Dagblaðið Vísir - DV - 11.09.2020, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 11.09.2020, Blaðsíða 25
Sagnasjóður handa nýrri öld Íslendingasögur og þættir í nýrri og glæsilegri fimm binda heildarútgáfu Ritstjórar útgáfunnar eru Aðalsteinn Eyþórsson, Bragi Halldórsson, Jón Torfason, Sverrir Tómasson og Örnólfur Thorsson. Útgáfan er skreytt 40 myndum eftir dönsku listakonuna Karin Birgitte Lund. Útgáfan er aðgengileg og læsileg, sögurnar 40 og þættirnir 51 eru á nútímastafsetningu og þeim fylgja ítarlegir formálar sem greiða götur um veröld sagnanna, vandaðar orðskýr- ingar, vísnaskýringar og nafnaskrá auk greina og mynda sem varpa ljósi á húsakost og híbýli, skip og siglingar, vopn og verjur. Þá fylgir útgáfunni sagnalykill sem nýtist þeim sem vilja skyggnast dýpra í sagnaheiminn, skoða sambærilega þætti í fleiri en einni sögu, hvort sem áhuginn beinist að bardögum og vígum, haugum, dysjum og helgum fjöllum eða útræði og hlunn- indum, aflraunum og líkamsburðum eða draugum og reim- leikum, svo nokkur dæmi séu nefnd. Bækurnar fimm eru einstaklega vandaðir prentgripir www.vinland@centrum.is • sími: 8937719 • 5627950 „Íslendingasögurnar eru úrvalsverk heimsbókmenntanna og fá enn nýtt líf í þessari vönduðu útgáfu Saga forlagsins. Þær hafa öllu öðru fremur skapað og styrkt vitund Íslendinga sem þjóðar við útmörk Evrópu og verið okkur siðferðislegur leiðarvísir og vísidómsbrunnur. Enn eru þær sístarfandi að mótun okkar og mikil- vægi þeirra er augljóst á hvaða tímum sem er - og kannski sérstaklega nú á okkar dögum.“ Arnaldur Indriðason: „Við Íslendingar eigum engar fornar borgir með höllum og höfuðkirkjum, listasöfnum eða háskólum. En við eigum fornar bækur með listaverkum á borð við Íslendingasögur og það eru okkar dýrgripir, hallir og höfuðkirkjur, listasöfn og háskólar.“ Einar Kárason: „Íslendingasögurnar bjóða okkur að setjast við fótskör formæðra okkar og for- feðra þar sem við heyrum þau sjálf segja frá sigrum sínum og sorgum, vonum og ótta. Enn berst þaðan hvinur af sverðum og gustur hnífbeittra orða.“ Gerður Kristný:

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.