Fréttablaðið - 24.09.2020, Side 8

Fréttablaðið - 24.09.2020, Side 8
 Það tók sex mánuði að rannsaka dauða Breonna Taylor en Hankison skaut tíu sinnum inn um glugga á heimili hennar. Tvær af 8,6 milljónum íbúa Sviss eru innflytjendur. SVISS Svisslendingar kjósa á sunnu- dag um mjög umdeilt frumvarp til laga um útlendingamál. Gangi það í gegn verður samningi um frjálsa för fólks milli Sviss og Evrópusam- bandsins sagt upp og harðari stefna í útlendingamálum tekin upp. Frumvarpið kemur frá Svissneska þjóðarflokknum, sem er sá stærsti á sambandsþinginu en tapaði miklu fylgi í síðustu þingkosningum, árið 2019. Vonast f lokkurinn til þess að geta náð vopnum sínum á ný með aukinni hörku í málum innf lytj- enda. Löng hefð er fyrir þjóðaratkvæða- greiðslum í Sviss um ýmis mál. Skoðanakönnun um þetta mál sýnir að minnihluti landsmanna styður það, 35 prósent, en 63 prósent eru andvíg. Kosningaþátttaka hefur hins vegar ekki alltaf verið góð í landinu og óvíst hvort skoðana- könnunin verði nálægt úrslitunum. Gætu úrslitin ráðist af því hversu duglegir baráttuhópar verða að ná sínu fólki á kjörstað. Innflytjendum hefur fjölgað mjög ört í Sviss á undanförnum áratugum. Frá árinu 1990 hefur íbúafjöldinn aukist um tvær milljónir, þar af er helmingur innflytjendur. Í dag búa 8,6 milljónir í landinu og þar af tvær milljónir innf lytjenda. Hafa for- svarsmenn þjóðarflokksins haldið því fram að svissneskt þjóðerni sé í hættu, haldi þessi þróun áfram. Flestir innflytjendur koma frá Evr- ópusambandslöndum, rúmlega 300 þúsund frá Þýskalandi og Ítalíu, rúmlega 260 þúsund frá Portúgal og 135 þúsund frá Frakklandi. Annað algengt popúlískt stef sem fylgjendur frumvarpsins halda fram er að ungir innflytjendur taki störf eldri Svisslendinga, þrengsli í borgum verði meiri og húsnæðis- verð rjúki upp. „Nærri helmingur bótaþega eru útlendingar,“ segir á vefsíðu þeirra. Andstæðingar frumvarpsins halda því hins vegar fram að Sviss þurfi á innf lytjendum að halda, sérstaklega sérmenntuðu fólki sem starfi í heilbrigðis- og lyfjageir- anum. Sviss hefur verið mjög sam- keppnishæft um launakjör og þess vegna vilji fólk flytjast til landsins, ekki aðeins þegar kemur að best launuðu störfunum. Innflytjendur sinni gjarnan störfum sem Sviss- lendingar sjálfir sækist ekki eftir. Innflytjendur munu sjálfir ekki geta haft bein áhrif á kosningarnar, því að í fæstum tilfellum mega þeir kjósa. Fylkin, eða kantónurnar, hafa sjálfsákvörðunarrétt um hvort þær leyfi innf lytjendum að kjósa eða bjóða sig fram til embættis. Ein- ungis tvær litlar kantónur í norð- vesturhluta landsins, Jura og Neu- chatel, leyfa það, þar sem samanlagt búa um 250 þúsund manns. kristinnhaukur@frettabladid.is Kjósa um umdeilt útlendingafrumvarp Svisslendingar hafa verið samkeppnishæfir um laun og innflytjendum fjölgað hratt á undanförnum áratugum. Nú vill Svissneski þjóðarflokkurinn klippa á frjálsa för fólks milli Sviss og Evrópusambandsins, með frumvarpi sem kosið verður um á sunnudag. Leiðtogar stjórnmálaflokkanna mættust í sjónvarpssal til að ræða kosninguna. MYND/EPA Samfélagsstyrkir Landsbankans Landsbankinn veitir 15 milljónir króna í samfélagsstyrki árið 2020. Umsóknarfrestur rennur út á morgun, föstudag, 25. september 2020. landsbankinn.is 410 4000Landsbankinn Umsóknarfrestur vegna samfélagsstyrkja rennur út á morgun, föstudag, 25. september 2020. Rafrænar umsóknir og nánari upplýsingar á lbn.is/samfelagsstyrkur. Verkefni sem einkum koma til greina:  Verkefni á vegum mannúðar- samtaka og góðgerðarfélaga  Verkefni á sviði menningar og lista  Menntamál, rannsóknir og vísindi  Forvarna- og æskulýðsstarf  Umhverfismál og náttúruvernd Veittir eru styrkir í þremur þrepum:  1.000.000 kr.  500.000 kr.  250.000 kr. HVÍTA RÚSSLAND Alexander Lúkasj- enkó sór embættiseið fyrir luktum dyrum í Hvíta-Rússlandi í sjötta sinn í gær. Engin tilkynning hafði borist um að Lúkasjenkó væri að fara sverja embættiseiðinn, en niðurstöðum forsetakosninganna hefur verið mótmælt harðlega í landinu og forsetinn sakaður um kosningasvindl. Þjóðverjar sendu frá sér tilkynningu þar sem segir að landið viðurkenni hann ekki sem forseta og að kosningarnar hafi hvorki verið frjálsar né sanngjarnar. Þegar fréttir fóru að berast um embættiseið Lúkasjenkós flykktist fólk út á götur landsins að mót- mæla. Tugir voru handteknir og beitti lögreglan vatnsbyssum og táragasi til að sundra mótmæl- endum. Óeirðalögreglan gekk vask- lega fram og fjölmörg myndbönd á Twitter sýna lögregluna ganga harðlega fram og skeyta engu hvort þar færu unglingar, karlmenn eða konur. Stjórnarandstöðuleiðtoginn Svetlana Tikhanovskaya kallaði embættiseiðinn farsa í myndbandi sem hún sendi frá sér. Vladimír Pútín Rússlandsforseti hefur lofað efnahagsstuðningi við vin sinn Lúkasjenkó. – bb Lúkasjenkó kom á óvart Myndir af Lúkasjenkó glöddu fáa í Hvíta-Rússlandi. MYND/GETTY KENTUCKY Mótmælendum og lög- reglu laust saman í gærkvöldi eftir að lögregluþjónninn Brett Hank- ison, var ákærður fyrir að skjóta Breonna Taylor en ekki fyrir dauða hennar. Taylor var 26 ára og skotin margsinnis á heimili sínu. Andlát hennar kynti undir ásökunum um lögregluof beldi. Áður höfðu lög- gæsluyfirvöld fallist á að greiða fjöl- skyldu hennar 12 milljónir Banda- ríkjadala í bætur, jafngildi um 1,6 milljarða íslenskra króna. Útgöngu- bann hefur verið sett á í Louisville en borgaryfirvöld óttast að óeirðir muni brjótast út í borginni í kjöl- far fregnanna. Efnt hefur verið til mótmæla þar vegna dauða Taylor á hverjum degi í yfir 100 daga. – bb Ákærður fyrir að skjóta Taylor en ekki drepa 2 4 . S E P T E M B E R 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R8 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.