Fréttablaðið - 26.08.2020, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 26.08.2020, Blaðsíða 6
Navalní veiktist skyndi- lega þegar hann var í flugi frá Tomsk til Moskvu á fimmtudaginn. Erum með mikið úrval af allskonar bílaverkfærum á frábæru verði! ViAir 12V loftdælur í miklu úvali. Hleðslutæki 12V 6A 6T Búkkar 605mm Par Jeppatjakkur 2.25t 52cm. Omega Viðgerðarkollur 4.995 9.999 17.995 7.495 Smáratorgi 1, 201 Kópavogi, sími 588 6090, vl@verkfaeralagerinn.is Mán.-fim. kl. 9-18, fös. kl. 9-18:30, lau. kl. 10-18, sun. kl. 12-17 Verkfæralagerinn Navalní er nú haldið í dái í Berlín. HEILBRIGÐISMÁL Embættismenn í Kremlín í Rússlandi neita ásök- unum þess efnis að Vladimír Pútín, forseti landsins, hafi fyrirskipað að eitrað skyldi fyrir stjórnmálarýn- inum Alexei Navalní. Dmitry Peskov, talsmaður rúss- neskra stjórnvalda vísar þeim ásök- unum til föðurhúsanna og dregur enn fremur í efa læknisfræðilegt mat þýskra lækna en Navalní liggur þungt haldinn í dái á sjúkrahúsi í Berlín.  Navalní er þó ekki talinn í lífshættu.   Læk nar sem meðhönd luðu Navalní segja líklegt að eitrað hafi verið fyrir honum en Peskov telur að vanda hefði átt betur til verka við matið á ástæðu veikinda Navalnís og skilur ekki hvers vegna svo mikið lá á að gefa út læknisfræðilega ályktun.   Navalní veiktist skyndilega þegar Rússar neita ásökunum um eitrun HEILBRIGÐISMÁL Sala áfengis jókst töluvert í fyrstu bylgju COVID-19 faraldursins og í sumar. Samkvæmt tölum ÁTVR var salan 8,2 pró- sentum meiri í mars á þessu ári en í fyrra, þá tók salan stökk upp í 31,6 prósent milli ára í apríl. Alls seldust tæplega 2,4 milljónir lítra af áfengi í apríl, samanborið við 1,8 milljónir lítra í sama mánuði í fyrra. Aukningin var 18,5 prósent í maí og 14,8 prósent í júní. Aukningin var 26,6 prósent í júlí, en þær tölur eru ekki samanburðarhæfar þar sem sala verslunarmannahelgarinnar var í júlí í ár en var í ágúst í fyrra. Víðir Sigrúnarson, yfirlæknir á Sjúkrahúsinu Vogi, segist finna fyrir þessu í störfum sínum. „Fólk fór að vera meira heima í sóttkví, eða að vinna. Þá voru færri hindranir og það fór að drekka meira áfengi. Fólk hefur verið í dagdrykkju jafnvel frá morgni til kvölds og er að koma veikara inn til okkar. Þá er fólk farið að drekka spritt,“ segir Víðir. Spritt er iðulega gert ódrykkjar- hæft með vondu bragði eða sápu- efnum sem valda ógleði. Curtis P. Snook, sérfræðingur í klínískum eitrunarfræðum við Landspítal- ann, segir spritt sem notað sé til að verjast COVID-19 faraldrinum inni- halda meira en 80 prósent af etanóli. „Aðalvandamálið er etanólmagnið, það eykur líkurnar á meðvitundar- leysi og uppköstum í lungu. Þetta er mjög sterkt áfengi og margir taka ekki eftir því hvað þetta er sterkt,“ segir Curtis. Víðir segir að hópurinn sem hefur tekið upp á því að drekka spritt fái sömu meðferð og aðrir alkóhólistar. „Í sjálfu sér er meðferðin sú sama, en þar sem þetta fólk er að innbyrða áfengi frá morgni til kvölds þá eru áhrifin á taugakerfið miklu meiri. Fráhvörfin eru líka mun verri og hættulegri,“ segir Víðir. Hann segir framboð fíkniefna nóg hér á landi þrátt fyrir faraldur- inn. „Kannabis er mikið til fram- leitt hér á landi, líka amfetamín. Það virðist enn vera til kókaín á markaðnum,“ segir Víðir. Vandinn sem er mest vaxandi er þó notkun ópíóða. „Það er ópíóða faraldur sem geisar. Það er alltaf að fjölga hjá okkur fólki í við- haldsmeðferð, þar sem sumir eru í meðferð þar sem beitt er skaða- minnkandi meðferð. Þar erum við að reyna að koma í veg fyrir að fólk í neyslu ofskammti sig af öðrum lyfjum. Það eru nú um 190 manns í viðhaldsmeðferð hjá okkur, hluti af þeim er í skaðaminnkandi með- ferð.