Fréttablaðið - 29.08.2020, Page 74

Fréttablaðið - 29.08.2020, Page 74
Frumkvöðlakeppnin Gulleggið hóf göngu sína vorið 2008 og er eitt rótgrónasta verkefni Icelandic Startups. Keppnin er vettvangur fyrir unga frumkvöðla og hugmyndasmiði sem vilja koma hugmyndum sínum á framfæri og gera úr þeim markvissar áætlanir sem miða að stofnun fyrirtækis, segir Edit Ómarsdóttir, verkefna- stjóri hjá Icelandic Startups, sem nú heldur keppnina í þrettánda sinn. „Skráningarfrestur er til og með fimmtudags 3. september, en skráningin tekur einungis nokkrar sekúndur og það geta allir tekið þátt. Hægt er sækja um með eða án hugmyndar, ef sótt er um þátttöku án hugmyndar fá einstaklingar tækifæri á að bjóða fram þekkingu sína og reynslu til annarra teyma.“ Tíu hugmyndir valdar áfram Þátttakendum keppninnar býðst að sækja þrjár vinnusmiðjur á netinu sem haldnar eru á laugar- dögum. „Þar er farið yfir ýmsa nytsamlega hluti sem þarf að hafa í huga þegar viðskiptahugmynd er mótuð og fyrirtæki stofnað, svo sem áætlanagerð, hönnun og markaðsmál. Teymin fá einnig aðstoð við að undirbúa sig fyrir lyftukvöld Gulleggsins, en það er vísan í það að þú eigir að geta sagt skýrt og skilmerkilega frá hugmynd þinni í einni lyftuferð. Að lokum skila þátttakendur við- skiptaáætlun á einu A4-blaði.“ Rýnihópur, sem skipaður er breiðum hópi bakhjarla og sam- starfsaðila Gulleggsins, fer yfir viðskiptaáætlanirnar og velur þar úr tíu bestu hugmyndirnar, sem komast svo áfram í keppnina sjálfa. „Teymin hefja þá strax að undirbúa sig fyrir lokadag Gulleggsins, þar sem þau kynna hugmyndir sínar fyrir dóm- nefnd. Vinningsteymið hlýtur að launum 1.000.000 kr.“ Alið af sér verðmæti og störf Gulleggið hefur alið af sér fjöldann allan af sprotafyrir- tækjum og eru mörg þeirra orðin að stórum fyrirtækjum á heims- mælikvarða, segir Edit. „Hug- myndirnar eru jafn fjölbreyttar og þær eru margar og hafa skilað sér margfalt til baka út í samfélagið í formi atvinnu- og verðmætasköpunar. Sem dæmi má nefna fjártæknifyrirtækið Meniga, sem tók þátt í Gullegginu árið 2009 en í dag starfa hjá þeim um 160 starfsmenn í sjö löndum. Leikjafyrirtækið Solid Clouds tók einnig þátt í Gullegginu sem og fyrirtækið Róró sem framleiðir dúkkuna LullaDoll. Hátækni- fyrirtækið Videntifier hóf einnig sín fyrstu skref í Gullegginu, en það sér meðal annars alþjóðalög- reglunni Interpol fyrir mynd- greiningartækni.“ Breytt skipulag í ár Gulleggið verður með breyttu sniði í ár vegna COVID-19 en Ice- landic Startups snaraði keppninni yfir á vefform og munu því allar vinnusmiðjur Gulleggsins fara fram á netinu. „Þetta fyrirkomu- lag gefur fólki á landsbyggðinni og víðar tækifæri á að taka þátt í Gullegginu í fyrsta sinn, án þess að þurfa að mæta á fýsískan stað, sem eru virkilega jákvæðar fréttir og skref í rétta átt þar sem nýsköpun spyr hvorki um stað né stund.“ Edit segir að þegar staðið er frammi fyrir stórum áskorunum, t.d. heimsfaraldri, kreppum eða loftslagsbreytingum, myndist gjarnan ný tækifæri. „Á slíkum tímum fer fólk að leita lausna á þeim vandamálum sem koma upp og í þannig aðstæðum blómstrar nýsköpun. Meniga var t.d. stofnað í kjölfar kreppunnar til að aðstoða fólk við að halda utan um fjármál heimilisins. Um þessar mundir sjáum við nýjar lausnir í heil- brigðis- og menntamálum sem og spennandi lausnir í umhverfis- og loftslagsmálum, líkt og staðgengil einnota plasts, rafdrifin farartæki og margt f leira. Hugmyndaflugið er það eina sem stoppar. Ég vil því hvetja alla sem ganga með hug- mynd í maganum að sækja um í Gullegginu fyrir miðnætti þann 3. september.“ Nánari upplýsingar um keppnina má finna á www.gulleggid.is. Nýsköpun spyr hvorki um stað né stund Frumkvöðlakeppnin Gulleggið, verk- efni Icelandic Startups, er nú haldin 13. árið í röð. Vegna COVID-19 fara allar vinnusmiðjur fram á netinu. Edit Ómarsdóttir er verkefnastjóri hjá Icelandic Startups. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON /ONLINE OPIÐ FYRIR SKRÁNINGAR 03.09.20 TIL www.gulleggid.is Kynntu þér málið 16 KYNNINGARBLAÐ 2 9 . ÁG Ú S T 2 0 2 0 L AU G A R DAG U RNÝSKÖPUN Á ÍSLANDI
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.