. Það skiptir meira máli en boð og bönn frá yfir- völdum,“ sagði Þórólfur. Í sóttkví í Víetnam Fjórir Íslendingar sem eru á ferða- lagi um Víetnam sæta nú sóttkví við heldur óspennandi aðstæður. Sóttkvíin er inni á gömlum herspítala þar sem rimlar eru fyrir gluggum, hermenn á hverju strái og hreinlæt- isaðstaðan svo bágborin að Íslending- arnir þurftu að krefjast þess ítrekað að fá sápu á baðherbergi spítalans. Um er að ræða tvö pör, þau Þóru Valnýju Yngvadóttur og Júlíus Ing- ólfsson annars vegar og Benedikt Sigurjónsson og Sigrúnu Vikar hins vegar. Þau höfðu ferðast saman um Víetnam í um tíu daga þegar þessar óvenjulegu aðstæður komu upp og var þeim skipað að fara í sóttkví í gær sem mun að öllum líkindum ná yfir fjórtán daga. Ekkert þeirra finnur fyrir einkennum kórónuveirunnar og hefur enginn tekið úr þeim sýni. Tæplega 1.300 í gagnagrunni Tæplega 1.300 Íslendingar, staddir erlendis og sem áttu heimferð í gær eða síðar, voru í gærmorgun skráðir í gagnagrunn utanríkisráðuneytisins vegna COVID-19. Þar af voru 18 staddir á Ítalíu. Gagnagrunnurinn var settur upp til að veita Íslendingum á ferðalagi ferðaráð og aðrar upplýsingar vegna nýju kórónuveirunnar. Hægt er að skrá sig á heimasíðu ráðuneytisins. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Upplýsingagjöf Víðir Reynisson (t.v.) og Þórólfur Guðnason gáfu nýjustu upplýsingar á blaðamannafundi í gær. Mælikvarði á árangur aðgerða  Aðallega er horft til þess hversu margir veikjast alvarlega Í gær var búið að greina samtals 65 kórónuveirusmit hér á landi. Fimm ný tilfelli greindust í gær og komu tvö frá Verona á Ítalíu á laugardag og þrjú má rekja til smita hér innan- lands. Alls höfðu 560 sýni verið tek- in, þar af 59 í gær. Eftir hádegið bættust fimm smit við, þar af urðu þrjú þeirra innanlands en hin tvö voru rakin beint til Alpanna. Um 500 manns voru í sóttkví í gær. Búið var að aflétta sóttkví hjá 50 manns, samkvæmt upplýsingum frá embætti landlæknis. Við nánari athugun reyndist afar lítil hætta á að viðkomandi væru smitaðir. „Smitrakn- ingateymið vinnur ekki samkvæmt einfaldri já/nei- formúlu þegar beiting sóttkvíar er annars vegar. Það þarf að horfa til margvíslegra þátta þegar meta á þörf á sóttkví. Í tilfelli þessa hóps var sóttkví aflétt vegna þess að líkur á smiti voru tald- ar afar litlar,“ sagði í skriflegu svari frá embættinu. Margt fleira hefur áhrif á fjölda þeirra sem eru í sóttkví. Mikill meirihluti þeirra sem hafa greinst með staðfest smit komu til landsins flugleiðina. Það fólk fór margt í sóttkví áður en smit var staðfest. Þess vegna þurfti ekki að senda marga úr þeim hópi í sóttkví þegar smit var staðfest. Embættið segir að líklega sé ein- hver skekkja í tölunum því talið er að ekki tilkynni allir heimilislækni, heilsugæslu eða í síma 1700 að við- komandi sé í sóttkví. bjb@mbl.is, gudni@mbl.is Sóttkví aflétt hjá 50 manns  Kórónuveirusmit orðin 65  59 ný sýni voru tekin í gær Handþvottur er mikilvægur.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.