Fréttablaðið - 26.08.2020, Page 12

Fréttablaðið - 26.08.2020, Page 12
Vinur, bróðir og félagi, Ingólfur Kristófer Sigurgeirsson lést á Hrafnistu Skógarbæ, sunnudaginn 23. ágúst. Athöfnin verður í Fríkirkjunni, 8. september kl. 15.00. Ragnheiður J. Sverrisdóttir Soffía Hrefna Sigurgeirsdóttir Hreggviður Sigurbjörn Sverrisson og fjölskyldur Starfsfólk og íbúar Njálsgötu 74. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Sigurður Guðberg Helgason frá Þorlákshöfn, Siggi Helga frá Seli, lést þann 19. ágúst sl. Útför hans fer fram frá Þorlákskirkju, Þorlákshöfn, föstudaginn 28. ágúst og hefst athöfnin kl. 13.00. Vegna samkomutakmarkana verða aðeins nánustu aðstandendur í kirkjunni en útvarpað verður fyrir þá sem verða í bílum á staðnum. Einnig verður streymt frá athöfninni á www.siggihelgaminning.is Ragna Erlendsdóttir Linda Björg Sigurðardóttir Vilhelm Á. Björnsson Guðlaug Sigurðardóttir Björgvin Jón Bjarnason Jónas Sigurðsson Áslaug Hanna og fjölskyldur. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi, sonur og bróðir, Guðmundur Haukur Gunnarsson lögfræðingur, lést að heimili sínu 16. ágúst sl. Útförin fer fram í Háteigskirkju föstudaginn 28. ágúst klukkan 13. Í ljósi aðstæðna verða fjöldatakmarkanir í kirkjunni en athöfninni verður streymt á vefslóðinni https://youtu.be/H59lv9sk9UI María Dóra Björnsdóttir Diljá Guðmundardóttir Elías Guðni Guðnason Breki Guðmundsson María Ýr Elíasdóttir Ragnheiður Hulda Hauksdóttir Erla Gunnarsdóttir Pálmi Jónasson Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Ragnar Bragi Jóhannesson frá Ásakoti, Biskupstungum, lést á sjúkrahúsinu á Selfossi 15. ágúst. Útför fór fram laugardaginn 22. ágúst í kyrrþey að hans ósk. Börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. Okkar ástkæri Sigfús Fannar Stefánsson Kaplaskjólsvegi 91, (Selási 23 Egilsstöðum), lést 19. ágúst á heimili sínu. Jarðarförin auglýst síðar. Anna Sigfúsdóttir Stefán Pétur Jónsson fjölskyldur og vinir. Ástkær eiginkona mín, móðir, dóttir, tengdadóttir og systir, Eva Björg Skúladóttir náms- og starfsráðgjafi, Hólatúni 13, Akureyri, sem lést 15. ágúst síðastliðinn, verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju 27. ágúst kl. 13.30. Vegna aðstæðna í þjóðfélaginu verða aðeins nánasta fjölskylda og vinir viðstödd. Athöfninni verður streymt á Facebook (jarðarfarir í Akureyrarkirkju-beinar útsendingar). Gunnlaugur Þorgeirsson Þorgeir Viðar Gunnlaugsson Þrúður Júlía Gunnlaugsdóttir Guðrún Hólmfríður Þorkelsdóttir Skúli Viðar Lórenzson Þrúður Gunnlaugsdóttir Þorgeir Jónas Andrésson Guðrún Erla Sigurðardóttir Sigurlaug Skúladóttir Finnbjörn Vignir Agnarsson Aðalheiður Skúladóttir Þórður Friðriksson Hólmfríður Guðrún Skúladóttir Tryggvi Kristjánsson Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Þorlákur A. Aðalsteinsson bóndi frá Baldursheimi, Davíðshaga 10, Akureyri, lést mánudaginn 10. ágúst. Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju föstudaginn 28. ágúst kl. 13.30. Í ljósi aðstæðna verða einungis nánustu aðstandendur og vinir viðstaddir, en athöfninni verður streymt beint á Facebook-síðunni: Jarðarfarir í Akureyrarkirkju. Hjördís G. Haraldsdóttir Aðalsteinn Þorláksson Ingibjörg Ólafsdóttir Anna Margrét Þorláksdóttir Róbert Sverrisson Halla Björk Þorláksdóttir Arnar Pálsson og fjölskyldur. Ástkær móðir, tengdamóðir, sambýliskona, dóttir, systir, mágkona og stjúpmóðir okkar, Petrína Sæunn