Fréttablaðið - 24.09.2020, Side 2
Um leið og við
tilkynntum þetta
fór allt á hliðina hjá mér,
síminn stoppaði ekki.
Stefán Sigurjónsson
Veður
Norðan 10-15 í dag en heldur
hvassara suðaustantil. Él norðan-
lands, en yfirleitt léttskýjað á
Suður- og Vesturlandi. Lægir víða
í kvöld, og léttir til og frystir um
landið norðvestanvert. Hiti -2 til 5
stig, hlýjast syðst. SJÁ SÍÐU 26
Malbikað undir hvítum toppum
Það var stemning á Vesturlandsvegi í gær þegar malbikunarframkvæmdir stóðu yfir og ljósmyndari Fréttablaðsins rúllaði þar fram hjá. Þó f lestir
tengi malbikun við sjóðheita sumardaga er líka hægt að klæða starfsmenn upp og skella malbikinu ofan á kaldan jarðveginn. Framkvæmdirnar
hafa tekið töluverðan tíma, mörgum til ama, en þó er passað upp á að örygginu sé ekki fórnað og því er verið að vanda sig. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR
- heimur fágaðra möguleika
www.modern.is
FAXAFEN 10 · 108 REYKJAVÍK · 534 7777
- ALLT AÐ 20% AFSLÁTTUR AF PÖNTUNUM
SVO ÞÚ FÁIR HÚSGÖGNIN ÖRUGGLEGA HEIM FYRIR JÓLIN
SAMFÉLAG „Ég hef alltaf verið mikill
spilamaður og man vel eftir mér að
spila Útvegsspilið á sínum tíma,
alveg heilmikið. Ég fór í alvörunni
út í þetta til þess að geta fengið að
spila það sjálfur aftur,“ segir Stefán
Sigurjónsson og hlær.
Upprunalega spilið hefur gengið
kaupum og sölum manna á milli á
samfélagsmiðlum fyrir svimandi
háar upphæðir.
„Ég náði ekki að kaupa það notað
því það endaði oft í uppboðum
á yfir 100.000 krónur. Þannig ég
ákvað að láta slag standa og gera
þetta bara sjálfur,“ segir hann.
Honum þykir þó merkilegt að
enginn hafi hellt sér út í það fyrr, í
ljósi vinsælda spilsins. Þetta hafi þó
verið gífurlega mikil vinna.
„Ég hafði samband við Hauk
Halldórsson myndlistarmann sem
gerði spilið upphaflega og hann var
heldur betur til í þetta.“
Grafíkin var unnin út frá prent-
aða efninu frá 1977 sem Haukur
gerði, en Stefán segir samstarfið
hafa verið einstaklega skemmtilegt.
„Við vildum ekkert vera að hrófla
við hans hönnun of mikið, enda
listaverk út af fyrir sig,“ segir Stefán.
Mikil vinna fór í að endurnýja
allan skipaflotann, vinnslustöðvar
og hús.
„Spilið endurspeglar íslenska
skipaflotann eins og hann er í dag.
Síðan ferðaðist ég á milli sjávar-
plássa í rannsóknarleiðangri,“ segir
Stefán.
Það hefur farið blóð, sviti og tár
í að færa Íslendingum á ný þetta
sívinsæla spil.
„Já bókstaflega. Við erum búnir
að handsmíða um fjóra kílómetra
að skipum og húsum, svona ef
við myndum raða þeim saman.
Guðmundur Sighvatsson hjá Tré-
smiðjunni Slipp tók það að sér
með bros á vör, enda svo einlægur
aðdáandi spilsins. Síðan tóku snill-
ingarnir í Fangaverk á Hólmsheiði
við og máluðu og pökkuðu svo
spilinu. Stundum sá maður nánast
eftir því að hafa ekki fengið ódýrari
framleiðslu að utan. En núna þegar
þetta er búið þá getur maður ekki
annað en verið stoltur,“ segir Stefán.
