Morgunblaðið - 04.04.2020, Síða 2
KÓRÓNUVEIRUFARALDUR2
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. APRÍL 2020
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Flest stærstu stéttarfélög landsins
hafa ákveðið að hafa sumarhús og
sumarhúsabyggðir sínar lokuð um
páskana og sum jafnvel fram í maí,
vegna tilmæla heilbrigðisyfirvalda.
Hjá sumum félögum hefur ekki þurft
að loka því félagsmenn hafa sjálfir af-
bókað vegna tilmæla heilbrigðisyfir-
valda. Félagsmenn sem hafa borgað fá
leigugjaldið endurgreitt.
Fólk skilur ráðstafanirnar
Almannavarnir hafa áhyggjur af því
að ferðalög fólks um páskana geti vald-
ið auknu álagi á heilbrigðiskerfið, ekki
síst ef fólk hópast í sumarhús á svæð-
um þar sem heilsugæsla er veik.
Einnig að fólk gleymi sér í smitgát
þegar það kemur í nýtt umhverfi og
dvelur þar með öðru fólki.
Þá hafa Almannavarnir áhyggjur af
auknu álagi á heilbrigðiskerfið vegna
hugsanlegra slysa í kjölfar mikillar um-
ferðar um páskahelgina.
VR á 80-90 sumarhús og íbúðir og
hefur þau lokuð fram yfir páska. Stefán
Sveinbjörnsson, framkvæmdastjóri
VR, segir að margir séu búnir að af-
bóka. Fólk hafi almennt tekið því vel
þegar tilkynnt var um afturköllun
leigu. Hann segir að mikil ásókn hafi
verið í orlofshús VR þessar vikurnar,
væntanlega vegna ástandsins í þjóð-
félaginu.
Katrín Bryndísardóttir hjá Félagi
iðn- og tæknigreina segir að fé-
lagsmenn hafi almennt tekið þessum
ráðstöfunum vel. FIT á 30-40 orlofshús
og verða þau lokuð frá næstkomandi
mánudegi og til 4. maí þegar samkomu-
bann rennur út. Rafiðnaðarsamband
Íslands hefur ákveðið að loka öllum sín-
um sumarhúsum og afturkalla leigu út
mánuðinn. Sameyki sem á og rekur 70
eignir innanlands og á Spáni lokar ekki
en vekur athygli félagsmanna sinna á
tilmælum almannavarna og býðst til
að endurgreiða leigugjald.
Eining-Iðja í Eyjafirði hefur lokað
sumarhúsabyggð sinni á Illugastöðum
og íbúðir félagsins á höfuðborginni
munu einnig standa auðar um
páskana. „Fólk er búið að afbóka sig
sjálft og því ekki ástæða til frekari að-
gerða. Félagsmenn virðast taka til-
mæli þríeykisins alvarlega,“ segir
Anna Júlíusdóttir, varaformaður Ein-
ingar-Iðju.
Margir afbóka sjálfir
BHM hefur enn ekki ákveðið lokun
sinna bústaða en samkvæmt upplýs-
ingum félagsins hafa margir afbókað
að eigin frumkvæði. Í gærmorgun
höfðu þannig komið 29 afbókanir í þau
45 orlofshús sem áttu að vera til reiðu
um páskana.
Efling er með 53 hús og í gær var
verið að fara yfir málin þar.
Hundruð orlofshúsa auð um páska
Flest stærstu stéttarfélög landsins hafa ákveðið að hafa orlofshús sín og íbúðir lokuð um páskana
Sum hverfin eru lokuð fram í maí Margir félagsmenn hafa sjálfir afbókað vegna tilmæla yfirvalda
Morgunblaðið/Ómar
Við Meðalfellsvatn Stéttarfélögin eiga hundruð orlofshúsa og íbúða um
allt land. Stærstu sumarhúsabyggðirnar eru á Suðurlandi og í Borgarfirði.
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Kórónuveirusmit var staðfest á
hjúkrunarheimilinu Bergi í Bol-
ungarvík í gær. Tveir íbúar til við-
bótar voru í einangrun og átta í
sóttkví. Berg er hluti af Heilbrigðis-
stofnun Vestfjarða (HVEST). Fimm-
tíu ný sýni voru tekin í gær og biðu þá
alls 75 sýni greiningar. Staðfest kór-
ónuveirusmit voru 27. Um fjórðungur
allra Bolvíkinga var í sóttkví.
Sautján starfsmenn á Bergi,
stærsti hluti starfsliðsins, eru í
sóttkví. Sjö starfsmenn á Bóli, heimili
fyrir fatlað barn í húsnæði sem er
samtengt Bergi, eru einnig í sóttkví.
Reynt hefur verið að flytja starfsfólk
af öðrum deildum HVEST til starfa á
þessum stöðum eftir föngum. Einnig
var kallað til fólk úr bakvarða-
sveitum. Líka var von á fólki úr öðr-
um landshlutum til að vinna í stað
þeirra sem eru í sóttkví. Mikið álag er
og þörf á fleira starfsfólki á næstu
dögum og vikum.
