Dagblaðið Vísir - DV - 11.09.2020, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 11.09.2020, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIR 11. SEPTEMBER 2020 DV U m þessar mundir er rekið mál fyrir Héraðsdómi Reykja- víkur þar sem tveir menn, þeir Matthías Jón Karlsson og Vygantas Visinskis, eru ákærðir fyrir aðild að stór- felldu fíkniefnalagabroti. Þeir félagar eru sagðir hafa fram- leitt amfetamín úr svoköll- uðum amfetamínbasa, sem mikið hefur verið til umfjöll- unar í fréttum undanfarið. Amfetamínbasi er sterk formúla amfetamíns, sem flutt er inn erlendis frá í vökva- formi. Úr litlu magni amfeta- mínbasa má vinna talsvert magn af amfetamíni, sem er svo þynnt út áður en það er selt á götunni. Magnið sem þeir Matthías og Vygantas eru sagðir hafa framleitt er 11.217 grömm. Þar af höfðu 3.936 grömm af efninu um 20% styrkleika, og restin, 7.261 grömm um 6-9% styrkleika, samkvæmt ákærunni sem DV hefur undir höndum. Eru tvímenningarnir ákærðir fyrir framleiðslu á fíkniefnum, en í því sama ákvæði er lagt bann við sölu og dreifingu fíkniefna. Sami refsirammi en ólíkar refsingar Ljóst er af lestri ákvæðisins, að löggjafinn hefur lagt al- varleika þess að flytja inn efni og að framleiða þau að jöfnu, og falla þessi tvö brot í sama refsirammann. Engu að síður er af dómaframkvæmd undanfarin ár ekki hægt að ráða annað en að mun þyngri dómar falli í málum sem tengjast framleiðslu, en þeim sem tengjast innflutningi efna eða sölu þeirra innanlands. Í fyrsta dóminum vegna fram- leiðslu amfetamíns hér á landi, frá árinu 2009, sagði reyndar berum orðum að meta bæri alvarleika fram- leiðslu meiri en smygls. Mörgum hefur jafnframt þótt það skjóta skökku við að umbreyting amfetamínbasa yfir í amfetamínnítrat, eða amfetamín í duftformi, geti talist framleiðsla. Benda lög- menn mannanna, Guðni Jósep Einarsson og Þorgils Þorgils- son, á að þarna sé einfaldlega verið að breyta amfetamíni í amfetamín. Það geti varla tal- ist vera framleiðsla, enda efn- ið þegar fullframleitt amfeta- mín í basaformi. Á þetta benda lögmenn þeirra Matthíasar og Vygantas meðal annars í yfir- standandi réttarhöldum. Amfetamín er ekki bara amfetamín Lögmennirnir ganga raun enn lengra og benda á að taka verði tillit til styrkleika efnanna. Ef eitt kíló af 100% hreinu amfetamíni er þynnt með kílói af íblöndunarefnum, sem í langflestum tilfellum séu lögleg efni í duftformi, til dæmis kreatín eða mjólkur- sykur, fáist tvö kíló. Engu TEKIST Á UM AMFETAMÍN Í RÉTTARSÖLUM HÉRAÐSDÓMS Dómar fyrir amfetamínframleiðslu eru fáir á Íslandi en nema sam- anlagt mörgum áratugum. Nú er skoðað hvað framleiðsla felur í sér. Niðurstaðan gæti skekkt grundvöll margra þungra fangelsisdóma. Heimir Hannesson heimir@dv.is Lögmennirnir Guðni Jósep Einarsson og Þorgils Þorgilsson á lögmannsstof- unni Juvo láta lítið fyrir sér fara, en hafa á undanförnum árum tekið að sér mörg af stærstu sakamálum landsins. Saman standa þeir að kröfu um sérfræði- mat á því hvað amfetamín- framleiðsla er, í máli sem nú fer fram í Héraðsdómi Reykjavíkur. MYND/SAMSETT að síður er um sama magn virka og ólöglega efnisins að ræða þó þyngri dóms væri að vænta fyrir tvö kílóin en það eina hreina. Ef reiknað er út magn hreins amfetamíns sem þeir Matthías og Vygantas voru að sýsla með, fæst út að þeir hafi „aðeins“ verið með um 1.330 grömm. Rök lögmann- anna snúa þannig að því að munur sé á 1,3 kílóum og 11,2. Raunar eru til fordæmi fyrir notkun útreikninga af þessu tagi í íslenskum lögum. Til dæmis er áfengisskattur reiknaður af hverjum cl. af „hreinum vínanda.