Randversdóttir lést á krabbameinsdeild Landspítalans 14. ágúst. Útför fer fram frá Grafarvogs- kirkju fimmtudaginn 27. ágúst klukkan 13. Vegna aðstæðna í þjóðfélaginu verður útförinni streymt á https://www.facebook.com/groups/petrinajardarfor Andri Þór Þórarinsson Randver Þór Þórarinsson Fríða Ósk Halldórsdóttir Vilhjálmur Magnús Þ. Þórarinsson Embla Líf Hallsdóttir Guðmundur J. Guðmundsson Ingibjörg Hauksdóttir Haukur Randversson Hrafnhildur Jónsdóttir Hrefna Guðmundsdóttir Gabríela Rós Guðmundsdóttir Belinda Mist Guðmundsdóttir Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og bróðir, Eiríkur Brynjólfsson kennari og rithöfundur, lést sunnudaginn 23. ágúst. Steinunn H. Hafstað Matthildur Sigurðardóttir Auðun Svavar Sigurðsson Einar Eiríksson Fjóla Dögg Sverrisdóttir Guðrún Eiríksdóttir Stefán Arnar Ómarsson Jón Haukur Hafstað Árnason barnabörn og systkini. Þegar ég var tuttugu og tveggja ára var ég að sækja mér spýtu í timburverslun-ina Völund við Klapparstíg og datt í hug að labba inn í útvarpshúsið við Skúlagötu 4 og athuga hvort þar vantaði starfs- kraft og var ráðinn sem þulur.“ Þannig lýsir Ævar Kjartansson því hvernig hann varð fyrst starfsmaður Ríkisútvarpsins. Eftir 1980 kveðst hann hafa verið þar samfellt og verða til 1. september. Hann segir hafa verið meira um áður fyrr að fólk kæmi inn af götunni með útvarps- efni. „Kennarar héldu erindi, nemendur komu með BA-ritgerðir og bjuggu til útvarpsþætti og aldrað heiðursfólk las úr gömlum bókum og kom fram í þátt- unum Um daginn og veginn.“ Á uppvaxtarárum á Grímsstöðum á Fjöllum segir Ævar útvarpið hafa verið helsta tengilið við umheiminn. „Blöð komu hálfsmánaðarlega á veturna en útvarpið hélt manni upplýstum um gang mála. Ég man líka að ég hlustaði á Grettissögu sem smákrakki, ægilega spenntur,  en heyrði ekki allt vegna truflana svo ég lærði að lesa í hvelli því mig vantaði inn í.“ Hann kveðst þakk- látur fyrir tónlistina sem  útvarpið ól hann upp við. „Lög unga fólksins voru mikilvæg og klassíska tónlistin sem var svo ríkjandi hafði líka áhrif, til dæmis „síðasta lag fyrir fréttir“. Eftir stúdentspróf frá MA tók HÍ við hjá Ævari. „Þegar ég var unglingur langaði mig að verða prestur en þegar í háskólann kom fór ég í hagræn þjóð- félagsfræði, sem var stjórnmálafræði, mannfræði og félagsfræði, og hefur nýst mér vel. En um fimmtugt skellti ég mér í guðfræðina, tók meira að segja embætt- ispróf og sótti um eitt prestakall, Laufás við Eyjafjörð, en fékk ekki og hef ekki sótt um aftur. Er samt hrifinn af kirkj- unni sem menningarstofnun og söng í Mótettukór Hallgrímskirkju í tólf ár.“ Þótt sjötugsafmælið marki tímamót býst Ævar ekki við að halda upp á dag- inn. „Konan mín, Guðrún Kristjánsdótt- ir, er fjórum dögum eldri en ég og við héldum smá veislu í sælureitnum okkar á Skarðsströnd um síðustu helgi. Það er ekki stemning núna fyrir að hóa fólki saman svo við látum það gott heita.“ gun@frettabladid.is Spýtukaup enduðu vel Hinn góðkunni útvarpsmaður, Ævar Kjartansson frá Grímsstöðum á Fjöllum, er sjötug- ur í dag. Síðasti fasti viðtalsþáttur hans hjá RÚV fer í loftið næsta sunnudagsmorgun. Ævar mun spjalla við Guðrúnu Pétursdóttur í lokaþættinum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON 2 6 . Á G Ú S T 2 0 2 0 M I Ð V I K U D A G U R12 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð TÍMAMÓT

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.