Fréttablaðið - 29.08.2020, Side 68

Fréttablaðið - 29.08.2020, Side 68
Tækniþróunarsjóður tths.isÞrír milljarðar til nýsköpunar Þú nærð lengra með Tækniþróunarsjóði Tækniþróunarsjóður úthlutar um þremur milljörðum króna til nýsköpunar á árinu. Sjóðnum bárust nærri 900 umsóknir, sem er um 40% aukning milli ára. Yfir 130 fyrirtæki, stofnanir og einstaklingar eru að fá nýja styrki auk þeirra sem þiggja framhaldsstyrki frá fyrra ári. Tækniþróunarsjóður er mikilvægur stuðningsaðili nýsköpunar í íslensku atvinnulífi. Nánari upplýsingar eru á tths.is Tækniþróunarsjóður veitir styrki til nýsköpunarverk-efna. Hann er opinn öllum atvinnuvegum, leggur áherslu á fjölbreytt nýsköpunarverkefni og að ýta undir alþjóðlegt samstarf í nýsköpun. Fréttablaðið tók starfs- menn Tækniþróunarsjóðs tali og ræddi við þá um stöðu og stefnu sjóðsins, auk nokkurra fulltrúa á meðal núverandi og fyrri styrk- þega. „Í dag er mikil gróska í nýsköp- unarumhverfinu. Það endur- speglast í fjölda góðra umsókna til sjóðsins, en umsóknafjöldinn hefur margfaldast á undanförnum árum,“ segir Lýður Skúli Erlends- son, sérfræðingur hjá Rannís, og heldur áfram: „Fjölmörg sprotafyr- irtæki, sem á sínum fyrstu skrefum hlutu styrk frá Tækniþróunar- sjóði, hafa náð eftirtektarverðum árangri. Þar má nefna Kerecis, Valka, Nox medical, GRID, Meniga og Orf líftækni.“ Sigurður Björnsson, sviðsstjóri rannsókna- og nýsköpunarsviðs hjá Rannís, hefur orðið: „Fjölmörg efnileg sprotafyrir- tæki sem nú eru styrkþegar sjóðs- ins, gætu fylgt í kjölfar þessara fyrirtækja og náð góðum árangri á markaði. Samkvæmt áhrifamati á Tækniþróunarsjóði er ljóst að sum þessara verkefna hefðu ekki farið af stað, eða væru mun smærri í sniðum, og gætu þar með jafnvel hafa misst af „tækifærinu“, ef ekki hefði komið til opinber stuðningur frá Tækniþróunarsjóði,“ segir Sigurður. Hratt brugðist við Í maí var bætt í hefðbundna vorút- hlutun Rannís. „Það gerðum við til að ná því markmiði að koma fjármunum sjóðsins í vinnu fyrir sumarlok og eins var haustúthlutun ársins flýtt, til að bregðast hratt við nýjum forsendum í nýsköpunar- samfélaginu, enda er nýsköpun nauðsynleg til að takast á við sam- félagslegar áskoranir,“ upplýsir Svandís Unnur Sigurðardóttir, sérfræðingur hjá Rannís. Á árinu er ný Markáætlun Rannís meðal annars helguð rannsóknum og nýsköpun í tækni- breytingum og sjálf bærni. „Samfélagslegar áskoranir eru því mikilvægar í umræðu um nýsköpun þessi misserin – og þar munu stóru samkeppnissjóðirnir, Tækniþróunarsjóður og Rann- sóknasjóður, spila stóra rullu,“ segir Kolbrún Bjargmundsdóttir, sérfræðingur hjá Rannís, og heldur áfram: „Önnur ekki síður mikilvæg aðgerð stjórnvalda er réttindi til skattendurgreiðslu til fyrirtækja vegna rannsókna og nýsköpunar- verkefna. Þar verður bætt verulega í skattalegan hvata fyrirtækja á þessu ári til að auka nýsköpun. Lítil og meðalstór fyrirtæki geta fengið allt að 35 prósenta endur- greiðslu af kostnaði við verkefni og stór fyrirtæki 25 prósent.