Fréttablaðið - 29.08.2020, Side 45
Trausti fasteignasala, trausti@trausti.is,
s.546-5050, Vegmúla 4, 108 Reykjavík
Fasteignasali óskast!
Trausti fasteignasala óskar eftir að ráða
löggiltan fasteignasala eða nema til löggildingar
fasteignasala til starfa.
Vaxandi fasteignasala í léttu og skemmtilegu
starfsumhverfi. Góðir tekjumöguleikar.
Reynsla af sölu fasteigna kostur.
Fáið frekari upplýsingar hjá Kristjáni Baldurssyni
í síma 867-3040 eða kristjan@trausti.is
B.Ó. Smiðir ehf. óska eftir að
ráða smiði í vinnu
Umsóknir og fyrirspurnir má senda á bosmidir@bosmidir.is
Spennandi störf hjá EFLU
EFLA vill fá til liðs við sig kraftmikið, jákvætt og metnaðarfullt starfsfólk sem skarar
fram úr á sínu sviði. Við leitum að ólíkum en öflugum einstaklingum í hóp okkar
sérfræðinga sem sinna fjölbreyttum verkefnum í teymum þvert á svið fyrirtækisins.
Við bjóðum upp á afbragðs starfsumhverfi, sveigjanlegan vinnutíma og góðan
starfsanda.
FORRITARI Í HUGBÚNAÐARÞRÓUN
Starfið felur í sér fjölbreytt verkefni í hugbúnaðargerð og sjálfvirknilausnum fyrir
viðskiptavini sem og þátttaka í vöruþróun innan fyrirtækisins. Fagteymi gagnagrunns-
og veflausna er hluti af sviði iðnaðar hjá EFLU og starfsstöð þess er í Reykjavík.
HÆFNISKRÖFUR
• Háskólamenntun á sviði tölvunar-,
verkfræði eða annarra raungreina
sem nýtast í starfi
• Haldbær tækniþekking á forritun,
gagnagrunnum og landupplýsinga
kerfum
• Metnaður fyrir vandaðri vöruþróun
HÆFNISKRÖFUR
• Háskólamenntun á sviði tölvunar-,
verkfræði eða annarra raungreina
sem nýtast í starfi
• Mikil þekking og/eða reynsla í
þróun á þremur eða fleiri af eftir-
töldum forritunarmálum: Type
Script, JavaScript, Python, C# og/
eða Java
• Brennandi áhugi á hugbúnaðar-
þróun
• Sjálfstæð og öguð vinnubrögð
• Áhugi og leikni í mannlegum
samskiptum
• Framúrskarandi hæfni í íslensku
og ensku í ræðu og riti
VERKEFNASTJÓRI GÆÐA OG ÞJÓNUSTU
Starfið felur í sér fjölbreytt verkefni í gæða- og þjónustustjórnun við þróun hug-
búnaðar og veflausna. Meðal verkefna væri gæðaeftirlit, skjölun og samskipti við
viðskiptavini og sérfræðinga innanhúss. Fagteymi gagnagrunns- og veflausna er
hluti af sviði iðnaðar hjá EFLU og starfsstöð þess er í Reykjavík.
• Nákvæmni, skipulagshæfni og
öguð vinnubrögð
• Áhugi og leikni í mannlegum
samskiptum
• Framúrskarandi hæfni í íslensku
og ensku í ræðu og riti
SÉRFRÆÐINGUR Í RAFLAGNAHÖNNUN
Starfið felur í sér fjölbreytt og sérhæfð verkefni á sviði raflagnahönnunar m.a.
hönnun rafkerfa, gerð verklýsinga og kostnaðaráætlana. Fagteymi tæknikerfa er hluti
af byggingasviði EFLU og hefur aðsetur í Reykjavík.
HÆFNISKRÖFUR
• Háskólamenntun í rafkerfum,
rafmagnsverk- eða rafmagns-
tæknifræði
• Reynsla af raflagnahönnun
er kostur
• Reynsla í notkun AutoCad og Revit
• Nákvæmni, skipulagshæfni og
öguð vinnubrögð
• Áhugi og leikni í mannlegum
samskiptum
Öll starfsemi EFLU byggir á teymishugsun þar sem samvinna, þátttaka og
samábyrgð í sterkri liðsheild eru grundvallaratriði. Hjá EFLU starfa fleiri karlar
en konur og hvetjum við því konur sérstaklega til að sækja um störfin.
Umsókn, með upplýsingum um menntun og starfsreynslu, skal berast rafrænt
gegnum vefsíðu EFLU, efla.is/laus-storf fyrir 15. september 2020. Farið verður með
allar umsóknir sem trúnaðarmál.
NÁNARI UPPLÝSINGAR: mannaudur@efla.is
UMSÓKN: efla.is/laus-storf
FRESTUR: 15. september efla.is412 6000
Yfirlæknir á tauga-
og hæfingarsviði
Staða yfirlæknis á tauga-og hæfingarsviði Reykjalundar
er laus til umsóknar frá og með 1. október 2020 eða sam-
kvæmt nánara samkomulagi. Um er ræða fullt starf auk
gæsluvakta.
Gerð er krafa um íslenskt lækningaleyfi og sérfræði-
réttindi í endurhæfingarlækningum eða annarri sérgrein
ásamt reynslu sem nýtist vel í verkefnum tauga- og
hæfingarteymis. Í starfinu felst fagleg ábyrgð lækninga,
samstarf við aðra stjórnendur og þátttaka í öflugu
teymisstarfi sem einkennist af einstaklingsmiðaðri
nálgun. Teymið þjónar fjölbreyttum hópi sjúklinga með
færniskerðingu á grunni sjúkdóma eða áverka á tauga-
kerfi. Í starfinu felast ennfremur störf á göngudeild,
þátttaka í fræðslustarfi og handleiðslu yngri lækna.
Laun byggja á kjarasamningi Læknafélags Íslands og
fjármálaráðherra auk samkomulags milli Reykjalundar
og starfandi lækna á Reykjalundi.
Upplýsingar um starfið veita Stefán Yngvason,
framkvæmdastjóri lækninga í síma 585-2000
stefan@reykjalundur.is og Guðbjörg Gunnarsdóttir,
mannauðsstjóri í síma 585-2143 gudbjorg@reykjalundur.is
Umsóknarfrestur er til 13. september 2020
Umsóknarform og upplýsingar um Reykjalund má finna á
heimasíðunni www.reykjalundur.is
Reykjalundur, endurhæfingarmiðstöð SÍBS. Sími 585
2000 – www.reykjalundur.is
Rammi hf óskar eftir að ráða 1. Vélstjóra á
skuttogarann Múlaberg SI22 sem gerður er út
til rækjuveiða frá Siglufirði .
Stærð aðalvélar skipsins er 1325 KW og þarf
viðkomandi að hafa réttindi fyrir þá stærð.
Umsóknir má senda á: ragnar@rammi.is en
einnig eru veittar upplýsingar í síma 862 0069.
Vélstjóri