Fréttablaðið - 29.08.2020, Side 8

Fréttablaðið - 29.08.2020, Side 8
Launakostnaður OR- samstæðunnar hækkaði um 15 prósent milli ára. Samkvæmt lögreglu var Blake vopnaður hníf þegar hann var skotinn. Samfélagsfræðsla fyrir flóttamenn á vegum Vinnumálastofnunar Vinnumálastofnun gengst fyrir verðkönnun í hönnun og gerð vefsíðu fyrir samfélagsfræðslu fyrir flóttamenn. Þeir aðilar sem áhuga hafa á gerð vefsíðunnar eru beðnir um að senda tölvupóst á netfangið flottamenn@vmst.is. Fyrirspurnarfrestur er til kl.13.00 þann 11. september næstkomandi. Gerð hverfisskipulags fyrir Breiðholt er á lokametrunum og af því tilefni bjóðum við til kynningar-fjarfundar. Þar mun starfsfólk borgarinnar og skipulagsráðgjafar segja frá hug- myndum um uppbyggingu í hverfunum og hvernig hverfis- skipulagið mun geta haft áhrif á þróun þeirra til framtíðar. Allar upplýsingar um streymið og hvernig hægt verður að koma spurningum á fundinn eru á hverfisskipulag.is. Kynningar-fjarfundur um nýtt hverfisskipulag fyrir Breiðholt 31. ágúst nk. klukkan 19.30-21.00. Reykjavíkurborg Umhverfis- og skipulagssvið REYKJAVÍK Launakostnaður Orku- veitu Reykjavíkur hækkar um fimmtán prósent milli ára sam- kvæmt hálfsársuppgjöri samstæð- unnar. Laun og launatengd gjöld voru 3,4 milljarðar króna á fyrstu sex mánuðum ársins í fyrra, en í ár var upphæðin 3,9 milljarðar króna. Samkvæmt upplýsingum frá fjármálaskrifstofu OR eru nokkrar skýringar á hækkuninni. Stærsti liðurinn eru kjarasamningar og afturvirkar launahækkanir þeim tengdum. Þá hafa starfsmenn síður farið í orlof á þessu ári. Launakostn- aður hækkaði einnig vegna tíma- bundinnar fjölgunar starfsmanna vegna COVID-19 faraldursins sem og sumarstarfsfólki. Eru vonir bundnar við að þetta jafni sig út og að hluti gangi til baka. Eyþór Arnalds, stjórnarmaður í Orkuveitunni, segir þetta enn eitt dæmið um stækkandi bákn Reykja- víkurborgar, en OR er að mestu leyti í eigu borgarinnar. „Margt smátt gerir eitt stórt. Þessi hækkun er langt umfram almennt verðlag,“ segir Eyþór. – ab „Margt smátt gerir eitt stórt“ BANDARÍKIN „Af hverju skutu þeir mig svona oft?“ spurði Jacob Blake föður sinn þegar hann vaknaði á sjúkrahúsi í Wauwatosa í Wiscons- in í gær eftir að hafa verið skotinn sjö sinnum af lögreglu í Kenosha á sunnudag. „Elsku barn, þeir áttu aldrei að skjóta þig,“ hefur CNN eftir föður Blake. Mál Blake hefur sett réttindi svartra aftur í sviðsljósið í Banda- ríkjunum. Mál George Floyd í maí og mótmælin í kjölfarið, kennd við Svört líf skipta máli, hafa breiðst út um allan heim í sumar. Vonir voru bundnar við að búið væri að ná varanlegum árangri í að stöðva óréttlæti í garð svartra borgara og þá sérstaklega of beldi af hálfu lög- reglu. Blake, sem er 29 ára gamall svartur maður, er lamaður fyrir neðan mitti. Samkvæmt lögreglu voru lögreglu- þjónarnir að svara útkalli frá konu, sem ekki hefur verið nafngreind, sem sagði að Blake ætti ekki að vera á staðnum. Lögregluþjónar mættu á staðinn fimm mínútum eftir útkallið og reyndu að handtaka Blake. Hann hélt á hníf og var á leið inn í bíl sinn þar sem þrjú börn hans sátu. Að sögn lögreglu tókst ekki að yfirbuga hann öðruvísi en að skjóta hann. Einn lögreglumaður skaut öllum skotunum, Rusten Sheskey, en hann er hvítur. Sheskey og annar lögreglu- maður eru nú í leyfi. Atvikið náðist á myndband, þar sést lögreglumaður kalla að Blake að „sleppa hnífnum“ áður en hann skaut. Andrew Yang, fyrrverandi for- setaf rambjóðandi demók rata, ræddi við föður Blake, sem sagðist vera reiður yfir að sonur sinn væri handjárnaður við sjúkrarúmið. Tony Evers, ríkisstjóri Wisconsin, sagði við blaðamenn að hann gæti ekki ímyndað sér hvers vegna það væri nauðsynlegt. Lögregla sagði í svari til BBC að handjárnin væru stefna þar sem Blake hefði verið eftirlýstur. Mikil mótmæli brutust út í Kenosha á mánudaginn og héldu þau áfram út vikuna. Á miðvikudaginn var hinn 17 ára gamli Kyle Ritten- house handtekinn fyrir að skjóta tvo mótmælendur til bana. Ritten- house er nú í haldi í Illinois. Donald Trump Bandaríkjaforseti sendi sama dag þjóðvarðlið til borgarinnar. Fjölskylda Blake hefur rætt við Joe Biden, forsetaefni demókrata, en sögðu að enginn frá Hvíta húsinu hefði haft samband við þau. Þúsundir mótmælenda komu saman í Washington D.C. í gær þar sem bæði mál Blake og dauði Floyd voru í fyrirrúmi. Kamala Harris, varaforsetaefni demókrata, ávarp- aði mótmælendur með fjarfundar- búnaði og kallaði eftir breytingum á viðhorfum í garð svartra. arib@frettabladid.is Svört líf áfram í brennidepli Mótmæli hafa staðið yfir alla vikuna eftir að svart- ur maður var skotinn sjö sinnum af lögreglu. Hefur málið sett málefni svartra enn frekar á oddinn. Mótmælandi fyrir utan ráðhús Kenosha í Wisconsin. MYND/EPA 2 9 . Á G Ú S T 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R8 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.