Morgunblaðið - 04.04.2020, Page 23
FRÉTTIR 23Erlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. APRÍL 2020
AFP
New York Þessir íbúar New York gengu um með grímu í gær, en borgar-
stjórinn bað íbúa í fyrradag um að hylja vit sín á almannafæri.
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Anthony Fauci, sem leitt hefur bar-
áttu Bandaríkjastjórnar gegn
kórónuveirunni, sagði í gær að til-
mæli stjórnvalda um notkun gríma
myndu breytast á næstunni, þar sem
nýjustu rannsóknir bentu til að veir-
an gæti smitast manna á milli við
venjulega öndun eða samtal, en ekki
bara þegar sýktur einstaklingur
hóstar eða hnerrar.
Núverandi afstaða Bandaríkja-
stjórnar er sú að einungis þeir sem
eru veikir eða sjái um umönnun
þeirra eigi að hylja andlit sín. Sum
borgaryfirvöld í Bandaríkjunum
hafa hins vegar ákveðið einhliða að
skikka íbúa sína til þess að nota
grímur. Í borginni Laredo í Texas-
ríki má lögreglan sekta fólk um 1.000
bandaríkjadali ef það er á ferli úti við
án þess að hylja andlitið.
Bill de Blasio, borgarstjóri New
York, hvatti hins vegar alla borgar-
búa til þess að hylja vit sín þegar
þeir færu út, en að sama skapi að
þeir ættu ekki að sækjast í eins
grímur og þær sem heilbrigðis-
starfsfólk notar, þar sem skortur er
á þeim. „Það getur verið trefill. Það
getur verið eitthvað sem þú býrð til
heima hjá þér. Það getur verið buff,“
sagði de Blasio, en rúmlega 57.000
staðfest tilfelli eru í borginni og
meira en 100.000 í New York-ríki.
Alþjóðaheilbrigðisstofnunin er
hins vegar enn að meta það hvort
ráðlagt sé að mæla með almennri
grímunotkun eða að fólk hylji andlit
sín, þar sem óttast er að slíkt muni
skapa falskt öryggi, en grímunotkun
getur ekki komið í staðinn fyrir fé-
lagsforðun eða að fólk þvoi hendur
sínar vel og reglulega.
Dauðsföllum fjölgar enn
Stjórnvöld á Spáni og í Bretlandi
tilkynntu í gær um mesta fjölda and-
láta á einum sólarhring vegna kór-
ónuveirunnar, fjórða daginn í röð. Þá
hafa dauðsföll í Bandaríkjunum aldr-
ei verið fleiri en undangenginn sólar-
hring og höfðu í gærkvöldi rúmlega
6.500 manns dáið þar af völdum
kórónuveirunnar.
Nú hafa rúmlega 56.000 manns
farist af völdum kórónuveirunnar.
Langflest þeirra, eða 14.681, hafa
orðið á Ítalíu og bættust 766 ný
dauðsföll við í gær. Engu að síður
telja stjórnvöld þar og á Langbarða-
landi, héraðinu sem verst hefur orðið
úti, að faraldurinn sé byrjaður að
hægja á sér. Þrátt fyrir það er enn
langt í að hægt verði að aflétta út-
göngubanni og öðrum aðgerðum
sem Ítalir hafa ráðist í til að stemma
stigu við faraldrinum.
Stjórnvöld í Singapúr ákváðu í
gær að loka skólum og vinnustöðum í
þeirri von að hægt yrði að koma í veg
fyrir „seinni bylgju“ faraldursins.
Singapúr hefur til þessa náð að halda
kórónuveirunni niðri með því að ein-
angra smit og rekja þau ítarlega, en
forðast hefur verið að fara í víðtækar
lokanir. Fjölgun smita sem rekja má
innanlands hefur hins vegar breytt
afstöðu stjórnvalda.
Þá hefur veirunnar nú orðið vart í
síauknum mæli í flóttamannabúðum
og á átakasvæðum heimsins og er
óttast að faraldurinn geti valdið
miklum usla þar. „Hið versta er enn
ókomið,“ sagði Antonio Guterres,
framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóð-
anna, í gær og vísaði til þess að stað-
festum tilfellum veirunnar væri nú
farið að fjölga ört á Sýrlandi, í Líbíu
og í Jemen.
Mæla senn með að fólk hylji andlitið
New York-búar beðnir um að hylja vit sín á almannafæri Rúmlega 56.000 manns látnir á heimsvísu
Atli Steinn Guðmundsson
atlisteinn@mbl.is
„Ég minnist með naumindum frétta
af því þegar Kennedy var skotinn.
Fall Berlínarmúrsins er mér í fersku
minni auk 11. september. Nú upp-
lifum við hins vegar atburð sem er án
hliðstæðu.“
Þetta skrifar Rory Cellan-Jones,
tæknipenni breska ríkisútvarpsins
BBC, og veltir fyrir sér kórónufar-
aldri fyrir tíma snjallsíma og áður en
drjúgur hluti jarðarbúa eignaðist
hliðartilveru á samfélagsmiðlum.
Segir Cellan-Jones af raunveru-
leika sínum þessa dagana, hann ræði
við vinnufélagana gegnum fjar-
fundabúnað og son sinn og barna-
barn um spjallmöguleikann Face-
time, þar sem þau sitji föst heima hjá
sér í íbúð í London.
„Hvað ef þetta hefði komið upp ár-
ið 2005? Facebook var þá eins árs og
einkum vettvangur amerískra há-
skólanema enn sem komið var. Hug-
takið samfélagsmiðlar hefði ekki
gert mikið meira en að kalla fram
spurult augnaráð viðmælenda,“
skrifar Cellan-Jones og fer líklega
ekki með fleipur.