Hann segir ákveðið spennufall að
sleppa spilinu loksins frá sér.
„Líka út af þrýstingnum, fólk
er orðið nokkuð æst að komast í
eintak. Um leið og við tilkynntum
þetta fór allt á hliðina hjá mér, sím-
inn stoppaði ekki. Enda erum við
nú þegar búin að selja þúsund spil
frá því við hófum forsöluna þann
17. júní. Þannig að þú getur rétt
ímyndað þér.“
Hann segist hvergi hættur í spila-
gerðinni og hefur hann strax hafið
gerð næsta spils, sem er líka endur-
gerð.
„Ætli að það megi ekki segja að
það sé mögulega eitthvað hættulegt
á leiðinni,“ segir Stefán lúmskur.
Útvegsspilið fer í sölu á spila-
borg . is frá og með morgundeginum.
steingerdur@frettabladid.is
Þúsund spil þegar seld
Stefán Sigurjónsson stendur að endurgerð Útvegsspilsins og hann er nú þegar
farinn að vinna við endurgerð annarrar perlu úr íslenskri borðspilasögu.
Stefán, fyrir miðju, afhenti forstjóra Landhelgisgæslunnar, Georgi Kr.
Lárussyni og Kristjáni Þór Júlíussyni sjávarútvegsráðherra fyrstu eintök af
nýrri útgáfu af Útvegsspilinu á miðvikudaginn. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
SLYS Maður lést í vinnuslysi á Hellis-
sandi á Snæfellsnesi á ellefta tím-
anum í gærmorgun.
Þyrla Landhelgisgæslunnar var
kölluð á vettvang en maðurinn var
ekki f luttur með þyrlunni, að sögn
Ásgeirs Erlendssonar, upplýsinga-
fulltrúa Landhelgisgæslunnar. Lög-
reglan á Vesturlandi rannsakar nú
tildrög slyssins og veitir ekki frek-
ari upplýsingar um slysið að svo
stöddu. – kdi
Banaslys varð
á Hellissandi
Slysið varð um ellefu í gærmorgun.
DÓMSMÁL Enn var tekist á um fyrir-
hugaðar vitnaleiðslur í máli Erlu
Bolladóttur gegn íslenska ríkinu,
í fyrirtöku í Héraðsdómi Reykja-
víkur í gær. Í málinu gerir Erla kröfu
um að úrskurður endurupptöku-
nefndar, um synjun á beiðni hennar
um endurupptöku á hennar þætti í
Guðmundar- og Geirfinnsmálum,
verði felldur úr gildi.
Settur ríkislögmaður lýsti efa-
semdum um að þörf væri á að
réttar sálfræðingarnir Gísli Guð-
jónsson og Jón Friðrik Sigurðsson
beri vitni í málinu. Um ógildingar-
mál væri að ræða og vafamál hvort
sönnunarfærsla um atvik ætti yfir
höfuð að fara fram.
Erla Bolladóttir tók sjálf til máls
um nauðsyn þess að réttarsálfræð-
ingarnir beri vitni.
„Játningarnar sem ég gaf í þessu
máli voru fengnar á mjög óeðlilegan
hátt,“ sagði Erla. Réttarsálfræðing-
arnir hefðu framkvæmt vísindalega
rannsókn á játningunum og þeir
hefðu gert grein fyrir niðurstöðum
sínum í Héraðsdómi Reykjavíkur
[árið 2016]. Endurupptökunefnd
hefði hins vegar ekki vikið einu
orði að skýrslum þeirra í niður-
stöðu sinni.
Dómari óskaði eftir því að vitna-
listar verði lagðir fram í næsta
þinghaldi sem fer fram um miðjan
október og þá verði úrskurðað um
þá, komi mótmæli fram. – aá, – fbl
Mikilvægt að
Gísli beri vitni
Erla Bolladóttir ásamt lögmanni
sínum Ragnari Aðalsteinssyni í
Héraðsdómi. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
2 4 . S E P T E M B E R 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð