Morgunblaðið - 04.04.2020, Síða 12

Morgunblaðið - 04.04.2020, Síða 12
12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. APRÍL 2020 VINNINGASKRÁ 483 11288 20831 31489 40025 51173 63413 70719 828 11566 21358 31529 40079 52124 63621 70844 1094 11783 21680 31541 40853 52561 63668 70917 1880 12018 22886 31660 40927 53187 63844 71132 2339 12071 22923 32093 41141 53220 64282 71316 2649 12183 23090 32294 41273 53250 64769 72050 3209 12558 23200 32295 41945 53705 64831 72164 3311 12892 23479 32301 41993 53798 65029 72229 3463 13197 24082 32327 42357 54780 65062 72323 3581 13222 24350 32363 42586 54956 65183 72628 3733 13373 24773 32486 43518 55386 65247 73398 4034 13524 25182 32834 43823 55669 66215 73690 4361 14648 25317 33366 43859 55699 66305 74106 4812 14686 25623 33393 44535 55946 66393 74242 5463 14768 26438 33487 44832 56310 66495 75118 5648 15411 26779 33921 45191 56333 66562 75398 5872 15550 27241 33973 45644 56561 66978 75499 6089 15567 27315 34141 45963 56633 67297 75731 6097 15929 27604 34340 46022 57429 67362 76388 6392 16104 27653 34350 46086 57563 67654 76467 6664 16473 27674 34528 46521 57630 67794 76544 6753 16545 28055 34942 46590 57707 67852 76668 6785 16612 28297 35693 47396 57909 68087 77036 7153 17154 28436 36063 47460 58495 68372 77349 7333 17476 28489 36218 47599 58625 68401 77547 7583 17687 29153 36578 47697 58818 68418 77725 7933 19036 29282 36603 47758 59227 68469 77744 8167 19506 29384 36858 47825 59304 68686 77965 8381 19723 29677 37032 47855 59335 68745 79083 8472 19792 29786 37324 47965 59342 68887 79180 8717 20029 29901 37390 48630 59842 68911 79483 9549 20121 30403 38555 48646 60425 68958 9648 20211 30736 39331 48840 61172 69165 10212 20364 30883 39445 49705 61720 69247 10308 20365 30981 39473 50182 61836 69437 10568 20519 31233 39574 50904 61970 69486 11256 20692 31343 39657 50908 62194 70061 192 16016 22915 32839 42016 54458 63567 75796 425 17007 23103 33518 43121 55679 63603 75882 974 17011 23115 33553 44576 55974 66419 76010 3874 17271 23533 34758 44752 56374 68919 76604 5274 17920 24684 36155 44922 56967 70008 77239 5597 18814 25162 36192 47320 57510 70362 78188 7690 19285 26335 36353 50440 57904 71341 78534 8772 19711 26950 38575 51054 59292 72715 79440 12151 20204 27268 38733 51527 59319 73266 79756 12388 20932 27356 39030 51661 60148 73433 12494 21562 30006 39254 52224 60266 73598 12723 21635 30107 40903 53326 60831 74838 14317 22867 32344 41272 53441 61336 75177 Næstu útdrættir fara fram 8., 16., 24. & 30. apríl 2020 Heimasíða: www.das.is Vinningur Kr. 12.000 Kr. 24.000 (tvöfaldur) Vinningur Kr. 25.000 Kr. 50.000 (tvöfaldur) Vinningur Kr. 150.000 Kr. 300.000 (tvöfaldur) 5236 6828 9914 19290 64278 Vinningur Kr. 50.000 Kr. 100.000 (tvöfaldur) 2679 5126 36723 47722 54624 66577 2943 9003 37043 48266 59447 69229 4500 26810 45097 48402 60889 75816 5014 32493 45770 48765 64323 76194 Aðalv inningur Kr. 2.000.000 Kr. 4.000.000 (tvöfaldur) 7 2 1 0 4 48. útdráttur 3. apríl 2020 Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is Nú á kórónutímum erufastir fjarfundir hjá okk-ur Blúndunum á hverjuföstudagskvöldi. Þá er skilyrði að allar séu með eitthvað gott í glasinu, enda hefur þetta alltaf verið meira glasalyftingaklúbbur en saumaklúbbur. Við höfum aldrei komið saman til að sauma eða prjóna heldur skreppum frekar út að borða og gerum okkur glaðan dag,“ segir Hallveig Rúnarsdóttir söngkona, en hún og vinkonur hennar í sauma- klúbbnum Blúndunum láta sam- komubann ekki aftra sér frá því að hittast; þær notast við tölvutæknina sem býður upp á fjarfundi margra í einu í netheimum, í gegnum Zoom. „Ég mæli hiklaust með þessu fyrirkomulagi, þetta bætir, hressir og kætir. Fyrsti fundur okkar stóð yfir í þrjá klukkutíma og var geð- veikt sóttkvíarpartí, því tvær okkar voru í sóttkví. Maður verður að finna nýjar leiðir til að njóta samskipta á þessum tímum,“ segir Hallveig og bætir við að það sé dýrmætt að eiga góðar vinkonur og áríðandi að halda sambandinu. Þekkjast frá því í menntó „Við erum sex vinkonurnar í Blúndunum og höfum flestar þekkst frá því í menntaskóla þegar við vor- um samtíða í Hamrahlíð fyrir tutt- ugu árum. Við bjuggum til Blúndu- hópinn fyrir áratug og erum ekki með neina sérstaka reglu á okkar fundum, en núna er það ekkert minna en vikulega með fjarfund- unum,“ segir Hallveig og bætir við að þær séu alsælar með þetta fyrir- komulag. „Þetta er að mörgu leyti alveg jafn skemmtilegt. Þegar maður þekkir fólk svona vel, þá skiptir ekki máli hvert formið er á hittingnum. Mér finnst þessir fjarfundir að mörgu leyti þægilegri því nú heyri ég hvað allar segja, af því aðeins einn getur talað í einu svo vel sé. Á venjulegum fundi okkar úti í bæ myndast þrennar samræður í einu.