Starfað í stofu
Þá er annað útilokað en að geta
þess að Apple ýtti ekki iPhone-
snjallsíma sínum úr vör fyrr en árið
2007, einni helstu tengingu pupuls-
ins við lýðnetið nú á tímum. „Sjö
milljónir heimila tengdust netinu
enn gegnum innhringisamband,“
skrifar Cellan-Jones og ber gæði
nettenginga nú og þá saman.
Segir hann 96 prósent breskra
heimila nú búa við breiðbandsteng-
ingar sem geri milljónum starfsfólks
í skrifstofustörfum í lófa lagið að
rækja störf sín heiman úr stofu.
„Samskiptatakmarkanir munu
leggja efnahag okkar í rúst, en hugs-
ið ykkur bara hve miklu verra við
gætum haft það.“
Skólar á lýðnetið
Fyrir aðeins 15 árum hefði smá-
söluverslun seint staðist það eftir-
spurnaráhlaup sem hún hefur sætt
bara síðustu vikuna. Skólamál séu
enn eitt dæmið. „Nóg var talað um
að koma skólunum á lýðnetið árið
2005, en það tal snerist mestmegnis
um að betrumbæta tölvukerfi skól-
anna frekar en að ýta undir fjar-
kennslu enda bjuggu fæstir grunn-
skólanemendur að eigin tölvu eða
breiðbandstengingu á þeim tíma.“
Jane Fonda í tækið
Cellan-Jones rifjar upp nýja til-
veru flatskjássjónvarpa í byrjun
aldarinnar. Þau sjónvörp hafi hins
vegar ekki verið nettengd og þar
með örðugt að tengjast veitum sem
leyfðu til dæmis foreldrum að taka
þátt í jógatíma án þess að vera við-
staddir, þegar frí gafst frá uppeldis-
hlutverkinu. „Valkosturinn var að
finna spólu með Jane Fonda og
skella henni í myndbandstækið.“
„Umræða síðustu ára um þá þjóð-
félagslegu breytingu sem snjallsím-
ar og samfélagsmiðlar hafa fært
okkur hefur vissulega verið hávær.
Sumir telja vini á samfélagsmiðlum
ekki vini í raun, ekkert komi í stað
þeirra samskipta sem við eigum aug-
liti til auglitis,“ skrifar höfundurinn.
„Við gætum hins vegar borið þann
lærdóm með okkur út úr þessum
hremmingum að hugsanlega sé þessi
nýja tækni okkur til góðs. Jafnvel
gæti hún bjargað mannslífum sé
henni skynsamlega beitt,“ klykkir
Rory Cellan-Jones, pistlahöfundur
BBC, út í hugleiðingum sínum um
þýðingu samfélagsmiðla á ögur-
stundu.
„Ósnjallr maðr“ árið 2005
Samskiptatækni heimsins er gjörbreytt Hver væri staðan án snjallsímans í
skugga faraldurs? Pistlahöfundur BBC lítur um öxl á gjörbreyttum tímum
AFP
Snjallt Maður ráðfærir sig við snjallsímann á götu í Stokkhólmi í fyrradag. Samskiptatæknin hefur gjörbylt lífinu eins og pistlahöfundur BBC rifjar upp.
AFP
2005 Karl Bretaprins og Camilla Parker-Bowles gengu í það heilaga 2005.
Giuseppe Conte,
forsætisráðherra
Ítalíu, birti í gær
opið bréf til Ur-
sulu von der
Leyen, forseta
framkvæmda-
stjórnar Evrópu-
sambandsins, þar
sem hann krafð-
ist þess að sam-
bandið sýndi
„meira hugrekki“ þegar kæmi að því
að aðstoða aðildarríkin við að vinna
sig út úr afleiðingum kórónuveir-
unnar.
Sagði Conte meðal annars í bréfi
sínu að þær hugmyndir sem von der
Leyen hefði þegar sett fram væru
ekki samboðnar því mikla ríkja-
sambandi sem ESB væri. „Ákvarð-
ana okkar í dag verður minnst um
áraraðir.“
Conte vill að öll aðildarríkin deili
skuldabyrðinni með útgáfu svo-
nefndra „kórónubréfa“, en nokkur
ríki í norðurhluta sambandsins, þar
á meðal Þýskaland og Holland, hafa
lagst hart gegn slíkum hugmyndum.
Von der Leyen hefur einnig verið
andsnúin þeim, en hún lagði til í
fyrradag að sambandið stofnaði sjóð
upp á 100 milljarða evra til þess að
aðstoða aðildarríkin við að greiða út
atvinnuleysisbætur. Conte sagði
þær hugmyndir ágætar en að þær
myndu ekki duga til þess að leysa
vandann.
Krefst meira
hugrekkis af
sambandinu
Opið bréf Contes
til von der Leyen
Giuseppe
Conte
Vladimír Pútín
Rússlandsforseti
sagði í gær að
Rússar væru
reiðubúnir að
vinna með Sád-
um og Banda-
ríkjamönnum að
því að draga úr
olíuframleiðslu.
„Ég tel nauð-
synlegt að sam-
eina krafta okkar til að koma jafn-
vægi á markaðinn og draga úr
framleiðslu,“ sagði Pútín, en olíu-
verð hefur hrunið á síðustu vikum
eftir að ekki náðist samkomulag
milli Rússa og OPEC-ríkjanna um
framleiðslumagnið.
Pútín reiðubúinn að
vinna með Sádum
Vladimír Pútín
RÚSSLAND