Dagblaðið Vísir - DV - 11.09.2020, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 11.09.2020, Blaðsíða 16
16 EYJAN 11. SEPTEMBER 2020 DV Á ÞINGPÖLLUM Björn Jón Bragason eyjan@eyjan.is TYRKLANDSFÖR SPANÓ Ýmsir þeirra sem nú finna að heimsókn forseta Mannréttindadóm- stólsins til Erdogans, eru þeir sömu og gagnrýndu dómstólinn hvað harðast í Landsréttarmálinu og töldu hann vega að fullveldi Íslands.M ér er nær að halda að það hafi verið for- dild en ekki hefð, sem réði því að Róbert Spanó þáði þessa vegtyllu,“ skrifaði Ingi- björg Sólrún Gísladóttir, fyrr- verandi utanríkisráðherra á Facebook-síðu sína á dög- unum. Tilefnið var heimsókn Róberts Spanó, forseta Mann- réttindadómstóls Evrópu, til Tyrklands, þar sem honum var veitt heiðursdoktorsnafn- bót við Háskólann í Istanbúl. Hún bætti því við að sér þætti dapurlegt að fylgjast með heimsókninni og sagði Spanó eiga að „vita það manna best að það vantar mikið upp á að mannréttindi séu virt og farið sé að reglum réttarríkisins í Tyrklandi“. Jón Steinar Gunnlaugsson, fyrrverandi hæstaréttar- dómari, tók í sama streng og minnti á að mannréttindi væru fótum troðin í landinu, fjöldi fræðimanna og blaðamanna hefði verið hrakinn úr starfi og margir fangelsaðir, fyrir að hafa það eitt til saka unnið að andmæla stjórn Recep Ta- yyip Erdogans, Tyrklandsfor- seta. Í grein í Morgunblaðinu sagði Jón Steinar m.a.: „Hvers vegna heldur Róbert Spanó að Tyrkir hafi viljað hengja á hann orðu? Dettur honum ekki í hug að það kunni að vera vegna viljans til að gera hann vinveittan þeim stjórnvöldum í þessu landi, sem sífellt þurfa að verja hendur sínar fyrir dómstólnum?“ Ekki endilega verið að lýsa velþóknun Fleiri hafa blandað sér í um- ræður um málið, þeirra á meðal Þórhildur Sunna Ævars- dóttir, þingmaður Pírata, sem er á öndverðum meiði við Ingi- björgu Sólrúnu og Jón Steinar. Hún segir fulltrúa dómstóls- ins verða að vera óhlutdræga gagnvart aðildarríkjum Mann- réttindasáttmálans. Þessi deila er áþekk mörgum fyrri þrætum um það hvort áhrifaríkara sé að hunsa miður þokkaða ráðamenn í ríkjum þar sem mannréttindi eru fótum troðin, eða halda við þá talsambandi og reyna að hafa áhrif með þeim hætti. Hér bætist við, líkt og Þórhildur Sunna bendir á, að Tyrkland er aðili að Evrópuráðinu og Mannréttindadómstólnum. Það, að hitta að máli erlenda ráðamenn eða þiggja vegtyllur einhvers, felur ekki endilega sjálfkrafa í sér velþóknun á öllum gjörðum viðkomandi ráðamanns eða þess sem veitti vegtylluna. Þjóðræknislegur tónn Deilan um þessa tilteknu heimsókn er vitaskuld létt- væg í samanburði við stóra málið: Vernd mannréttinda í álfunni, og augljóst að ýmsir (þó ekki allir) þeirra sem gagnrýnt hafa Tyrk- landsheimsóknina eru hinir sömu og fundu að dómi og málsmeðferð Mannréttinda- dómstólsins í svokölluðu Landsréttarmáli. Þar taldi dómstóllinn að íslenska ríkið hefði gerst brotlegt við 6. gr. mannréttindasáttmála Evr- ópu þegar dómari við Lands- rétt — sem Mannréttinda- dómstóllinn taldi að skipaður hefði verið með ólögmætum hætti — dæmdi í máli manns. Í 6. gr. sáttmálans segir að hver sem borinn er sökum um refsiverða háttsemi eigi rétt á réttlátri málsmeðferð fyrir sjálfstæðum og óvilhöllum dómstóli. Umræðan um Landsréttar- málið var um margt þjóð- ræknisleg og ýmsir málsmet- andi menn og konur tóku sér stöðu „með“ íslenska ríkinu líkt og um kappleik væri að ræða — eða átök við erlent stórveldi. Þarna kvað við nýjan tón í umræðunni. Ekki hafði áður borið mikið á því að niðurstöður Mannréttinda- dómstólsins vektu pólitískar deilur hér á landi — hvað þá að mikilsmetnir lögfræðingar legðu sig jafnvel í framkróka við að finna að störfum Mann- réttindadómstólsins í ræðu og riti. Í þessu sambandi má minna á að Bjarni Benediktsson eldri, þá utanríkis- og dóms- málaráðherra, sagði í ræðu á Alþingi þegar rætt var um fullgildingu Mannréttinda- sáttmálans árið 1951 að ís- lenska ríkið yrði þar með „skuldbundið inn á við gagn- vart sínum þegnum“. Bjarni virtist því beinlínis gera ráð fyrir því að íslenskir ríkis- borgarar gætu byggt rétt á sáttmálanum, þrátt fyrir að hann hefði ekki verið form- lega lögfestur af Alþingi. Á bekk með vestrænum lýðræðisþjóðum Í tilefni niðurstöðu Mann- réttindadómstólsins sagði ís- lenskur ráðherra að rétturinn hefði „óeðlileg áhrif á sjálf- stæði dómstóla á Íslandi þar sem Hæstiréttur hefur kom- ist að skýrri niðurstöðu um að dómstólarnir séu löglega skipaðir.“ Þau ummæli skutu skökku við þegar fyrir lá að niðurstaða Mannréttindadóm- stólsins byggði á niðurstöðu Hæstaréttar, þess efnis að galli hefði verið á málsmeð- ferðinni, og því má velta upp hvort ummæli af þessu tagi rýri ekki traust á dómskerf- inu. Umræðan um Landsréttar- málið virtist líka um margt einkennast af því að íslenskir ráðamenn teldu Mannrétt- indadómstólinn vega að full- veldi Íslands og meira að segja voru bein ummæli í þessa veru viðhöfð af máls- metandi lögfræðingum. Rétt er að gjalda varhug við þjóðræknislegum viðhorfum í þessu tilliti. Aðild Íslands að Mannréttindasáttmála Evr- ópu og Mannréttindadóm- stólnum, snýst í raun um að íslenskt þjóðfélag skipi sér á bekk með öðrum vestrænum lýðræðisþjóðum sem virða niðurstöður dómstólsins og laga löggjöf og réttarfram- kvæmd að þeim. Þeir eru öruggasta leiðsögn okkar til að tryggja virka vernd mann- réttinda, en án hennar er hætt við að réttarríkið bíði hnekki. Með virkari mannréttinda- vernd getur þrennt unnist, friðhelgi einstaklingsins verði tryggð, almennt réttar- öryggi sömuleiðis og þar með friður í samfélaginu. n Róbert Spanó var kjörinn forseti Mann­ réttindadóm­ stóls Evrópu 20. apríl sl. en hann er fyrsti Íslendingurinn til að gegna þessu em­ bætti. MYND/VALLI Umræðan um Landsréttarmálið var um margt þjóðræknisleg og ýmsir málsmetandi menn og kon- ur tóku sér stöðu „með“ íslenska ríkinu líkt og um kappleik væri að ræða.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.