“ Kærkomið að gleðja fólk Hallveig segir að fyrir hana sem söngkonu rétt eins og aðra lista- menn komi kórónutímar illa við hana, atvinnulega séð. „Verst er óvissan um í hversu marga mánuði ég verð tekjulaus eða tekjulítil. Sem betur fer hefur flest- um þeim verkefnum sem ég kem að verið frestað, en þau ekki felld niður. Ég vona það besta en það verður of- framboð á tónleikum í haust trúi ég,“ segir Hallveig og hlær. „Ég er enn að láta mig dreyma um að kannski geti orðið af stóru tónleikunum sem ég á að syngja með Sinfóníunni 14. maí. Þó að ég viti að það sé ansi mikil bjartsýni ætla ég samt að halda í vonina.“ Hallveig hefur fengið eitt skemmtilegt verkefni á kórónu- tímum, hún söng í beinni útsendingu sem var opin fyrir alla landsmenn á RÚV á tónleikum sem sendir voru út frá Hörpu og kallast Heima í Hörpu. Þar söng hún fyrir tómum Eld- borgarsal. „Þetta tók svolítið á, að syngja í beinni útsendingu, það tók mig smá tíma að gleyma mér, en á tónleikum fyrir fullum sal gleymi ég mér alltaf strax, dett inn í músíkina. Ég var meðvituð um að það yrði leiðinlegt ef ég myndi ruglast í söng eða texta, það væri ekki aftur tekið og til á internetinu til eilífðar,“ segir hún og hlær. „Þetta gekk rosalega vel og við Hrönn Þráinsdóttir undirleikari vor- um afar ánægðar, það er kærkomið að fá tækifæri til að gleðja fólk á þessum tímum. Mér finnst þetta svo fallegt verkefni hjá tónlistarhúsinu Hörpu, að nýta lokað hús með þess- um hætti, og ég er þakklát að hafa verið boðið að vera með.“ Hentar illa í söngkennslu Hallveig hefur aðeins verið að syngja við jarðarfarir á þessum erf- iðu tímum og þá er hún alltaf ein. „Ég mun einnig syngja í út- varpsmessu hjá Neskirkju á morg- un, pálmasunnudag, svo ég er ekki alveg verkefnalaus og það heldur mér gangandi. Maður þarf að halda sér við, það er rosalega mikilvægt,“ segir Hallveig, sem kennir söng og segist enn mega kenna í einkatímum í skólanum. „Við pössum upp á fjarlægðina og förum varlega, en mér hefur ekki fundist hentugt að kenna sönginn í fjarkennslu. Þó að maður geti gert ýmislegt eins og farið yfir texta og annað, þá finnst mér söngkennslan sjálf vera erfið í þeim aðstæðum.“ Hallveig segist við upphaf kór- ónufaraldurs lagt sig fram um að setja eitthvað skemmtilegt og upp- lífgandi á vegginn sinn á fésbókinni. „Ég set alls konar jákvætt og fallegt, stundum eitthvað fyndið og líka tónlistaratriði. Ég hélt ég hefði rosalega mikinn tíma, en það hefur verið minni frítími en ég bjóst við. Það breytist væntanlega í næstu viku.“ Geðveikt sóttkvíar- partí hjá Blúndum Fjarsaumaklúbbar hafa notið vinsælda í sam- komubanni. Blúndurnar eru alsælar með fyrir- komulagið og aðeins eitt skilyrði er fyrir fundi hjá þeim: að allar séu með eitthvað gott í glasinu. Blúndur hittast Hallveig í fjarsaumaklúbbi með Önnu Lísu Björnsdóttur, Þóru Björk Ólafsdóttur, Höllu Björgvins- dóttur og Valdísi Arnardóttur. Ein Blúnda var vant við látin og missti af fundinum, Ása Lind Finnbogadóttir. Gaman Hallveig og Hrönn undirleikari á æfingu fyrir Heima í Hörpu. Nú þegar allir hanga heima og langar að gera eitthvað skemmtilegt er tilvalið að föndra sam- an páskaskreytingar. Eitt af því gamla góða sem alltaf vekur lukku hjá börnum er að búa til göt með nál á hænuegg, blása innan úr þeim og mála þau svo í öllum regnbogans litum. Klippa greinar af trjánum í garðinum, setja í vasa og hengja fallegu eggin svo á þær. Gleðjandi, já. Nú er tími til að gera alls konar skemmtilegt fyrir páskana Blásið og málið egg Morgunblaðið/KristínHeiða Einbeitt Þessi vandar sig.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.