„Okkur vantar enn tvo til þrjá
hjúkrunarfræðinga,“ sagði Gylfi
Ólafsson, forstjóri HVEST, í gær.
„Við erum komin með fimm sjúkra-
liða, sýnist okkur, sem þurfa líka að
ganga í störf annars staðar innan
stofnunarinnar. Það er reytingur af
fólki á öðrum deildum í sóttkví.“
Miklar takmarkanir hafa verið á
starfsemi Bergs síðustu vikur og
heimsóknabann. Hert hefur verið á
smitgát á Bergi og í sambyggðum
þjónustuíbúðum fyrir aldrað fólk.
Gylfi sagði að aðrar starfsstöðvar
HVEST hefðu sloppið við kórónu-
veirusmit til þessa, en ekki alveg við
að starfsfólk þyrfti að fara í sóttkví
vegna tengsla við tilvik þar sem grun-
ur var um smit.
Bolvíkingar eru mikið heima
„Líðanin í bænum er ótrúlega góð
miðað við allt og allt. Fólk er mikið
heima,“ sagði Jón Páll Hreinsson,
bæjarstjóri í Bolungarvík. Hringt var
í alla Bolvíkinga 70 ára og eldri og
þeir hvattir til að fara í sjálfskipaða
sóttkví. Jón Páll sagði að verslanir
væru opnar en veitingahús, kaffihús,
bókasafnið, snyrtistofan og hár-
greiðslustofan lokuð. Grunnskólinn
er lokaður en nemendur fá fjar-
kennslu líkt og í tónlistarskólanum.
Leikskólinn er lokaður nema fyrir
forgangshópa en enginn hefur óskað
eftir þeirri þjónustu.
„Við erum enn að moka göturnar
og sækja ruslið og höfnin er opin.
Mjólkurvinnslan Arna framleiðir enn.
Það kom upp smit í togaranum Sirrý
ÍS og hann er stopp. Fiskvinnslan er
að detta í páskafrí.“
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson
Bolungarvík Kórónuveirusmit kom upp á hjúkrunarheimilinu Bergi. Ellefu íbúar eru í einangrun eða sóttkví.
Fjórðungur allra
Bolvíkinga er í sóttkví
Smit á hjúkrunarheimilinu Margt starfsfólk í sóttkví
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Sjúkraþjálfarar fagna nýjum
möguleikum til fjarþjónustu við
skjólstæðinga sína, en þykir miður
hversu miklar
skorður eru sett-
ar af hálfu
Sjúkratrygginga
Íslands. Stofn-
unin hefur sam-
þykkt að þessa
þjónustu megi
veita skv. sér-
stakri gjaldskrá
sem gefin hefur
verið út. Regl-
urnar eru þær að
sjúkraþjálfarar megi sinna yfir
netið fólki sem þarf þjálfun, sem
ekki getur beðið, til dæmis í kjölfar
slysa eða aðgerða og veita fræðslu
og leiðbeiningar í myndviðtölum.
Sjúkraþjálfarar vilja aftur á móti
að þjónustan nái einnig til ung-
menna, fatlaðra og eldra fólks sem
glímir við stoðkerfiseinkenni,
færniskerðingu og fleira.
Samkvæmt heimild sóttvarna-
læknis mega sjúkraþjálfarar í nú-
verandi ástandi í þjóðfélaginu fá til
sín fólk sem þarf færniþjálfun til
dæmis eftir slys og sjúkrahúsþjón-
ustu. Nýjar heimildir Sjúkratrygg-
inga Íslands gefa sömuleiðis grænt
ljós á að þessum sama hópi sé sinnt
í fjarþjónustu. Eru greiðslur.
Sjúkratrygginga Íslands fyrir
síma- og myndviðtöl sjúkraþjálfara
viðþennan hóp mjög svipaðar og ef
skjólstæðingur kemur á stofu.
Öll flóra samfélagsins
„Til okkar kemur stór og fjöl-
breyttur hópur, í raun öll flóra
samfélagsins,“ segir Unnur
Pétursdóttir, formaður Sjúkra-
þjálfarafélags Íslands. „Við viljum
því geta mætt öllum með fjar-
viðtölum á öllum tímum, ekki bara
núna meðan kórónuveiran og far-
aldur hennar ganga yfir. Auðvitað
er fólk, sem þarf þjálfun eftir slys
og aðgerðir forgangshópur, en öðr-
um verður líka að sinna. Að opna á
nýja möguleika í meðferð snýst um
að fylgja tækniþróun. Við munum
því þrýsta á stjórnvöld að gera bet-
ur.“
Fleiri fái fjarþjón-
ustu sjúkraþjálfara
Möguleikar tækninnar séu nýttir
Unnur
Pétursdóttir