Dagblaðið Vísir - DV - 11.09.2020, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 11.09.2020, Blaðsíða 32
Matseðill Helgu Völu Morgunmatur Skyr með nýja granólanu hennar Tobbu, sem reyndar er hættu- lega gott. Kaffi. Millimál Ávextir, hrökkbrauð eða soðið egg á nefndasviði þingsins – og kaffi – en oftast ekkert. Hádegismatur Fjölbreytt, stundum skyr, stund- um einhver matur, stundum brauðsneið – já og kaffi. Millimál Á góðum degi ávextir, of oft bara eitthvað drasl. Já og svo enn þá meira og meira kaffi. Kvöldmatur Egg, grænmeti, fiskur, pasta, salat, súpa, bara alls konar, yfir- leitt ekkert kaffi. Risarækjupasta í Sweet Chili rjómaostasósu 350 g De Cecco pasta 50 g smjör 1 msk. ólífuolía 1-2 rauð chili skorin í þunnar sneiðar ½ púrrulaukur, sneiddur 5-8 hvítlauksrif, smátt söxuð 2 pakkar af risarækju frá Sælkerafiski ½ askja Philadelphia sweet chili rjómaostur 2 dl hvítvín Salt og pipar Steinselja smátt söxuð Hitið olíu og smjör á pönnu. Steikið hvítlauk, púrrulauk og chili í 1 mínútu og bætið þá risarækjunum saman við. Bætið rjómaosti saman við og síðan hvítvíni. Látið malla í smá stund og smakkið til með rjómaosti, hvítvíni, salti og pipar. Setið pastað í skál og látið risarækj­ urnar saman við. Stráið jafnvel chili­ flögum og smátt saxaðri steinselju saman við. Guðrún Ósk Guðjónsdóttir gudrunosk@dv.is Léttir grænmetisréttir eru í uppáhaldi hjá Helgu Völu. MYND/ANTON BRINK 32 MATUR 11. SEPTEMBER 2020 DV Algjör nammigrís og elskar litríkan og bragðsterkan mat Helga Vala er sannkallaður þúsundþjalasmiður. Hún er alþingismaður, leikkona og lög- fræðingur. Hún er einnig mikill matarunnandi. Hvað ætli hún borði á venjulegum degi? H elga Vala Helgadóttir hefur setið á Alþingi fyrir Samfylkinguna síðan árið 2017. Hún er dóttir hinna ástsælu leikara Helgu Bachman og Helga Skúla- sonar. Helga Vala fetaði í fót- spor foreldra sinna og er lærð leikkona. Hún er einnig lög- fræðingur að mennt og fékk lögmannsréttindi árið 2011. Við fengum að vita hvernig venjulegur dagur er í lífi hennar. „Ég er morgunhæna og mæti því fyrir allar aldir í ræktina mína, sem ég er blessunarlega komin aftur af stað í. Ég kem svo heim í sturtu og morgunmat og hitti fjölskylduna mína fyrir vinnu- daginn á Alþingi, sem er oft og tíðum ansi fjölbreytilegur og mislangur,“ segir hún. Algjör nammigrís Helga Vala segist fylgja býsna hollu mataræði en hennar veikleiki er sætindi. „Ég vildi að ég gæti svarað að ég fylgdi í hvívetna hollu og sykurlausu mataræði en þá væri ég að ljúga. Ég er al- gjör nammigrís og bara verð að taka mig taki oft í viku til að sleppa því að úða í mig alls konar sykurgúmmelaði,“ segir hún. „Mataræði mitt er hins veg- ar býsna hollt. Ég borða tölu- vert af grænmeti, ávöxtum, korni og fiski, en minna af kjöti í seinni tíð. Léttir græn- metisréttir eru í uppáhaldi en einnig salat og ítalskir réttir hvers konar.“ Helga Vala nýtur sín í eld- húsinu og hefur yndi af að standa lengi í eldhúsinu og elda alls konar litríkan mat. „Ítalskan, indverskan, mar- okkóskan eða bara hvað sem er og þá skiptir útlitið máli. Matur verður að vera lokk- andi fyrir augað auk þess að vera bragðgóður og mér skilst að ég sé bara fínasti kokkur. Að minnsta kosti fer það orð af mér hjá stórfjölskyldunni sem fær stundum að njóta afurðanna. Eldhúsverkin verða þannig mitt jóga, nokk- urs konar hugleiðsla þar sem ekkert truflar nema suðan í pottunum og uppskriftin sem þarf að fylgja hóflega mikið,“ segir Helga Vala. Hóflega mikil ást „Uppáhalds máltíðin er máltíð með fjölskyldunni og vinum, þar sem setið er lengi og spjallað um allt milli himins og jarðar. Alls konar brögð, alls konar litir og alls konar fólk. Matartíminn er sam- verustund sem best er að sé passlega lífleg og lekker. Líka þegar fram er borin soðin ýsa og kartöflur með smjöri. Matseldin þarf alls ekki að vera einhver flækja heldur bara hóflega mikil ást,“ segir Helga Vala. Aðspurð hver uppáhalds uppskrift hennar sé þessa stundina nefnir Helga Vala risarækjupastarétt Berglindar á Gulur rauður grænn og salt. „Það eru reyndar nánast allar uppskriftir þaðan afbragð,“ segir hún. n Matseldin þarf alls ekki að vera ein- hver flækja heldur bara hóflega mikil ást.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.