Morgunblaðið - 04.04.2020, Page 35
MINNINGAR 35
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. APRÍL 2020
✝ Ari Bogasonfæddist á
Seyðisfirði 5. októ-
ber 1930. Hann
lést á hjúkrunar-
heimilinu Fossa-
hlíð á Seyðisfirði
28. mars 2020.
Foreldrar Ara
voru Þórunn Vil-
hjálmsdóttir, f.
1902, d. 1990, og
Bogi Friðriksson,
f. 1897, d. 1968, versl-
unarmaður á Seyðisfirði. Systk-
in Ara voru Friðrik, f. 1933, d.
2014, Helga, f. 1932, d. 2014,
og hálfbróðir, Eiríkur Bjarna-
son, f. 1923, d. 2005.
Eftir nám í Barnaskóla Seyð-
isfjarðar gerði Ari út trillu,
stundaði verslunarstörf og
starfaði á skrifstofu sýslu-
mannsins á Seyðisfirði í mörg
ár.
Eiginkona Ara var Ásta Sig-
urjóna Þorsteinsdóttir, f. 1937,
þeirra eru Ari Björn, Hugi
Rafn og Ársól Heiða; og Herdís
Jóna, f. 1982, maki hennar er
Atli Örn Gunnarsson, f. 1985,
sonur þeirra er Veigar Örn. 3)
Þorsteinn, f. 1962, kvæntur
Ingu Þorvaldsdóttur. Börn
þeirra eru Eygló Rut, f. 1983,
sambýlismaður Gunnar Freyr
Einarsson, börn þeirra eru
Rakel Freyja, Alma Eir og
Brynja Sif; Egill, f. 1985, eig-
inkona hans er Elín Tinna
Logadóttir, dætur þeirra eru
Ólöf Björk og Katrín Inga; og
Ríkey Ásta, f. 1996, sambýlis-
maður Pálmi Stefánsson. 4)
Bryndís, f. 1963, gift Magnúsi
Björgvini Svavarssyni. Börn
þeirra eru Stefanía, f. 1984,
sambýlismaður hennar er
Sindri Freyr Sigurðsson, börn
þeirra eru Iðunn Arna og Vign-
ir Óli; Arna, f. 1989, sambýlis-
maður hennar er Ágúst Torfi
Magnússon, dóttir þeirra er
Lilja Bryndís og fóstursonur
Örnu er Sindri Róbert; og Stef-
án Ómar, f. 2000, unnusta hans
er Bryndís Steindórsdóttir.
Útförin fer fram í kyrrþey.
d. 2013. Þau gengu
í hjónaband árið
1958 og tíu árum
síðar stofnuðu þau
bókaverslun á
Seyðisfirði ásamt
hjónunum Eiríki
Sigurðssyni og
Guðrúnu Jóhönnu
Þorsteinsdóttur
(Lóu), systur Ástu.
Þau ráku bóka-
verslunina til sept-
emberloka 2005.
Ásta og Ari eignuðust fjögur
börn og þau eru: 1) Bogi Þór, f.
1959, kvæntur Hönnu Guðjóns-
dóttur. Dætur Boga eru Mag-
dalena, f. 1993, sambýlismaður
hennar er Björgvin Freyr
Ólafsson, sonur þeirra er
Benjamín Leó; og Ástrún Anna,
f. 1995. 2) Kristrún, f. 1960,
gift Birgi Hermanni Sigmunds-
syni. Dætur þeirra eru Ásta
Guðrún, f. 1980, maki hennar
er Símon Þór Gunnarsson, börn
Faðir okkar, Ari Bogason,
var ástríkur maður, þrautseigur
og stálheiðarlegur. Hann talaði
ekki mikið um ástina og fleira
sem skiptir mestu máli í lífinu
— en lét verkin tala. Við afkom-
endur hans verðum alla ævina
að læra af honum.
Faðir okkar fékk skarlatssótt
þegar hann var tveggja og hálfs
ár og út frá þeim veikindum
fékk hann lömunarveiki sem
varð til þess að vöðvar í fótum
hans rýrnuðu mjög. Hann bar
þess merki alla ævina og gekk
haltur, en lét ekki fótameinið
hamla sér í lífinu. Hann vildi
alltaf standa á eigin fótum.
Hugur hans hneigðist
snemma til sjós og eftir að hafa
starfað við beitningar, verslun-
arstörf og fleira á unglingsárun-
um hóf hann trilluútgerð á
Seyðisfirði. Sprenging varð í
gaskúti í bát hans í febrúar 1963
þegar hann var í Seyðisfjarð-
arhöfn. Báturinn eyðilagðist og
sökk en vaskir menn heyrðu
sprenginguna, stungu sér í sjó-
inn og björguðu föður okkar
sem slasaðist illa. Hann náði sér
aldrei að fullu eftir slysið, fékk
verki í hendurnar við minnstu
áreynslu, til að mynda þegar
hann ók bíl sínum.
Ari Boga var hægrikrati og
átti sæti í bæjarstjórn Seyðis-
fjarðar á árunum 1958-1966 fyr-
ir Alþýðuflokkinn, auk þess sem
hann sat í stjórn verkamanna-
félagsins Fram í mörg ár. Þrátt
fyrir jafnaðarmennskuna vildi
hann alltaf vera sjálfs sín herra.
Hann þáði ekki aðstoð og bæt-
ur, sem honum stóðu til boða
frá ríkinu vegna fötlunar hans,
því að hann vildi vera öðrum
óháður.
Eftir slysið starfaði hann í
Ríkinu á Seyðisfirði og seinna á
sýsluskrifstofunni en hugur
hans hneigðist alltaf til þess að
stunda sjálfstæðan atvinnu-
rekstur. Hann stofnaði bóka-
verslun á Seyðisfirði árið 1968
ásamt konu sinni, Ástu Þor-
steinsdóttur, og hjónunum Ei-
ríki Sigurðssyni og Guðrúnu Jó-
hönnu Þorsteinsdóttur (Lóu),
systur Ástu. Þau ráku bóka-
verslunina til septemberloka
2005.
Verslunarstörf áttu vel við
pabba en hann hélt alltaf í
drauminn um að róa til fiskjar á
sínum eigin báti. Hann keypti
nýjan bát árið 1978 og sagðist
ætla að róa um helgar sér til
skemmtunar þegar vel viðraði.
Svo fór þó að sjómennskan varð
aftur að aðalstarfi hans á hand-
færavertíðum næstu árin, þrátt
fyrir fóta- og handameinin.
Siglingin fram og til baka á
miðin við víkurnar norðan Loð-
mundarfjarðar tók heilar sex
klukkustundir, þannig að da-
gróðurinn var alltaf langur.
Lengstur var hann oft þegar illa
fiskaðist, því að sjómanninum
var meinilla við að koma í land
með „öngulinn í rassinum“, eins
og hann orðaði það. Veiðiferðin
stóð þá stundum í sólarhring.
Ef við systkinin fórum í róður
með honum voru það alltaf við
sem vildum gefast upp og fara í
land þegar illa fiskaðist, þótt við
værum ung og fullfrísk. Trillu-
útgerðinni lauk ekki fyrr en vél-
in í bátnum gafst upp og harð-
neitaði að fara í gang.
Við afkomendur Ara þökkum
starfsfólki hjúkrunarheimilisins
Fossahlíðar á Seyðisfirði fyrir
umhyggjuna sem honum var
sýnd árin sem hann dvaldi þar í
veikindum sínum.
Bryndís, Þorsteinn,
Kristrún og Bogi Þór.
Að kveðja einhvern sem mað-
ur elskar og hefur verið stór
hluti af lífi manns er alltaf erf-
itt. Við systkinin höfum verið
svo heppin að hafa átt frábæran
afa sem hefur tekið virkan þátt í
lífi okkar og opnað heimilið sitt
fyrir okkur þannig að okkur leið
eins og heimili hans og ömmu
hafi í raun verið okkar eigið.
Hann Ari afi var nokkuð
magnaður maður. Snemma á
lífsleiðinni veiktist hann og átti
það eftir að setja talsvert mark
á líf hans. Það var vissulega ým-
islegt sem hann gat ekki gert
sökum sinnar fötlunar en hann
lét þó fátt stoppa sig. Hann vildi
aldrei fá neina sérmeðferð, hann
kvartaði aldrei, hann vildi aldrei
að sér væri sérstaklega hampað
og hann hlífði sér aldrei. Hann
var alveg ótrúlega þrjóskur. Við
höfum hlegið að því síðustu
daga þegar við höfum minnst
hans að maður þurfti stundum
að bíta í tunguna á sér þegar
hann stóð svoleiðis fast á sínu
en það var líklegast þessi
þrjóska sem kom honum í gegn-
um lífið. Og það var ekki síður
þessi þrjóska sem var sá eig-
inleiki í fari hans sem maður
dáðist mest að.