“ Fjölbreytt atvinnulíf Það er viðurkennd staðreynd að nýsköpun er lykill að styrkari stoðum efnahagslífsins. Hjálmar Gíslason er forstjóri fyrirtækisins Grid, sem er styrk- þegi hjá Tækniþróunarsjóði: „Í einhverjum skilningi er hlut- verk nýsköpunar að láta reyna á hluti sem hingað til hafa ekki verið gerðir og jafnvel þótt ómögulegir. Flestar þessara tilrauna mistakast, en þær sem takast færa út mörk hins mögulega og stækka þar með kökuna margfrægu. Í íslensku samhengi er nýsköpun einfaldlega nauðsynleg til að auka fjölbreytni atvinnu- og efnahagslífsins. Sam- setning íslenska hagkerfisins er fábreytt og við höfum þess vegna ítrekað lent í að áföll í einstökum greinum hafa því sem næst sett samfélagið á hliðina. Fjölbreyttara atvinnulíf stendur betur af sér slík áföll og minnkar þannig áhrif slíkra áfalla á samfélagið í heild.“ Hjálmar er stofnandi fyrirtækj- anna Grid og Datamarket. „Datamarket náði góðum árangri og var selt árið 2014, með góðri útgöngu fyrir alla sem að því komu. Tækniþróunarsjóður hefur verið mjög mikilvægur stuðnings- aðili í íslenskri nýsköpun síðan ég hóf minn feril og sennilega sá allra mikilvægasti þegar kemur að fjár- mögnun fyrstu stiga nýsköpunar.“ Ásta Sóllilja Guðmundsdóttir er stjórnarformaður Laka Power, sem frá árinu 2015 hefur þróað einstaka lausn, PowerGRAB, sem vinnur raforku úr rafsegulsviði sem umlykur háspennulínur. Hún tekur undir orð Hjálmars. „Það verður ekki hjá því komist að heimurinn er síkvikur. Eina vitið er að líta á breytingar sem tækifæri og bregðast við þeim með nýsköpun. Hvernig okkur tekst til með innlenda nýsköpun, mun skilja milli þess hvort lífsgæði hér munu visna eða blómstra á næstu árum og áratugum,“ segir Ásta Sóllilja. Kerecis fékk Vaxtarsprotann Kerecis er í dag eitt áhugaverðasta nýsköpunarfyrirtæki landsins. Það hlaut á dögunum Vaxtarsprot- ann sem er viðurkenning fyrir það nýsköpunarfyrirtæki sem er í mestum vexti innanlands, ásamt því að vera handhafi Nýsköpunar- verðlauna Íslands sem voru veitt í fyrrahaust. „Það er engum blöðum um það að fletta að eitt það mikilvægasta, ef ekki það mikilvægasta, fyrir blómstrandi efnahagslíf og fyrir uppbyggingu nútíma þjóðfélags, er öflugt nýsköpunarstarf,“ segir Klara Sveinsdóttir, framkvæmda- Styrkir Tækniþróunarsjóðs hafa skipt marga sköpum Stjórn Tækniþróunarsjóðs valdi í vikunni hvaða verkefni úr umsóknarfresti sumarsins yrðu styrkt. Lauk þar úthlutun ársins 2020 til nýrra verkefna. Að öllu jöfnu er tilkynnt um seinni úthlutun ársins í desember, en óvenjulegar aðstæður nú kalla á óvenjuleg viðbrögð. Hjálmar Gíslason er stofnandi og forstjóri fyrirtækisins Grid. Sigurður Björnsson, Kolbrún Bjargmundsdóttir, Lýður Skúli Erlendsson og Svandís Unnur Sigurðardóttir. 10 KYNNINGARBLAÐ 2 9 . ÁG Ú S T 2 0 2 0 L AU G A R DAG U RNÝSKÖPUN Á ÍSLANDI
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.