“ Lögmenn þeirra Matthíasar og Vygantas láta nú reyna á þessi atriði fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur. Í þar síðustu viku úrskurðaði dómari að kallaður skyldi til sérfræðingur í efna- fræði og að hann skyldi leggja fram mat sitt á því hvort um- breyting basans í duft sé fram- leiðsla eða ekki. Verður það í fyrsta skipti sem það fæst staðfest af sérfræðingi fyrir íslenskum dómstól. Þetta þykir sérstaklega áhugavert í ljósi þess að bara á þessu ári hafa þegar fallið þungir dómar fyr- ir einmitt þennan glæp. Í júní dæmdi Landsréttur þrjá menn í samtals 16 ára fangelsi fyrir að hafa breytt amfetamínbasa í duftform í sumarbústað í Borgarfirði. Hikandi Hæstiréttur og skökk fordæmi Í Borgarfjarðarmálinu reynir reyndar á fleiri atriði og hef- ur einn mannanna sótt um áfrýjunarleyfi til Hæstarétt- ar. Hæstiréttur hefur hingað til virst veigra sér við að taka sakamál til skoðunar. Hér ber þó að taka fram að í vikunni veitti Hæstiréttur áfrýjunar- leyfi í sakamáli Þórhalls Guð- mundssonar, sem oftast er kallaður Þórhallur miðill. Í áfrýjunarleyfisbeiðninni sem DV hefur undir höndum er fjallað um rök fyrir veit- ingu áfrýjunarleyfisins. Er þar nefnt að dómurinn yfir Borgarfjarðarþremenning- unum sé aðeins annar dómur- inn sem fellur um framleiðslu amfetamíns á Íslandi og að hann hafi byggt, skv. niður- stöðukafla dómsins, að miklu leyti á fordæmi frá þeim fyrsta. Þar var þó um fram- leiðslu amfetamíns frá grunni að ræða og málin því, að sögn lögmanns, ekki samanburðar- hæf. Segir í áfrýjunarleyfis- beiðninni að þessi dómur, sem Héraðsdómur kallar fordæm- isgefandi, hafi takmarkað for- dæmisgildi „sama hvað gildi fyrrgreindan héraðsdóm.“ Enn fremur segir þar: „Rétt- urinn þarf að taka afstöðu til þess hvort ákvæði sem slíkt geti staðið undir mismunandi refsingum vegna brota sem öll heyra undir ákvæðið.“ Er þar vísað til þess hvort rétt- mætt sé að refsa meira fyrir framleiðslu en sölu. Áratugalangir dómar undir Staðan nú er því sú að tvö stór, veigamikil og fordæmisgef- andi mál, eru nú á leið sinni í gegnum réttarkerfið. Fyrst mál Matthíasar og Vygant- asar þar sem kallaður verður til efnafræðingur og þeirri spurningu svarað hvort hægt sé að framleiða amfetamín úr amfetamínbasa, eða hvort um umbreytingu sé að ræða. Annað er mál borgfirsku þre- menninganna, sem nú bíður niðurstöðu Hæstaréttar um hvort rétturinn muni taka það fyrir. Niðurstöður þessa tveggja mála gætu haft veigamikil áhrif á líf þeirra níu einstakl- inga sem hlotið hafa samtals 38 ára fangelsisdóma vegna amfetamínframleiðslu á síð- astliðnu ári auk Matthíasar og Vygantas, sem nú bíða síns dóms. n Benda lögmenn mannanna á að þarna sé verið að breyta amfeta- míni í amfetamín.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.