Við vorum svo heppin að fá
að alast upp í mikilli návist við
ömmu og afa. Við eyddum öllum
jólum í æsku með þeim og öllum
páskum. Þau misstu ekki af
einu afmæli og við ferðuðumst
með þeim um allt land á sumrin.
Við eyddum óteljandi klukku-
stundum hjá þeim á Múlaveg-
inum þar sem afi kenndi okkur
að spila, já eða við horfðum
jafnvel á Spaugstofuna sem afi
samviskusamlega tók alltaf upp
á VHS. Það er ekki sjálfgefið að
fá að eyða jafn miklum tíma
með ömmu sinni og afa og við
gerðum og fyrir það verðum við
ævinlega þakklát.
Í dag eru þessar minningar
algjör fjársjóður og það er fátt
dýrmætara í lífinu en góðar
minningar. Við þökkum fyrir
allar þær stundir sem við áttum
með afa og við systur erum
þakklátar að börnin okkar hafi
fengið að kynnast afa langa sem
dáði þau og dýrkaði.
Það er erfitt að kveðja, sér í
lagi á þessum tímum. Það er
erfitt að hafa ekki fengið að
hitta afa þessar síðustu vikur í
lífi hans og fengið að faðma
hann og kyssa. Við huggum
okkur þó við allar minningarn-
ar, þá staðreynd að afi lifði
löngu og góðu lífi og að hann sé
nú loksins komin í arma Ástu
ömmu þar sem hann á heima.
Takk fyrir allt, elsku afi. Við
höfum ávallt elskað þið og það
munum við ávallt gera. Það var
enginn eins og þú.
Þín barnabörn,
Stefanía, Arna
og Stefán Ómar.
Okkur systkinin langar til að
minnast Ara Bogasonar frænda
okkar í þessu skrítna ástandi
sem nú er. Því miður er okkur
sem og öðrum sem hefðum vilj-
að vera viðstödd jarðarför hans
ekki gert kleift að kveðja Ara
vegna Covid19. Því viljum við
minnast hans í örfáum orðum
um leið og við sendum ættingj-
um okkar fyrir austan okkar
innilegustu samúðarkveðjur.
Við systkinin eigum mismun-
andi minningar um Ara frænda.
Á meðan amma Þórunn og afi
Bogi bjuggu fyrir austan heim-
sóttu elstu systkinin oft Seyð-
isfjörð. Þegar afi Bogi dó og
amma Þórunn flutti suður til
móður okkar Helgu urðu ferð-
irnar austur stopulli en alltaf
var heimsótt þegar færi gafst.
M.a. fór Ragna í sumarvinnu á
Seyðisfjörð sem unglingur og
Örn bjó hjá þeim Ara og Ástu
þegar hann var í æfingakennslu
á Seyðisfirði. Þá var haldið eft-
irminnilegt ættarmót 2011 á
Seyðisfirði þar sem okkur fyrir
sunnan var tekið með kostum
og kynjum. Eina minningu eig-
um við systkinin þó sameigin-
lega sem yljar okkur enn. Bóka-
minningin mikla! „Kassinn er
kominn frá Ara frænda og Ástu
í bókabúðinni.“ Þetta var þegar
við vorum lítil, fyrir löngu. Um
hver jól kom fullur kassi af bók-
um, innpökkuðum í jólapappír,
og smá namminamm.
Ein bók á mann, stundum
tvær og stundum þrjár bækur á
mann. Með þetta kúrðum við
inn í jólanóttina. Síðan eru liðin
mörg ár og margt gerst frá
þeim tíma. En jæja gæskur, eða
gæskan eins og Ari notaði
gjarnan. Nú ertu farinn, en
minningin um góðan frænda lif-
ir.
Svo er því farið:
Sá er eftir lifir
deyr þeim sem deyr
en hinn dáni lifir
í hjarta og minni
manna er hans sakna.
(Hannes Pétursson)
Börnum Ara, Bryndísi, Þor-
steini, Kristrúnu og Boga Þór,
vottum við okkar dýpstu samúð
sem og öllum afkomendum og
aðstandendum.
Þóra, Ragna,
Björn og Örn.
Ari Bogason
Við önnumst alla þætti undirbúnings og fram-
kvæmd útfarar ásamt vinnu við dánarbússkiptin.
Við þjónum með virðingu og umhyggju að
leiðarljósi og af faglegum metnaði.
Magnús Sævar Magnússon,
umsjón útfara
Við erum til staðar
þegar þú þarft á
okkur að halda
Útfararþjónusta
& lögfræðiþjónusta
Vesturhlíð 2, Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is
Með kærleik og virðingu
Útfararstofa Kirkjugarðanna Ástkær móðir okkar og amma,
ELÍSABET JÓNA ERLENDSDÓTTIR,
Barðavogi 5, Reykjavík,
lést á Landspítalanum við Hringbraut
laugardaginn 15. febrúar.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk
hinnar látnu.
Þökkum auðsýnda samúð og viljum senda sérstakar þakkir til
starfsfólks skilunardeildar Landspítalans við Hringbraut fyrir
góða umönnun síðustu ár.
Minningarstund verður haldin síðar.
Gerður Jónsdóttir
Sigrún Jónsdóttir
Birna Jónsdóttir
Erlendur Jónsson
Gísli Jónsson
Elísabet Sara Gísladóttir
Arnar Logi Gíslason
Bróðir okkar, mágur og frændi,
GYLFI ÞÓR ÞÓRHALLSSON,
Engihjalla 17, Kópavogi,
áður búsettur á Akureyri,
lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi
sunnudaginn 29. mars.
Í ljósi aðstæðna fer útförin fram í kyrrþey.
Margrét Guðlaug Þórhallsd. Karl Eiríksson
Þórhalla Þórhallsdóttir Hjörtur Hjartarson
Valdimar Þórhallsson Inga Hjálmarsdóttir
Eyþór Rafn Þórhallsson Margrét Sigurðardóttir
og frændsystkinin
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
KATRÍN MARKÚSDÓTTIR,
Breiðvangi 30,
Hafnarfirði,
lést á líknardeildinni í Kópavogi 1. apríl.
Vegna ástandsins í samfélaginu mun útförin fara fram í kyrrþey
en minningarathöfn verður auglýst síðar.
Pétur Th. Pétursson
Markús Elvar Pétursson Helena Línud. Kristbjörnsd.
Guðbjörg Huld Pétursdóttir Robert German
Rakel Ýr Pétursdóttir Þorvaldur Sveinsson
og barnabörn
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
ÁGÚSTA RAGNHILDUR
BENEDIKTSDÓTTIR,
Eyrargötu 6, Ísafirði,
andaðist á Landspítalanum í Fossvogi
1. apríl.
Vegna aðstæðna verður jarðarförin auglýst síðar.
Fjölskyldan vill koma á framfæri þakklæti til starfsfólks A7 á
Landspítala fyrir alúð og einstaka umönnun við erfiðar
aðstæður.
Bjarni Líndal Gestsson
Kristján Þór Bjarnason
Auður Bjarnadóttir Ingibjartur Ingvarsson
Jóna Símonía Bjarnadóttir Þorsteinn Traustason
Guðný Kristín Bjarnadóttir Jónas Hallur Finnbogason
barnabörn og langömmubörn
Morgunblaðið birtir minn-
ingargreinar endurgjalds-
laust alla útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda Morg-
unblaðinu greinar eru vinsam-
lega beðnir að nota innsendikerfi
blaðsins. Smellt á Morgunblaðs-
lógóið í hægra horninu efst og
viðeigandi liður, „Senda inn
minningargrein,“ valinn úr felli-
glugganum. Einnig er hægt að
slá inn slóðina www.mbl.is/
sendagrein
Skilafrestur | Ef óskað er eftir
birtingu á útfarardegi verður
greinin að hafa borist eigi síðar
en á hádegi tveimur virkum dög-
um fyrr (á föstudegi ef útför er á
mánudegi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað get-
ur birting dregist, enda þótt
grein berist áður en skilafrestur
rennur út.
Lengd | Minningargreinar sem
birtast í Morgunblaðinu séu ekki
lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt
að senda lengri grein.
Minningargreinar