Dagblaðið Vísir - DV - 11.09.2020, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 11.09.2020, Blaðsíða 13
KYNNING GODDI: Vantar ekki góðan, heitan pott eða sánaklefa á goðorðið þitt? Smá- og heildsölufyrirtækið Goddi hefur þróast töluvert í áranna rás frá því það var stofnað fyrir ríflega hálfri öld. Tímarnir breytast og mennirnir með og í dag býður Goddi upp á vandað og fjölbreytt vöruúrval af rafmagnspottum, sánaklefum, gisti- og sánatunnum, sánavörum og mörgu fleira. Goddi: Lítið goðorð Fyrirtækið Goddi ehf. var stofnað sem umboðs- og heildsala árið 1967 af Haraldi Lýðssyni. Nafn fyrirtækisins er fengið úr Laxdælu, en þar er sagt frá Þórði godda sem bjó á Goddastöðum í Laxárdal. Orðið merkir (lítill) goðorðsmaður. Í dag stýrir sonur eigandans, Friðgeir Haraldsson, fyrirtækinu. „Upphaflega seldi Goddi aðallega húsgögn, áklæði, leður og leðurlíki en með tímanum hafa orðið breytingar í verslun og tækni. Enn þann dag í dag eru helstu vöruflokkar Godda áklæði, leður og leðurlíki. Þá bjóðum við upp á gott úrval af þessum vörum á lager en einnig getum við sérpantað nær hvað sem er fyrir viðskiptavini okkar. Þess utan höfum við einnig verið að flytja inn og selja báta- og fólksbílakerrur og bjálkahús,“ segir Friðgeir Haraldsson, eigandi Godda.Vöruúrvalið er stórglæsilegt og má skoða betur á vefsíðu fyrirtækisins, goddi.is. Infrarauð sána fyrir heilsuna Talsverð aukning hefur orðið í sölu á infra-rauðum sánaklefum, en klefarnir eru þekktir fyrir að hafa víðfeðm, jákvæð áhrif á líkama og heilsu þeirra sem nota þá reglulega. Infrarauðu geislarnir hreinsa húðina, geta stuðlað að lækkuðum blóðþrýstingi, brenna hitaeiningum, slá á verki í líkamanum og veita almenna vellíðan. Það er fátt betra en að skella sér í funheita sánu á köldum vetrarkvöldum. Goddi býður upp á úrval af sauna- og gistitunnum sem hafa vakið athygli, enda sérlega vönduð og falleg smíð. Tunnurnar fást í ýmsum stærðum og er mögulegt að hita þær ýmist með raf- eða viðarkyntum ofnum. Heit böð eru eitt af því sem hefur svo sannarlega haldið lífi í landanum í gegnum langa, kalda og dimma vetur. Goddi er með úrval af hitaveituskeljum í heita potta. Einnig ýmsar gerðir svo sem kringlóttar, ferkantaðar og áttkantaðar á frábæru verði, eða frá 150.000 kr. Bjálkahús úr norskri furu Við getum einnig útvegað bjálkasumar- eða heilsárshús, garðskála og fleira í nokkrum bjálkaþykktum. Húsin eru frá Astel Garden, einu elsta og vandaðasta framleiðslufyrirtæki timburhúsa á Balkanskaganum. Húsin eru mestmegnis framleidd úr norskri furu og er hægt að fá í ýmiss konar útfærslu, t.d. með eða án gólfs eftir því hvort húsið fer á steypta plötu eða annað. Skoðaðu möguleikana á heimasíðunni goddi.is. Goddi býður að auki upp á níðsterk og vönduð lok á potta. Lokin fást í fjórum stærðum og tveimur litum, brúnum og gráum. Þau eru tólf sentímetrar að þykkt með styrkingu og kosta 62.000 kr. Stærðirnar eru: 200×200 sm. 208×208 sm. 213×213 sm. 220×220 sm. Goddi ehf. Auðbrekku 19, 200 Kópavogur. Allar nánari upplýsingar má nálgast á vefsíðunni goddi.is Vanti frekari upplýsingar má senda fyrirspurn á netfangið goddi@goddi. is eða hring ja í okkur í síma 544- 5550 og 822-4150 Saunatunna 330 með palli

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.