“ Í fyrstu bylgju COVID-19 farald- ursins var plássum á Vogi fækkað úr 60 niður í 40, nú eru þau um 50. Í dag bíða um 530 manns eftir að komast inn á Vog og þarf fólk að bíða í 108 daga eftir plássi. Staðan hefur þó verið verri, fyrir rúmu ári voru 730 á biðlista og í byrjun árs var meðal- biðtíminn 120 dagar. arib@frettabladid.is Áfengisvandi fólks aukist í faraldrinum Sala á áfengi jókst töluvert í COVID-19 faraldrinum. Tæplega þriðjungi meira var selt af áfengi í apríl en í sama mánuði í fyrra. Yfirlæknir á Vogi segir fólk koma veikara inn en áður, þá sé fólk farið að drekka spritt sem sé til víða. Sprittbrúsum, sem innihalda mikið af etanóli, hefur verið dreift víða vegna COVID-19. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Brynhildur hlakkar til að opna leikhúsið á ný. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK COVID -19 „Þetta eru gríðarlega góðar fréttir og nú getum við klárað að búa til þær góðu sýningar sem við ætlum að sýna áhorfendum okkar þegar kallið kemur, þetta breytir öllu,“ segir Brynhildur Guð- jónsdóttir, leikhússtjóri Borgar- leikhússins, um breytingar í nýrri auglýsingu heilbrigðisráðherra á takmörkunum á samkomum þar sem til að mynda eru leyfðar snert- ingar á æfingum í sviðslistum og tónlist. Breytingar á samkomutakmörk- unum voru kynntar á fundi ríkis- stjórnarinnar í gærmorgun og hafa breytingar einnig verið gerðar á ákvæði um almenna nálægðartak- mörkun. Rekstrar aðilum verður nú gert að tryggja að minnsta kosti tvo metra á milli ein stak linga sem eru ekki í nánum tengslum, en áður var kveðið á um tvo metra á milli ein- stak linga sem deildu ekki heimili. Þá verða íþróttir almennt leyfðar og í líkamsræktarstöðvum og á sund- og baðstöðum mega gestir aldrei vera fleiri en nemur helmingi eða minna af leyfilegum hámarks- fjölda gesta samkvæmt starfsleyfi. Nýju reglurnar um takmark- anir á samkomum taka gildi næst- komandi föstu dag, þann 28. ágúst, og verða í gildi til 10. septem ber. Borgarleikhúsið hefur verið lokað síðan í mars vegna sóttvarnaað- gerða og hafa aðgerðir stjórnvalda vegna kórónaveirufaraldursins haft margs konar áhrif á leiklistar- og menningarlíf hér á landi. Bryn- hildur segist vona að breytingarnar séu skref í áttina að því að opna leik- húsið fyrir gestum að nýju. „Vonandi styttist í það að við getum tekið á móti gestum án tak- markana en þetta er það sem við erum búin að vera að bíða eftir, nú fáum við að koma saman og næra sálina.“ – bdj Segir að nýjar reglur muni breyta öllu fyrir leikhúsið Borgarleikhúsið hefur verið lokað síðan í mars vegna sóttvarnaaðgerða. hann var í flugi frá Tomsk til Moskvu á fimmtudaginn síðastliðinn og strax kviknaði grunur um að Pútín eða samstarfsmenn hans væru að baki veikindunum þar sem Navalní hefur gagnrýnt rússnesk stjórnvöld harðlega síðustu misseri. Stuðnings- menn Navalnís telja að eitrinu hafi verið komið fyrir í tebolla hans á flugvellinum í Tomsk. – hó 2020 2019 % breyting mars 1.906.103 1.761.117 8,2 apríl 2.397.368 1.821.530 31,6 maí 2.493.923 2.103.730 18,5 júní 2.400.378 2.091.143 14,8 júlí* 2.979.520 2.352.855 26,6 Júlí er ekki að fullu samanburðarhæfur á milli ára þar sem sala verslunarmanna- helgarinnar var í júlí í ár en í ágúst í fyrra. ✿ Sala áfengis hjá ÁTVR í lítrum 2 6 . Á G Ú S T 2 0 2 0 M I Ð V I K U D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.