Fréttablaðið - 24.09.2020, Page 22

Fréttablaðið - 24.09.2020, Page 22
Oddur Freyr Þorsteinsson oddurfreyr@frettabladid.is Timberland-skórnir voru fyrst hannaðir til að vera vinnu-skór fyrir byggingarverka- menn í Bandaríkjunum, en síðan hafa þeir fest sig í sessi sem vinsæll, harðger skóbúnaður og tískuvara. Nú hefur framleiðandinn farið í samstarf við malasíska tísku- hönnuðinn Jimmy Choo og saman hafa þau skapað glamúrútgáfu af skónum. Nýja útgáfan er skreytt glitrandi kristöllum frá austurríska skart- gripaframleiðandanum Swar- ovski og glimmeri, þannig að þeir skína nú skærar en nokkru sinni. Þetta er harla óvenjuleg blanda af tveimur ólíkum stílum, en nýja útgáfan á engu að síður vafalaust eftir að njóta mikilla vinsælda hjá tískuvitum og skófíklum. Ein útgáfan alsett kristöllum Skórnir koma í fjórum litum, gulbrúnir með Swarovski-kristal- kraga, gulbrúnir með gullglimm- eri, svartir með glimmeri og svo er ein útgáfa sem er alveg þakin Swar ovski-kristöllum, en hún er aðeins til í takmörkuðu upplagi. Auglýsingaherferðin fyrir skóna var unnin með þekktum nöfnum. Hjólabrettakappinn og fyrirsætan Evan Mock og fegurðarfrum- kvöðullinn Kristen Noel Crawley sitja fyrir á myndunum, sem voru teknar af leikaranum og ljósmynd- aranum Cole Sprouse í þjóðgarði í Kaliforníu. Gróðursetja tré fyrir hvert par Skórnir verða í boði í sérvöldum Jimmy Choo-verslunum um allan heim og voru líka í boði í tak- markaðan tíma hjá Ounass, sem er lúxusvöruverslun á vefnum. Timberland hefur lofað að gróðursetja 50 milljón tré á næstu fimm árum og sem hluta af því ætlar fyrirtækið að gróðursetja eitt tré fyrir hvert einasta par af þessum skóm sem verður fram- leitt. Glamúrútgáfa Timberland Timberland var að gefa út nýja útgáfu af þekktu reimaskónum sínum sem eru heldur fínni en venjulega. Nýju stígvélin eru afrakstur samstarfsverkefnis með tískuhönnuðinum Jimmy Choo. Það er töluvert meiri glamúr yfir þessari útgáfu af skónum. MYNDIR/TIMBERLAND.COM Nýju skórnir eru afrakstur samstarfsverkefnis með malasíska tískuhönnuðinum Jimmy Choo. Hjólabrettakappinn Evan Mock var meðal fyrirsætanna á myndunum í auglýsingaherferðinni. Timberland ætlar að gróðursetja eitt tré fyrir hvert einasta par af skónum sem verður fram- leitt. Kóngafólk og annað frægt fólk ber andlitsgrímur rétt eins og almenningur. Kate Middleton, hertogaynja af Cambridge, fer ekki var- hluta af sýkingarhættu og ber andlitsgrímu úr bómull með blómamynstri. Þannig hefur gríman orðið partur af tísku hjá nútíma fólki. Margir ganga um með venjulega grímu eins og heilbrigðisstarfsfólk notar og fást í apótekum. Aðrir kaupa grímur frá þekktum hönnuðum eða sauma þær sjálfir. Svo hafa skemmtilegar gríngrímur litið dagsins ljós. Það sem skiptir þó öllu máli er að nota grímuna til að hún geri gagn og að hún sé rétt gerð. Gríman þarf að sitja rétt á and- litinu, ná yfir nef, munn og höku. Þvoið hendur og sprittið áður en gríman er sett á andlit og eftir að hún er tekin niður. Skipta þarf um grímu reglulega og þvo þær sem eru gerðar úr bómull í minnst 60°C. Athugið að venju- legar andlitsgrímur eru einnota. Grímur fyrir alla Breska hertogaynjan Kate Middle- ton gætir að því að sýna samstöðu um sóttvarnir og notar grímu. Hailey Bieber, eiginkona Justin Bie- ber, gengur um götur Los Angeles með svarta andlitsgrímu. LÍTTU VIÐ Á BELLADONNA.IS Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is Verslunin Belladonna NÝJAR HAUSTVÖRUR STREYMA INN 4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 4 . S E P T E M B E R 2 0 2 0 F I M MT U DAG U R

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.